936 - Ruddaleg skrif

Jónas Kristjánsson heldur því fram að bloggskrif séu ruddaleg af nauðsyn og eigi að vera það. Þessi skrif hafa breytt þjóðfélaginu mikið. Fólk vill sjá markviss og beitt skrif um bankahrunið og margt fleira. 

Annars er ég að hugsa um að hætta alveg að skrifa um Icesave, bankahrun og þessháttar leiðindi. Að minnsta kosti þangað til eitthvað afdrifaríkt gerist. Áður var sagt að loksins væri tími Jóhönnu kominn. Kannski er hann farinn núna.

Í yrkingum finnst mér gaman að prjóna við eitthvað sem aðrir hafa gert. Áðan var ég til dæmis að hugsa mikið um setninguna „Ein ég sit og sauma." Þá varð þetta til:

Ein ég sit og sauma
svipur beisli og tauma.
Lipri hendi lauma
læra milli á fund.

Best að halda ekkert áfram með þetta.

Ég get líka sett saman eitthvert bull sjálfur hjálparlaust. Til dæmis þetta:

Í Bretavinnunni byrjaði sviksemi landans
brauðið hann fékk án þess að leggja sig fram.
Öll okkar eymd er frá Tjallanum komin
með aðstoð og hjálp frá amríska draumnum.
Hann fjallaði um endalaust peningamagn.
Reddingar margar og reykingar stórar.
Útrásarvíkingar fóru með eld
umhverfis allt sem öðrum var heilagt.
Himininn hrynur í hausinn á oss.

Var að enda við að lesa bókina „Læknir í þrem löndum." Endurminningar Dr. Friðriks Einarssonar færðar í letur af Gylfa Gröndal. Ágætis bók og útgefin árið 1979. Hvernig ætli standi á því að ég er farinn að verða því hrifnari af bókum sem þær eru eldri? Einu sinni var þessu alveg öfugt farið. Þá vildi ég alltaf hafa bækurnar sem nýjastar.

Oft er sagt að bloggarar séu upp til hópa kverúlantar og uppfullir af gagnrýni. Þetta er ekki allskostar rétt. Hugsanlegt er að þeir séu jákvæðir gagnvart öllu sem þeir minnast ekki á.


Bloggfærslur 19. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband