4.2.2011 | 09:05
1258 - Bráðum kemur blessað vorið
Nú er ég byrjaður að bíða eftir vorinu. Mér er sama þó snjór sé yfir öllu núna. Finnst birtutíminn vera óðum að lengjast.
Aldrei hefði ég getað orðið rithöfundur. Til þess vantar í mig þolinmæðisgenið. Það kom líka í veg fyrir að ég yrði skákmeistari. Sú einsýni sem þarf til að ná árangri heillar mig alls ekki. Betra er að gutla við allan fjárann. Það er samt furða hvað það á vel við mig að skrifa. En bara ekki of lengi. Ef það verður einhver kvöð eða kvöl og pína þá er ég farinn.
Hef undanfarið verið að lesa bókina Billions and billions" eftir Carl Sagan Kosmólógía er vissulega áhugaverð vísindagrein. Vísindamenn segjast hafa vaxandi vísbendingar um að aðrar stjörnur en sólin okkar kunni að hafa plánetukerfi á borð við okkar sól. Ekki er rétt að afskrifa slíkar röksemdir og sá möguleiki að við gætum e.t.v. náð sambandi við vitrænt líf annars staðar í vetrarbrautinni er alls ekki útilokaður.
Vísindamenn athuga alltaf þann möguleika að ekki þurfi að gera ráð fyrir einhverju yfirskilvitlegu afli til að útskýra þau fyrirbrigði sem finnast. Það auðveldar mörgum að sættast við ófullkomleika tilverunnar að gera ráð fyrir einhverju yfirskilvitlegu en það er ekki víst að það sé nauðsynlegt. Þarna er ég kominn að mörkum trúarbragða og ekki rétt af mér að þykjast vita meira en aðrir.
Ekki er vafi á því að orkuþörf mannkyns stjórnar gerðum fólks, bæði stjórnmálamanna og annarra. Nú er orkuþörfinni einkum fullnægt með olíu og kolum. Sú rafhlaða sem þar er um að ræða mun einhvern tíma tæmast. Hvenær það verður er erfitt að spá um en víst er að þá verður að hverfa frá þeirri sóunarstefnu sem fylgt hefur verið allt frá byrjun iðnbyltingar.
Alls ekki er víst að olía gangi til þurrðar en verð á henni mun hækka. Kolaverð reyndar líka vegna umhverfisáhrifa af notkun þeirra.
Ætli við mennirnir séum ekki svona 6 - 8 milljarðar. Ég er löngu hættur að telja. Skiptumst í ýmsar þjóðir misstórar og misvoldugar. Gáfurnar" sem löngum hafa aðskilið okkur frá öðrum dýrum jarðarinnar og gert þau undirgefin okkur eru greinilega farnar að stuðla að tortímingu okkar. Tortímingin verður auðvitað ekki skyndilega heldur verður sókn voldugustu ríkjanna til að ráða orkulindum jarðar og sókn okkar allra eða langflestra til að njóta þeirra lífsþæginda sem forfeður okkar gátu aðeins látið sig dreyma um til þess að viðsjár aukast milli þjóða og bandalaga hverskonar.
Hnatthlýnunin og margt henni tengt ætti að gera okkur ljóst að stærstu vandamál mannkynsins eru sameiginleg og verða aðeins leyst með samvinnu þjóða.
Fáir frasar eru jafnofnotaðir og sá sem hljóðar oftast einhvernvegin þannig: Við eru ekki herrar jarðarinnar og höfum alls ekki fengið hana í arf frá forfeðrum okkar, heldur höfum við hana bara að láni frá börnunum okkar." Upphaflega held ég að þetta sé komið frá Indíánum Norður-Ameríku enda tilbiðja þeir jörðina og náttúruna á margan hátt meira og öðruvísi en aðrir. Sannleikur þessara orða á þó hvergi betur við en þegar rætt er um mengun þá af mannavöldum sem ýtir undir og kann að flýta endalokum okkar.
Nú er komið að því að fara að nýta eitthvað af þeim myndum sem ég tók í Kanaríeyjaferðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.2.2011 | 00:07
1257 - Listin að blogga
Listin við að blogga er að forðast málalengingar. Skrifa það í fáum orðum sem flestir segja í löngu máli og ítarlegu.
Nú er ég kominn til baka frá Kanaríeyjum og ætlast til að teljarinn hjá mér komist fljólega yfir hundraðið aftur. Er búinn að vera í fríi á Tenerife í sólskini og blíðu meðan skammdegið hefur vonandi verið alla að drepa hér heima á Fróni. Snjór og kuldi þekkist ekki þar. Þó var hálfkalt þegar við fórum upp í þjóðgarðinn við Teide-fjall einn daginn.
Já, ég er orðinn gamall en ekki alvitlaus. Fýldur að sjá oftast nær en ekki endilega í vondu skapi þó ég líti út fyrir það.
Von mín er sú að sá hópur fólks sem kosinn hefur verið eða kosinn verður á svonefnt stjórlagaþing standi alþingismönnum okkar langtum framar að flestu leyti. Þar ættu langflestir að vera yfir sérhagsmunina og flokksþarfirnar hafnir. Flokkarnir þykjast auðvitað eiga suma og sá áróður að þeir sem heima sátu í fyrstu kosningunum hafi með því verið að láta ýmislegt í ljós er alls ekki sannfærandi.
Þeir sem ekki kusu ákváðu að láta þá sem kusu ráða þessu. Þannig er það ávallt í kosningum og hefur alltaf verið. Bollaleggingar um annað eru marklausar og að engu hafandi.
Úrskurður hæstaréttar um þetta mál er fremur óvandaður. Líklega verður hann kærður til yfirþjóðlegs dómstóls og má búast við að málsmeðferð þar taki langan tíma. Þannig má búast við að tilraunin sem gera átti til þess að smíða nýja stjórnarskrá sé eyðilögð nema Alþingi geri aftur tilraun til að halda kosningar til stjórnlagaþings.
Og enn safna strákar rakettuprikum. Þessi mynd er tekin á Nýársdag síðastliðinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)