10.5.2015 | 10:50
2330 - Stafræni skugginn o.fl.
Oft er það svo að ég er varla búinn að setja upp blogg, þegar mér dettur eitthvað upplagt bloggefni í hug. Við þessu er ekkert að gera. Helst er að vona að þetta efni sé ekki tímabundið og eldist sæmilega. Ef ekki eru líkur á því, má alltaf setja það á fésbókina. Hún er að mestu tímalaus. Ekki hef ég afþakkað upprifjun á gömlum innleggjum þar, en ætti kannski að gera það. Þau trufla og eru einstaklega vitlaus.
Yfirleitt er mér nóg að vita að Jón Valur Jensson sé mótfallinn einhverju til að vera meðmæltur því. Þó er þetta ekki alveg einhlítt. Man samt ekki í svipinn eftir dæmum til stuðnings því. Hinsvegar dettur mér í hug moskan í Feneyjum sem dæmi um hitt. Mér hefur ætíð fundist Feneyja-tvíæringurinn sem svo er kallaður vera dæmi um mikið snobb. Samt finnst mér það vel til fundið hjá Íslendingum að eiga þátt í þessu með moskuna.
Svo vikið sé að íslenskri pólitík þá er því ekki að neita að líkur eru á að útlendingafóbía skipti miklu máli í næstu kosningum. Jafnvel meira máli en hin pólitíska rétthugsun. Auðvitað sýnist hverjum sinn fugl fagur og ég er t.d. ekki í vafa um að ég mundi taka pólitísku rétthugsunina framyfir útlendingafóbíuna. Vissulega er hægt að leggja þann skilning í þessi tvö hugtök (útlendingafóbíu og pólitíska rétthugsun) sem hverjum líkar. Þau lýsa samt stjórnmálalegum veruleika, sem flokkar verða að laga sig að. Sá flokkur sem tekur mjög einarða afstöðu til nógu margra mála er öruggur með lítið fylgi. Loðmullan er betri.
Stafræni skugginn. Hlustaði á RUV á leiðinni frá Akranesi til Reykjavíkur í morgun (sunnudag). Þar var rætt við Birgittu Jónsdóttur og m.a. rætt um stafræna skuggann okkar. Að hann skuli ganga kaupum og sölum hjá stóru alþjóðlegu fyrirtækjunum er í rauninni óheyrilegt. Mannréttindi á internetinu eru bókstaflega einskis virði meðan svo er. Tölvur þær sem stórfyrirtækin hafa yfir að ráða eru orðnar svo öflugar að milljarðar og næstu stig þar fyrir ofan eru smámunir einir. Sía má auðveldlega út þær upplýsingar sem hernaðaryfirvöld vilja hverju sinni og ekkert er hægt að gera án vitneskju þeirra. Hugsanalögreglan er á næsta leiti.
Bloggin eru alltaf að styttast hjá mér. Kannski er það góðs viti. Langhundar eru leiðinlegir. Ef ekki er hægt að segja það sem maður meinar í stuttu máli þá er eins gott að sleppa því. Eða skrifa skáldsögur.
Allt í einu er búið að setja á núll allar mínar bréfskákir á fésbókinni. Jæja, mér er svosem sama. Sennilega lítur svo út á Chess.com að ég hafi aldrei bréfskák teflt.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Vinirnir og íhaldsmennirnir Jón Valur Jensson og Jón Magnússon eru að tryllast út af Feneyjatvíæringnum.
Jón Valur ásakar Christoph Büchel um íllt innræti og blasphemy og nafni hans Magnússon fullyrðir að íslenska listaelítan hafi brugðist sem aldrei fyrr.
Auðvitað hefðum við átt að láta verðbréfasjóðinn GAMMA sjá um þetta, eða þannig.
Haukur Kristinsson 10.5.2015 kl. 16:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.