942 - Hverjir stjórna Íslandi?

Hverjir eru það eiginlega sem stjórna á Íslandi? Ekki er það ríkisstjórnin. Ekki er það stjórnarandstaðan. Ekki er það Alþingi. Ekki er það forsetinn. Ekki er það Baugur. Ekki eru það slitastjórnir bankanna. Ekki er það pressan. Ekki eru það bloggarar og stjórnmálaskribentar. Kannski það séu bara Bretar og Hollendingar núna eftir að Amríkanar nenna þessari vitleysu ekki lengur. Nú, eða útrásarvíkingarnir. Þeir eru allavega að reyna að hrifsa til sín stjórnartaumana. Almenningur ræður engu frekar en venjulega.

Einn er sá maður sem gjarnan vill verða frelsari fósturjarðarinnar í De Gaulle stíl. Það er að segja ef honum tekst að hræra nógu mikið í kjósendum og koma í veg fyrir að margboðuð hrunskýrsla sjái nokkurntíma dagsins ljós.

Gæti trúað að ríkisstjórnin ætli sér að ráða því að þjóðaratkvæðagreiðslan fari ekki fram. Það gæti vel orðið það síðasta sem hún réði. Almenningur lætur ekki bjóða sér hvað sem er.

Létt bank á klósetthurðina.

„Ekki sturta niður þegar þú ert búinn."

Andskotinn, hugsaði Jakob. Ekki fær maður einu sinni að skíta í friði.

„Nú. Af hverju ekki?"

„Ég þarf að skoða hvað er eiginlega að þér", svaraði mamma hans.

„Alt í lagi", sagði Jakob og reyndi að vera ekki mjög reiðilegur í röddinni. Skeindi sig svo og þveitti pappírnum í klósettið. Stóð upp og sturtaði niður með tilþrifum.

„Æ, af hverju gerðirðu þetta?"

„Ég steingleymdi þessu bara." sagði Jakob og skaust útaf klósettinu. Fór í úlpuna sína og snaraðist út án þess að kveðja.

Þetta á að verða annaðhvort örsaga, smásaga, skáldsaga eða kvikmyndahandrit. Einhvern vegin verður að byrja . Er ekki frá því að þessi hugmynd um að sturta ekki niður sé frá Philip Roth komin. Man að ég las einhverntíma hrafl úr „Portnoys Complaint" og gott ef það var ekki einhver svona sena þar.

Auðvitað á maður samt ekki að vera að koma með svona yfirlýsingar ef maður ætlar í alvöru að skrifa eitthvað bitastætt. Betra að láta það bara koma.

Mín hugmynd er sú að Jakob sé bankamaður og  undir hælnum á mömmu sinni sem hann býr hjá. Annars á þetta bara eftir að koma í ljós.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

AGS stjórnar Íslandi. Það er eina skýringin á því sem látið er viðgangast. AGS réði því hvernig bankarnir voru endurreistir og AGS samþykkti hvernig afskriftir heimila og fyrirtækja skyldi skipt. Og núna er AGS að láta byggja álver í Helguvík og vinnur að því með hjálp stjórnvalda að útlendingar fjármagni virkjanirnar sem til þarf. Taktu eftir að Landsvirkjun á ekki að eiga þessar virkjanir. Spurningin er, getum við losað okkur undan prógrami AGS?

Getur verið að strákurinn heit Jón Ásgeir og búi í þakíbúð við Gramercy Park?  

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.2.2010 kl. 00:56

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Er ekki einmitt sagt að Bretar og Hollendingar segi AGS fyrir verkum. Það hefur mér skilist. Allavega ræður almenningur á Íslandi litlu.

Sæmundur Bjarnason, 25.2.2010 kl. 02:29

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

In the land of milk and honey,
they borrowed a lot of money,
a bunch of losers,
driving Land Cruisers,
have IKEA kitchens of fake mahogany.

Þorsteinn Briem, 25.2.2010 kl. 04:02

4 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Það er ekki hægt að stjórna því sem er stjórnlaust. Ástandið hér helgast af því að á Íslandi hefur ríkt stjórnleysi lengi. Ótakmarkað frelsi býður þeirri hættu heim að óvandaðir menn hugsi eingöngu um eigin hag en láti sig engu skipta hag annarra. Ég treysti engum lengur til að bera hag smælingjanna fyrir brjósti og þjóð, sem gerir ekki vel við þá sem minnst mega sín, á ekki skilið að vera til.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 25.2.2010 kl. 08:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband