26.3.2013 | 22:05
1922 - Birgitta segir....
Stjórnmálaástandið er dálítið skrítið þessa dagana. Hræddur er ég um að Árna Páli þyki hann hafa leikið svolítið af sér með því að bjóða uppá þessar sögulegu sættir þegar allir aðrir voru í óða önn að gíra sig upp í kosningar. Árni Páll var nefnilega nýbúinn að ganga í gegnum slíkt og var svo feginn að það var yfirstaðið að hann hélt sennilega að allir aðrir hugsuðu líkt og hann.
Það er nánast óásættanlegt að fá bara að kjósa til alþingis á fjögurra ára fresti. Árlegar þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál ( ekki bara bjór og þessháttar ) gætu bætt hér svolítið úr. Sveitarstjórnarkosningar og forsetakosningar eru hálfgert ómark. Ólafur Ragnar hefur þó nýverið tekið uppá því að gera forsetakosningar eftirtekarverðari en venjulega. Nú styttist semsagt til alþingiskosninga og því er ekki að neita að Framsókn virðist ætla að ná ágætum árangri þar. Auðvitað má þakka ríkisstjórninni fyrir það, en þó held ég að hún hafi reiknað með að Sjálfstæðisflokkurinn fengi mest af því fylgi sem afgangs yrði eftir misheppnaða vinstri stjórn.
Konan mín segir stundum þegar hún segir mér eitthvað Ekki blogga um þetta. Og ég held að ég geri það ekki. Kannski er það helsti veikleikinn við bloggið hjá mér að ég skrifa bara um það sem mér finnst merkilegt. Og meira að segja ekki nema um sumt. Fjölskyldumál og einkamál reyni ég að leiða hjá mér. Enda held ég að fáir hafi mikinn áhuga á því. Lesendum mínum er samt að fjölga, sýnist mér. Líklega stafar það að mestu leyti af því að ég linka í Moggafréttir (sem mér finnst ekki mjög merkilegar) og auglýsi bloggið þar að auki á fésbókinni. Gamalmennablogg er þetta kannski kallað, en það er ekkert endilega neikvætt.
Stundum reyni ég að vera fyndinn, en stundum er ég grafalvarlegur þegar ég blogga. Auðvitað held ég að allir sjái hvort heldur er, en samt er oft vissara að gera ráð fyrir að það fattist illa. Reyni jafnvel stundum að gera grín að sjálfum mér, en viðurkenni fúslega að ég er enginn Þórbergur þegar kemur að því.
Sigurður G. Guðjónsson, sem eitt sinn var stjórnandi á Stöð 2 gerir í blaðagrein ráð fyrir að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur myndi stjórn að kosningunum í vor afstöðnum. Ráðherralisti hans er svona:
Forsætisráðherra: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson B.
Utanríkisráðherra: Bjarni Benediktsson D.
Fjármálaráðherra: Frosti Sigurjónsson B.
Innanríkisráðherra: Vigdís Hauksdóttir B.
Atvinnuvegaráðherra: Einar Kristinn Guðfinnsson D.
Mennta- og menningarmálaráðherra: Hanna Birna Kristjánsdóttir D.
Velferðarráðherra: Sigrún Magnúsdóttir B.
Umhverfisráðherra: Eygló Harðardóttir B.
Þetta gengur nú ekki alveg upp hjá honum því mér sýnist skiptingin vera 5:3 og hún er ólíkleg. Hins vegar er sennilegt að B fengi forseta þingsins og báðir flokkar hafa svosem fleiri ráðherraefni.
Svo er alls ekki víst að það verði B og D sem mynda næstu ríkisstjórn. Kosningarnar sjálfar eru eftir.
Einn skrifaði í athugasemdadálkinn hjá mér við síðasta blogg (athugasemd við athugasemd hmm) og las sennilega ekki bloggið áður. Ég skrifaði einmitt svolítið um Norður-Kóreu og gerði það viljandi að linka í þá frétt. Aðsóknin fór bara svolítið úr böndunum, en ég get ekki gert að því.
Eftir því sem Birgitta Jónsdóttir segir á fésbókinni er búið að semja um þinglok. Sennilega stendur þingfundur samt eitthvað framá nótt því ýmis mál þarf að klára. Gaman verður að vita hver áhrif þinglokanna verða á skoðanakannanir. Alls ekki er víst að þau áhrif komi fram alveg strax. Sjálfur get ég bara ítrekað það sem ég hef áður sagt hér á blogginu. Ég mun ekki undir nokkrum kringumstæðum ljá fjórflokknum eða aftaníossum þeirra mitt atkvæði. Píratana eða Lýðræðisvaktina finnst mér mun áhugaverðara að kjósa. Dögun kemur einnig til greina. Endurnýjun á Alþingi þyrfti að verða sem allra mest. Það er ekki nóg með að ríkisstjórnin hafi með öllu brugðist, alþingi hefur einnig gert það.
Birgitta segir samkomulagi náð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.