902 - Skák og mát

Nýlokið er í London gríðarlega sterku skákmóti. Auðvitað var það Magnús Carlsen sem sigraði á mótinu. Hann er norskur og okkur Íslendingum að góðu kunnur. Stigahæstur skákmanna í heiminum og alls ekki lítill lengur. Á þessu móti tefldu meðal annarra Englendingarnir Luke McShane og Nigel Short. Sín á milli tefldu þeir óralanga skák. Hún varð heilir 163 leikir og þá loksins náði McShane að vinna. 

Lengsta skák sem vitað er um var tefld árið 1989 og var heilir 269 leikir. Það voru Ivan Nikolic og Goran Arsovic sem þar leiddu saman hesta sína. Sú skák endaði reyndar með jafntefli.

Lengsta skák sem lokið hefur með sigri var tefld fyrir tveimur árum og það var Alexandra Kosteniuk núverandi heimsmeistari kvenna sem sigraði Laurent Fressinet í 237 leikjum. Sú skák hefði raunar átt að enda í jafntefli því í síðustu 116 leikjunum var hvorki leikið peði né maður drepinn svo 50 leikja reglan svokallaða hefði átt að valda því að hægt væri að krefjast jafnteflis.

Talibanar eru ekki hátt skrifaðir um þessar mundir. Eru þó ýmist studdir af Rússum eða Bandaríkjamönnum. Þegar þeir eru ekki að sprengja ómetanlegar styttur í loft upp er sagt að þeir séu annað hvort að berja konurnar sínar eða rækta eiturlyf til að selja saklausum börnum á Vesturlöndum. 

Sem titrandi talibani.
tauta ég þakkargjörð.
Rússneskur kall eða kani
kaupir mín lambaspörð.

Einu sinni var ég alveg „húkkt" á Formúlu eitt og aðalátrúnaðargoð mitt þar var að sjálfsögðu Michael Schumacher. Ég byrjaði að horfa á Formúluna þegar hann keyrði í fyrsta sinn fyrir Ferrari, þá tvöfaldur heimsmeistari. Auðvitað átti hann svolítið erfitt uppdráttar í fyrstu, en fljótlega fór hann að láta finna fyrir sér. Nú er sagt að hann ætli að byrja aftur. Það líst mér illa á. Samt getur allt skeð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

'Ég hélt alltaf með þeim finnska,Haakeninen, fyrirgefðu man ekki hvernig það er skrifað,en heitir áhugamenn skilja hvern átt er við.       Nýasta afurð Íslendinga til útflutnings,gætu orðið lambaspörð.

Helga Kristjánsdóttir, 21.12.2009 kl. 00:27

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hann heitir Hakkinen (tvær kommur yfir a-ið finn ég ekki á lyklaborðinu) og eitt sinn þegar hann var heimsmeistari var annar finni sem Makkinen hét heimsmeistari í rallakstri. Þegar Hakkinen var uppá sitt besta var máltækinu fræga breytt og sagt: "To win a race you have to be finnish" (ekki to finish eins og áður var).

Sæmundur Bjarnason, 21.12.2009 kl. 01:05

3 identicon

ä það er e á finnsku, er pílan fyrir neðan (Caps Lock) og síðan punktarnir 2, efst lengst til vinsti. Er ég búinn að flækja þetta um of? Häkkinen, Mäkkinen o.s.f.

Eingöngu til að létta þér lífið.

Ólafur Sveinsson 21.12.2009 kl. 08:03

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Ólafur. Þetta er eflaust rétt hjá þér. Gallinn er bara sá að menn eru með mismunandi lyklaborð og tölvurnar settar upp á mismunandi hátt. Það er líka svo sjaldan sem maður þarf að nota svona lagað og mér er eiginlega sama hvort skrifað er Hakkinen eða eitthvað annað.

Sæmundur Bjarnason, 21.12.2009 kl. 11:36

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú geta Íslendingar ekkert lengur í skák miðað við það sem áður var. Gullöldin er liðin og ekki er hægt að skapa aðra slíka með einhverju ''átaki''. Skákáhugi þjóðarinnar er líka miklu minni en hann var.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.12.2009 kl. 13:56

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ólafur, nú er ég búinn að fatta þetta Häkkinen og Mäkkinen mál. Passa bara að setja puktana á undan a-inu. Shift-takkann sem þú talar um notar maður líka (með enter) til að fá ekki auða línu milli ljóðlína í vísum (það er að segja í Moggabloggs-ritlinum)

Sigurður. Fjölmiðlar á Íslandi eru nánast alveg hættir að fjalla um skák. Áhuginn er ekkert endilega minni. Þjóðum sem stunda skák að einhverju marki hefur líka fjölgað mikið.

Sæmundur Bjarnason, 21.12.2009 kl. 16:36

7 identicon

Var alltaf jafn undrandi á línu bilinu milli ljóðlínanna. Veit betur næst.

Ólafur Sveinsson 21.12.2009 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband