1435 - Verslunarmannahelgi

13Gamla myndin.
Ingţór Ólafsson, Ingibjörg Bjarnadóttir, Rósa Gísladóttir og Sigurjón Guđbjörnsson. Myndin er eflaust tekin á bókasafninu á Bifröst. Hjálpsamir menn ţeir Ingţór og Sigurjón.

Hversvegna er ég eins og ég er? Hvers vegna er ég ekki einhver annar? Hvers vegna er ég ekki bestur og klárastur allra? Hvers vegna er ég ekki eilífur eins og ég ćtti skiliđ?

Ţegar stórt er spurt verđur oft lítiđ um svör. Ţađ ćtti samt ađ vera vandalaust ađ svara ţessu? En, hver ćtti ađ svara ţví? Ţađ er vandamáliđ. Ef óviđkomandi svara ţessu er ég vís međ ađ taka ekkert mark á ţví. Ekki er líklegt ađ ađrir reyni ađ svara. Ţessvegna verđ ég sennilega ađ burđast međ ţessar hugsanir ţangađ til ég drepst og fć líklega aldrei nema óbein svör viđ ţeim.

Mér er ţađ mćtavel ljóst ađ ég undanskil mitt innsta eđli í ţessum bloggskrifum mínum. Skrifa ekkert um mitt persónulega líf og innstu og leyndustu tilfinningar. Flest bloggskrif eru ţannig. Sjálfsćvisögur líka. Ćvisögur og ćviţćttir fólks, sem óviđkomandi skrifa komast oft nćr manningum en hann mundi nokkurntíma gera sjálfur. Međ lífshlaupi sínu skráir hver mađur sögu sína á vissan hátt. Sú saga er oftast nćr stutt. Miklu styttri en viđkomandi heldur. Fáir eru eins merkilegir og ţeir halda sjálfir. Jafnvel ekki frćgustu menn. Allra síst ţeir sem frćgir eru ađ endemum. Sumum finnst ţó slík frćgđ skárri en ekkert.

Ţetta á ađ virđast djúphugsađ og er ţađ á vissan hátt. Persónulegt líf fólks og innstu tilfinningar er ţađ sem flestir vilja lesa og frćđast um. Held ég. Hversvegna skrifa ég ţá ekki meira um slíkt? Ţađ er afskaplega vandasamt og alveg ómögulegt án ţess ađ minnast á sína nánustu. Og ţeir eiga ţađ alls ekki skiliđ ađ veriđ sé ađ fjölyrđa um ţá viđ ađra. Ţađ sem ađrir hugsa um mann sjálfan er nefnilega ţađ sem mestu máli skiptir. Ţađ sem óviđkomandi fólk hugsar og talar um mann skiptir samt afar litlu máli. Hvađ manns nánustu hugsa um mann er lífiđ sjálf.

Eftir svona „speki“ ćtti ég ađ snúa mér ađ öđru. Verslunarmannhelgin er bara yfirleitt ein tíđindalausasta helgi ársins. Mér finnst ţađ engar fréttir ţó fólk hópist saman til ađ drekka sig fullt. Flest annađ er áhugaverđara. Svo er rigning eins og venjulega. Veđriđ er svosem ágćtt ađ flestu öđru leyti. Kannski ég skreppi út í gönguferđ.

Ljósmyndavélar eru sniđug tćki og ljúga ekki. En til ađ vita hvort ljósmynd er lygi ţarf mađur samt annađhvort ađ taka hana sjálfur eđa treysta tökumanninum mjög vel.

Ađ hvađa leyti er líf okkar frábrugđiđ lífi hinna aumustu og smćstu skorkvikinda á jörđinni? Jú, viđ höfum komist uppá lag međ ađ skilja eftir okkur ummerki. Ummerki sem viđ teljum okkur trú um í hroka okkar og sjálfsblekkingu ađ séu óforgengileg eđa a.m.k. lítt forgengileg. Hvort viđ erum svo eina lífsformiđ sem gerir sér grein fyrir keđju kynslóđanna vitum viđ auđvitađ ekki, en höldum ađ svo sé. Ef okkur tćkist ađ ná sambandi viđ líf annarsstađar í alheiminum mundi ţađ breyta mörgu. Kannski tekst okkur ţađ einhverntíma. Kannski ekki.

Kalli á Sunnuhvoli hét Eggert og ţađ er ekkert merkilegt viđ ţađ. Hét segi ég ţví hann hlýtur ađ vera dáinn. Kalli var náttúrulega verkstjóri hjá hreppnum og einhverju sinni var vinnuflokkurinn eitthvađ ađ grafa holur út um allt og Unnar Ben. bađ okkur krakkana ađ fara frá svo hann gćti séđ Kalla. Man ađ ţetta var ekki langt frá gamla barnaskólanum.

Ţá sagđi ég og ţóttist vera vođalega fyndinn: „Fariđ frá svo hann sjái ekkert.“ Gott ef einhverjir krakkanna hlógu ekki ađ ţessu.

Samkvćmt ţví sem segir á Eyjunni er ástćđa fangelsisfarsans sem nú er leikinn međ mikilli innlifun af stjórnmála- og fjölmiđlamönnum m.a. sú ađ sjálfstćđismenn og ađrir á Árborgarsvćđinu vilja ólmir fá fangelsiđ tíl sín. Í greinargerđ fá Eyţóri Arnalds og fleirum segir m.a.

„Vaxandi ţörf er á fangelsi sem annast afplánun meginţorra fanga í landinu, Litla-Hraun er best til ţess falliđ enda byggt á traustum grunni ţekkingar og ađstöđu.“

Ţetta finnst mér bara vera orđaleppur sem engin ástćđa er til ađ taka alvarlega. Ef bygging fangelsis hefur veriđ á döfinni síđastliđin fimmtíu ár hversvegna má ţá ekki bíđa í fáeina mánuđi ennţá? Ţađ er vitađ ađ einkaframkvćmd er mun dýrari en opinber. Var ţađ ekki einkaframkvćmdarfáviskan sem setti mörg sveitarfélög á hausinn?

IMG 6226Tveir bátar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband