2983 - Fastir liðir eins og venjulega

Sko, það er orðið nokkuð langt síðan ég bloggaði síðast. Kannski það sé best að skrifa (blogga) smá núna. Veit bara ekki hvað ég ætti að skrifa um. Það er minn Akkillesar-hæll. Ég veit svo lítið og er ekki sérfræðingur í neinu. Það væri þá helst að ég væri það (sérfræðingur) í að skrifa einhverja endemisdellu og endursegja fréttir. Merkilegt hvað margir lesa þetta þó. Kannski var það svo að þegar ég var yngri hafi ég haft einhverjar rithöfundargrillur. Það er samt löngu liðin tíð. Að ég skuli vera svona fastur í Moggablogginu er undarlegt í meira lagi. Þegar næstum allir aðrir eru komnir í árans Fésbókina. Halldór Jónsson ráðlagði mér fyrir nokkru að hafa bloggin mín bara nógu stutt, ef ég vildi öðlast einhverjar vinsældir. Þetta varð til þess að ég fór að lesa bloggin hans. Hann skrifar mikið um pólitíksk málefni og er mjög hægrisinnaður. Auk þess vitnar hann stöðugt í allskyns pólitíska langhunda. T.d. er aðdáun hans á Davíð Oddssyni og Trump Bandaríkjaforseta mikil. Ég aftur á móti legg þá nokkuð að jöfnu á neikvæðan hátt, nema hvað Davíð er greinilega betur gefinn en Trump.

Einhver sagði að á Moggablogginu væru bara sannfærðir últrahægrimenn og stórskrítnir karakterar. Ætli það hafi ekki verið Björn Birgisson í Grindavík sem sagði þetta. Hann lætur margt flakka og er talsvert lesinn. Kannski sagði hann það ekki nákvæmlega með þessum orðum, en meiningin var greinileg. Mér finnst aftur á móti að það séu stórskrítir karakterar sem eru sískrifandi á Fésbókina. Annars eru skrif af öllu tagi að komast úr tísku. Það eru myndirnar sem blífa. Helst að það séu hreyfimyndir eða réttara sagt vídeó- eða kvikmyndir.

Hef undanfarið verið að lesa bókina um Trump eftir frænku hans sem ólst upp með honum. Amazon bauð uppá kynningu á þessari frægu bók fyrir stuttu síðan. Ég skellti mér strax á þá ókeypis kynningu sem boðið var uppá í Kyndlinum mínum, sem satt að segja er talsvert aldraður orðinn af tölvu að vera. Ekki vildi ég samt eyða peningum í þessa bók, enda á ég erfitt með það. Dýr var hún samt ekki. Annars eru Trump og Kórónuveiran að verða eins og samvaxnir tvíburar í hugum flestra Íslendinga. Ætti ég kannski að bæta „held ég“ aftan við þessa setningu?

Af hverju skyldi það vera, sem lesendur mbl.is vilja umfram allt lesa um pólitík og persónuleg málefni. Ekki veit ég það svo ofboðslega gjarnan, en grunar að það sé að mestu eða a.m.k. miklu leyti ósjálfrátt. Hef t.d. tekið eftir því að ef ég fer á mbl.is í tölvunni minni, þá er ég undireins kominn annhvort á það sem Marta Smarta skrifar um fræga fólkið, giftingar, kynlíf og svoleiðis eða að öðrum kosti farinn að lesa um íþróttir. Furðulegt hvað auðvelt virðist að verða frægur þar fyrir tuðruspark og þessháttar.

IMG 5747Einhver mynd.


Bloggfærslur 23. júlí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband