8.2.2011 | 00:08
1264 - "Það er verið að flytja Heklu"
Merkilegt að sjá að Kaupfélagshúsið í Borgarnesi skuli vera á nauðungaruppboði og kallað gamla Kaupfélagshúsið. Þegar ég vann í þessu húsi var allt annað hús kallað Gamla Kaupfélagið" . Ég hefði vel getað fallist á að skemman á horninu á móti Alþýðubandalagshúsinu (sem heitir víst eitthvað allt annað núna) væri gömul. En ekki Kaupfélagshúsið sjálft.
Sé að þessi bloggárátta mín er ekki nægilega mikil til að blogga að jafnaði tvívegis á sólarhring. Best að sætta sig við að vera Miðnæturbloggari" og gera það almennilega.
Á margan hátt er það einkennilegt að Framsóknarflokkurinn skuli ekki ná neinni pólitískri viðspyrnu. Þar á bæ hefur samt margt verið gert til að reyna að auka vinsældir flokksins. Skipt var um forystu og yngt talsvert upp. Núverandi ríkisstjórn komst á laggirnar fyrir tilverknað flokksins og þannig mætti lengi telja. Samt eru vinsældir flokksins ekki að aukast í kosningum eða skoðanakönnunum.
Í skoðanakönnunum hefur ríkisstjórnin enn uppundir fjörutíu prósent stuðning. Það er mikið hvað sem hver segir. Þó er útlit fyrir að til tíðinda dragi áður en kjörtímabilinu lýkur. ESB-málið er svo eldfimt að ríkisstjórnin getur hæglega sprungið á því. Kannski er útspil Bjarna Benediktssonar núna einmitt af því tagi sem það er vegna komandi óvissu í því máli.
Skrifaði um daginn blogg um Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins. Auk þess að fá talsvert margar heimsóknir í framhaldi af því spunnust einnig nokkrar umræður í athugasemdum þar við Gunnar Gunnarsson bloggara og leigubílstjóra frá Reyðarfirði. Þetta er einskonar fésbókarumræða og ég bendi bara á hana vegna þess að umræður af þessu tagi fara oft framhjá fólki. Sérstakar athugasemdir berast held ég bara til þeirra sem taka þátt. Hugsanlega er það sama að segja um fésbókina.
Að sumu leyti er ég búinn að skipta um skoðun í Icesave-málinu. Ég er enn hlynntur því að semja um þetta mál. Þeir sem samningaleiðina vilja fara hafa þó hrakist úr hverri varnarstöðunni eftir aðra. Það að Bjarni Benediktsson skuli nú allt í einu vilja semja sannfærir mig bara um að stjórnmálaforingjar vilja halda áfram að ráða sem flestu hér á landi eins og þeir hafa löngum gert.
Lagarökin sem andstæðingar samkomulagsins benda á eru um sumt sannfærandi. Ekki er þó víst að hugsanlegur dómur (hvaða dómur?) verði eingöngu byggður á lagarökum. Málstaður andstæðinga samkomulagsins hefur unnið á með tímanum og heldur hugsanlega áfram að gera það. Þó held ég að málaferli yrðu Íslendingum óhagstæð mjög og biðin eftir úrslitum einnig.
Svo virðist sem andstæðingar Icesave ætli að einbeita sér að því að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Slíkt er skiljanlegt í ljósi forsögunnar. Útlit er fyrir að sem fyrr þurfi atbeina forseta landsins til slíks.
Öllum getur misskjátlast eins og segir í frægum málshætti.
Á sínum tíma og fyrir löngu síðan var hagyrðinga og spurningaþáttur í útvarpinu undir stjórn Sveins Ásgeirssonar. Hagyrðingar sem ég man eftir úr þeim þáttum eru: Helgi Sæmundsson, Steinn Steinarr og Karl Ísfeld. Af einhverjum ástæðum er mér einn botn úr þessum þáttum minnisstæðari en aðrir. Held að Helgi Sæmundsson hafi ort hann. Fyrripartinn man ég ekki. Seinni parturinn var svona:
Flöskustút ég fitla við
sem fékkst á rútubílastöð.
Það er ekki vegna þess hve góður þessi botn er sem mér er hann svona minnisstæður. Miklu fremur þvert á móti.
Öðru atriði úr þessum þáttum man ég einnig eftir. Sá þáttur var tekinn upp á Selfossi:
Sveinn: Er Hekla í Árnessýslu?"
Svar: Já."
Sveinn: Rétt."
Órói í salnum. Sveinn spyr með þjósti: Hvað gengur á?"
Rödd úr salnum: Það er verið að flytja Heklu."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)