2544 - Bloggskrif o.ţ.h.

Er bloggiđ ţerapía? Já, a.m.k. fyrir mig. Kannski er mitt blogg líka ţerapía fyrir einhverja ađra. Manni hćttir svolítiđ til ađ álíta sjálfan sig einstakan. Ţađ getur vel veriđ ađ einhverjir hugsi svipađ og ég. Fyrir ţá gćti mitt blogg veriđ eins og einhvers konar ţerapía. Ađ minnsta kosti lesa ţađ ótrúlega margir eftir ţví sem tölvan segir mér. Hún getur ađ vísu allsekki sagt mér hverjir lesa bloggiđ mitt. (Kannski gćti ég samt fengiđ IP-tölurnar einhvers stađar og sömuleiđis tímann og dregiđ mínar ályktanir af ţví.) En ég fć alltaf upplýsingar ţegar ég vil um hve margir hafi heimsótt mitt blogg.

Kannski verđur ţetta blogg mitt meira um blogg en flest önnur. Ath. Ţetta er viđvörun. Alls ekki er rétt ađ skrifa um hvađ sem er á netiđ eđa bloggiđ. T.d. finnst mér ađ margir skrifi sögur af krökkunum sínum án ţess ađ velta fyrir sér hvernig ţeim líkar viđ ţćr frásagnir ađ svo og svo mörgum árum liđnum. Ţađ sem manni finnst sjálfum vera krúttlegt og skemmtilegt kann ţeim ađ finnast ađ fáum árum liđnum vera leiđinlegt og mannskemmandi. Netiđ gleymir nefnilega engu. Kannski er fésbókin svona líka. Um ţessar mundir er hún í ţví ađ reka framan í mann eitthvađ sem mađur hefur skrifađ fyrir mörgum árum síđan. Sumt af ţví getur manni alveg fundist fyndiđ, en ekki er víst ađ öđrum finnist ţađ.

Mörgun finnst ađ ţađ sem ţeir skrifa á tölvuna sé bara fyrir einhverja útvalda. Svo er ţó ekki. Alltaf verđur ađ gera ráđ fyrir ađ ţeir sem síst skyldi rekist á ţetta einhverntíma í framtíđinni. Ţessvegna er best ađ venja sig á ađ skrifa ekki annađ á bloggiđ eđa í fésbókina en ţađ sem allir mega vita. Já, já ég veit ađ ţetta getur veriđ erfitt og ţessvegna er best ađ reyna ađ venja sig á ţađ sem fyrst. Sumir skrifa aldrei neitt og ţađ er kannski varlegast og vćnlegast. En svo eru ađrir líkir mér sem eru sískrifandi og stundum eru ţeir kannski skammađir af sínum nánustu fyrir ađ segja of margt. Ţarna er vandratađ međalhófiđ og kannski er bara best ađ skrifa sem minnst.

Bloggiđ er betra en fésbókin. Ţetta hef ég margsagt. En af hverju ćtli ţađ sé. Kannski týnist međ tímanum allt sem mađur skrifar á fésbókina, en ţó er ţađ ekki víst. Kannski skrifar mađur líka fyrir einhverja tilviljun eitthvađ meiriháttar merkilegt án ţess ađ vita af ţví fyrr en löngu seinna. Ef ţá nokkurntíma. Hugsanlega er ţessvegna betra ađ blogga en láta allt flakka á blessađri bókinni.

Assskoti er tafsamt ađ fletta í gegnum öll ţessi fjárans blöđ sem mađur ţarf endilega ađ gera. Laugardagsfréttablađiđ en t.d. hnausţykkt og eftir ţví ţungt. Ég er ekki einu sinni hálfnađur međ ađ fletta í gegnum ţađ. Sem betur fer er ţađ mestmegnis auglýsingar sem mađur getur veriđ fljótur međ. Svo ţegar ţađ er búiđ ţá á ég eftir ađ fletta í gegnum Jólablađ Skessuhorns. Ţar er hugsanlegt ađ eitthvađ tefji mann. Ég á viđ ađ ţar gćti veriđ eitthvađ sem mađur ţarf endilega ađ lesa. Sem betur fer fćkkar ört ţeim greinum sem ég ţarf endilega ađ lesa. Eđa er ég bara farinn ađ ađ eldast svona mikiđ? Hef bara áhuga á fćrri greinum semsagt.

IMG 2822Einhver mynd.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband