10.4.2010 | 00:42
986 - Maggi mix
Jæja, ég held þá bara mínu striki og læt vaða á súðum. Þegar ég vaknaði seint og um síðir sá ég að komnar voru einar tíu athugasemdir við skrif mín í gær. Þetta er óvenjulegt og sló mig eiginlega alveg útaf laginu. Var einmitt að velta fyrir mér hvernig ég gæti byrjað á næsta bloggi. Nú er það vandamál leyst. Sníkjubloggarar allra landa sameinist og mætið hér.
Sá líka umfjöllunina um Magga Mix í kastljósinu í gærkvöldi. Er hann að stæla mig eða ég hann? Þarna er ég að vísa í hafragrautarskrifin ef einhver skyldi vera of tornæmur til að skilja það. Svo er heldur ekki víst að allir sem hingað koma þekki deili á Magga Mix. Mér skilst að hann sé aðallega á fésbókinni og vinsæll mjög.
Kristinn Theódórsson skrifar um hræsnina í Jóni Val Jenssyni og ég hef engu við það að bæta. Er bara sammála honum. Er líka hugsi útaf því að ég sé ekki að Agnes Bragadóttir hafi svarað aðal-lögfræðingnum sjálfum sem hjólaði í hana um daginn og sagði hana lygakvendi eða eitthvað þessháttar. Kannski hefur svar Agnesar bara farið framhjá mér.
Það er ekki hægt að búa til verðmæti úr loftinu og hinn fríi hádegisverður er ekki til segja frjálshyggjumenn gjarnan. Það var einmitt frjálshyggjan sem fór svona með okkur eins og allir eru uppteknir af. Siðferðisviðmiðin fuku út í buskann, ekki bara hjá útrásarvíkingunum heldur almennt í þjóðfélaginu. Vinstri sinnuð viðhorf eru vinsælli nú um stundir en var á tímum ofsagróðans. Öllu má samt ofgera og reglugerðir og fyrirmæli stjórnvalda um allt mögulegt eru verkfæri andskotans og koma óorði á vinstrið. Valdhroki getur komið þeim í koll sem honum beita. Já, ég er að tala um dóttur hans Inga R. Hún má vara sig.
Það áhugaverðasta og það sem mest nýnæmi er að í erlendum fréttum þessa dagana er það sem er að gerast í Thailandi. Þar er í gangi einskonar búsáhaldabylting þar sem þess er krafist að ríkisstjórnin segi af sér. Ástandið þar er sífellt að verða einkennilegra og einkennilegra.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:45 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Þú ert dálítið heitur fyrir fésbókinni Þú verður í ágætum félagsskap en þín verður saknað ef þú hættir að blogga. Það er svo sjaldgæft að hafa svona Pollyönnu blogg skrifað af karlmanni
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 10.4.2010 kl. 03:09
Aldrei heyrt á þennan Magga Mix minnst fyrr. Svona er ég nú mikill útnesja eða innfjarðarmaður. Fékk bara upp kryddblöndur frá Maggi þegar ég spurði prófesor Google. Þarf því ekkert að skammast mín fyrir fáfræðina.
Annars ætla ég nú ekki að gerast innanlærisgúll á þínu bloggi, en talandi um Sníkjublogg, þá man ég nú eftir bloggi hjá þér þar sem nafnið mitt var fyrirsögnin og var ég nokkuð upp með mér af því. Aðeins Jón Valur hafði leyft sér slíkt áður, en bannaði þó að ég setti athugasemdir við þau skrif.
Eiinhverju fleiri hafa jú baðað sig í frægðarljóma mínum, en það hefur alltaf verið mæringi og lofgjörð um meistarnn. Finnst það miklu sjálfsagðara og amast ekki við slíku.
Trekktirðu ekki sæmilega á nafnið þarna um daginn?
Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 07:30
Jóhannes. Skil vel hvað þú átt við með pollýönnubloggi. Jákvæðnin drepur engan. Svartagallsraus (einkum hvað pólitísk mál varðar) finnst mér of algengt á blogginu.
Jón Steinar. Ég er ekki í uppáhaldi hjá Jóni Vali. Er jafnvel bannaður þar eins og fleiri. Æsti hann einu sinni upp að óþörfu. Nöfn í fyrirsögnum trekkja oft (Teitur Atla síðast - minnir mig) Fréttir dagsins hafa líka oft mikil áhrif ef fólk er í vinsældaleik og það nýjasta er matarmál. Vísur eru líka góðar.
Sæmundur Bjarnason, 10.4.2010 kl. 08:11
Ég ef aldrei verið í neinni vinsældakeppni hér heldur, hvað þá að hugsa út einhverja strategíu varðandi aðsókn. Hef líklega linkað þrisvar eða fjórum sinnum á fréttir, en þá helst ef þær kveikja einhverja sögu í mér. Núna síðast gerði ég það í gær vegna vorkomunnar.
Ég komst samt æði hátt hér á sínum tíma 3ja sæti eða svo var mér bent á. Það var þegar ég var að skrifa vandaðri greinar og æviminningabrot einhverskonar. Það er líka það eina, sem ég læt standa eftir. Hendi yfirleytt út dægurþrasi og greinum sem fólki þykir máske helst til heiðarlegar um trúmál.
Fólk vill fá eitthvað fróðlegt nýtt og skemmtilegt að lesa. Ekki endurtekningu á fréttum, sem linkað er við eins og hjá Halla Gamla og Stebba fréttakalli á Agureiri. Þeir fá þó háa aðsókn af því að fólk smellir á þetta í leit að frekari umfjöllun, sem það svo fær ekki.
Mér finnst bloggið þitt skemmtilegt. Sérlundað og ærlegt, þótt ekki sé ég alltaf sammála. Ég kann svo ágætlega við þann kost hjá mönnum að geta skipt um skoðun og jafnvel hafa rangt fyrir sér. Það kannt þú og mikið vildi ég að þú getir kennt henni Jóhönnu Sig. það.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 09:57
Best finnst mér blogg sem skapa umræðu og vangaveltur um umfjöllunina manna á meðal. Það er einhver forngrískur lýðræðisandi yfir því. Ég á þó ekki við svona Ma ma ma blogg eða Reykaássblogg um pólitík, sem velta fram runu spurninga án þess að svara þeim, né ætlast til að þeim sé svarað.
Svona: Hvað er ríkistjórnin að hugsa?? Hvað ætla menn að gera í málunum?? Hver ber ábyrgðina??? Hver stjórnar þessum fjanda?? Hverskonar vitleysa er þetta?? Hvar endar þetta?? Hvað er maðurinn að hugsa?? Etc.
Þetta eru launfyndin blogg í allri sinni heilögu hneykslan þótt þau séu skrifuð í fúlustu alvöru. Dauðralúsablogg gæti þetta kannski heitið, svo við bættum við skilgreiningarhalann. (Detta mér nú allar dauðar lýs...) Kannski þú takir þig til og greinir þetta afbrygði við tækifæri.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 10:08
Ég var búinn að fá hundleiða á öllu argaþrasinu og ririldinu hér á blogginu svo ég ákvað að gera eitthvað sem gæti unnið á móti því, ekki síst fyrir mína eign sál sem var orðin ansi tætt eftir alla reiðina yfir ástandinu.
Mitt markmið er að fá fólk til að brosa og besta leiðin til þess að mínu mati er að taka sér orð Megasar til fyrirmyndar: "Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig."
Vildi að fleiri gerðu það, þ.e. hættu þessu eilífa þrasi og reiðilestrum og færu að gera eitthvað uppbyggilegt í staðinn.
Þú, Sveinn, lífgar skemmtilega upp á bloggið og ert eðal og það ert þú líka Jón Steinar, þegar þú ert í stuði, eins og í gær með "ljóðinu" um vorkomuna á Sigló.
Það hlýjar örugglega mörgum og gerir heiminn að örlítið betri stað.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 10.4.2010 kl. 11:12
... afsakaðu ... Sæmundur átti þetta að vera, ekki Sveinn.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 10.4.2010 kl. 11:14
... svo VERÐ ég að segja að ég þau blogg sem mér finnst VERST eru þau sem virðast hafa þann eina tilgang að ala á og smita út neikvæðni og espa fólk í ririldi.
Verst af öllu eru slík neikvæð blogg þar sem blogghöfundur getur varla komið frá sér hugsun án þess að bölva og/eða uppnefna einhvern eða einhverja.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 10.4.2010 kl. 11:22
Sérðu nú hvað þú hefur gert Sæmundur? Þú hefur smitað alla af Sæmundarhætti, sem koma inn á bloggið þitt.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 15:41
Já, þú verður bara að taka við Jón Steinar. Steini segist vera hættur þessari vitleysu.
Sæmundur Bjarnason, 10.4.2010 kl. 17:14
... jesús minn ... var ég að skemma fyrir með þessu rausi?
Ég vil ALLS ekki að Steini Briem láti sig hverfa, hef margoft skemmt mér afar vel inni á þessari bloggsíðu, ekki síst vegna hans innleggja - og annarra snjallyrðinga - þótt ég hafi kannski ekki sagt margt eða mikið - enda vonlaus í rímari.
Svo vil ég benda á að það er ekki allt fengið með FJÖLDANUM, heldur er það TRYGGÐ þeirra sem mæta þó - sem er verðmætust.
Steini minn, koddu til baka að kveðast á.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 10.4.2010 kl. 17:21
Ég biðla til þín Steini Briem
burt ei vil þig flæma.
Komdu á ný að kveða rím
í kotinu hjá Sæma.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.4.2010 kl. 17:45
Vonandi getur Steini ekki stillt sig um að svara þessu.
Kama Sutra, 10.4.2010 kl. 17:47
Í athugasemd við síðasta blogg segist Steini vera hættur. Segir að ég hafi kallað hann sníkjubloggara og vilji ekki draga það til baka. Ég hef bara misskilið þetta eitthvað. Auðvitað vil ég draga það til baka og allt til vinna að Steini haldi áfram að koma hingað og láta í sér heyra. Ég kann vel að meta hans framlag, bæði vísurnar og annað. Dreg þetta með sníkjubloggarana til baka. Ég er bara svo vitlaus að mér finnst allir vera að sníkjubloggast sem ekki skrifa bara eitthverjar afar stuttar athugasemdir. Orðhengilsháttur og ekkert annað.
Sæmundur Bjarnason, 10.4.2010 kl. 18:21
... sagði þér að "Gestabloggari" væri betra
Það vill enginn vera sníkill.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 10.4.2010 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.