Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

82. blogg

Ég var að enda við að lesa bókina óvinir ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson.

Þetta er um margt athyglisverð bók og það kemur mér satt að segja ekki á óvart að þessi mál og bók Guðna skuli einmitt vera í fréttum í dag.

Mér finnst þó standa uppúr að menn eins og Jón Baldvin Hannibalsson og fleiri hafa haldið því fram að mun meira hafi verið hlerað á kaldastríðsárunum en hægt er að segja að sé staðfest í bók Guðna.

Ef mönnum sem líklegt er að hafi ítarlegri vitneskju um þessi mál en fram hefur komið, væru fyrirfram gefnar upp sakir hvað varðar hugsanleg trúnaðarbrot, ætti að koma í ljós hvort hleranir hafi verið umfangsmeiri en Guðni telur sannað.

Skiljanlegt er að núverandi dómsmálaráðherra skuli reyna að koma í veg fyrir ítarlegri athuganir á þessum málum og e.t.v. er þetta mál ekki nógu stórt til að koma til kasta ríkisstjórnarinnar allrar, en þó gæti vel átt eftir að gerast eitthvað í þessum málum á næstunni.

Einnig er mjög athyglisvert að sannað virðist vera að frumgögn í þessum málum hafi verið eyðilögð og enn hefur enginn verið látinn gjalda þess.

Sitthvað fleira í sambandi við þetta allt er líka með öðrum hætti en vera ætti. T.d. hvað snertir aðgengi aðila að upplýsingum um þessi mál og þáttur Þjóðskjalasafns og hvenær og hvernig gögnum er komið þangað.


81. blogg

Mér sýnist Hlynur Þór Magnússon vera búinn að yfirgefa pleisið. Myndin af honum er nú samt þarna ennþá.

Ég hef reynt að gera það að vana mínum að líta öðru hvoru á blogg allra minna bloggvina og nú bregður svo við að það gefur engan árangur að ýta á myndina af Hlyni. Það finnst ekki neitt.

Það getur svosem vel verið að sumum ofbjóði vitleysan sem hér veður uppi en mér finnst vel hægt að láta hana ekki trufla sig. Bloggsvæðið sjálft virðist mér vera mjög notendavænt og þó sumir bloggararnir hér séu dálítið skrýtnir þá finnst mér það ekki gera neitt til. Ég þarf ekkert að lesa það sem þeir skrifa.

Ritræpan hér á Moggablogginu er nú samt alveg óskapleg. Það er ekki nokkur leið að fylgjast með því öllu. Sem betur fer eru bloggvinir mínir ekki það margir að þó ég reyni að líta á bloggin þeirra sem oftast þá tekur það ekki ýkja langan tíma. Helst að Bjarni Harðarson missi sig í pólitíska langhunda.

Einnig reyni ég sem oftast að líta á þau blogg sem linkar eru á af síðunni minni. Þar fyrir utan er það miklum tilviljunum háð hvað blogg ég skoða hverju sinni. Oft verða einfaldlega þau vinsælustu eða nýjustu fyrir valinu og stundum klikka ég á blogg sem tengjast fréttum á mbl.is.

Ég hef nú fremur lítið bloggað undanfarið þó ýmislegt hafi svosem ég dagana drifið. Nýr ísskápur er kominn í notkun heimilinu. Afburðaflottur og með tvær hurðir enda frystiskápur að neðanverðu. Eru kóngar alltaf með upphaus og niðurhaus spurði Benni eitt sinn fyrir margt löngu eftir að hafa skoðað spilastokk vel og lengi.

Á sunnudaginn fyrir rúmri viku vorum við plötuð í afmælisveislu til Hafdísar Ben. og þar hitti ég meðal annars Þóri E. Gunnarsson og svei mér ef hann kom ekki inn hjá mér löngun til að fara í bekkjarferð næsta sumar með Bifrastarbekknum mínum.

Keyrði Jóa nokkrum sinnum um helgina uppá spítala þar sem hann fékk sýklalyf í æð. Borðuðum hjá Benna á laugardaginn og þar var Siggi Grétars. Bjarni er svo farinn að sofa á Auðbrekkunni því ekki eru nema nokkrir dagar þangað til hann fer til Bahamas.

Á sunnudaginn var fórum við í brúðkaupsafmæli til Ellu og Sævars. Þangað kom Kiddy og var fremur brugðið enda eflaust ekki skemmtilegt að lenda í því sem hún lenti í, það er að taka á móti deyjandi manni niður við Sundlaugar.


80. blogg

Fyrir nokkrum árum var haldið á Íslandi hjá Háskólanum í Reykjavík heimsmeistaramót tölvuforrita í skák.

Flestir viðurkenna núorðið að tölvuforrit séu betri í skák en bestu stórmeistarar. Jafnvel ódýr forrit sem hægt er að nota á hvaða sæmilegri tölvu sem er standa stórmeisturum á sporði. A.m.k. gera þau ekki stórfelld glappaskot, þó eflaust megi sitthvað segja um snilldina.

Á þessu móti var það Yngvi Björnsson sem bar hitann og þungann af undirbúningnum. Ég kynntist honum svolítið í sambandi við þetta mót því tvö af þeim skákforritum sem tóku þátt í því voru munaðarlaus.

Það er að segja: Eigendur þeirra eða forritarar gátu af ýmsum ástæðum ekki fylgt þeim til Reykjavíkur, en vildu samt sem áður að þau tækju þátt í mótinu og þess vegna þurfti að útvega menn sem gætu fært mennina fyrir þau og stjórnað skákklukkunni ásamt því að tala við skákstjórann þegar þess þurfti með.

Eftir ábendingu frá Bjarna syni mínum var ég beðinn að sjá um að stjórna öðru af þessum forritum. Reyndin varð þó sú að ég stjórnaði þeim til skiptis ásamt nokkrum öðrum.

Ætli ég hafi ekki setið við skákborðið í svona sex eða sjö umferðum af níu eða tíu. Ég man þetta ekki nákvæmlega, en áreiðanlega er þetta eina heimsmeistaramótið sem ég hef tekið þátt í.

Fram að þessu hefur verið talið að tölvuforrit væru vel til þess fallin að hjálpa skákmönnum. Í þessu tilfelli var hlutunum snúið við þar sem það voru tölvuforritin sem þurftu smáhjálp, sem reyndar tengdist bara ytri umgerð mótsins. Forritin sjálf sáu alfarið um að ákveða leikina.

Það hefur áreiðanlega kostað bæði fé og fyrirhöfn að fá þetta mót hingað til lands. Ástæðan fyrir því að Háskólinn í Reykjavík og Yngvi Björnsson lögðu það á sig að fá mótið til Íslands var einkum sú að við skólann voru og eru stundaðar markverðar rannsóknir á gervigreind.

Nú hefur það komið í ljós að þetta hefur ekki verið til einskis gert. Það var einmitt alveg nýlega sem skýrt var frá því í fréttum að tekist hefði að leysa gátuna um dammið, sem er talsvert einfaldari leikur en skák og áðurnefndur Yngvi Björnsson var einn af aðalhöfundum greinar þeirrar sem birtist um málið í þekktu vísindatímariti.

Reyndar er damm svo einfaldur leikur að margra áliti að það er ekki spennandi lengur að halda mót í dammi. Sú hefur þó ekki alltaf verið raunin, því ég man eftir því að fyrir allöngu síðan voru menn sem lögðu talsvert á sig við að spila þetta spil. Mót voru haldin og meistarar útnefndir.

Þó nú hafi tekist að sýna fram á hvernig spila skal damm held ég að talsvert langt sé í að það sama verði gert við skákina. Ég ímynda mér a.m.k. að hún sé töluvert flóknari en damm. Margir mundu eflaust segja að hún væri margfalt flóknari, en hvað veit ég. Mín vegna gæti verið búið að leysa gátuna um skákina eftir svona 20 - 50 ár.

Gaman væri ef Yngvi Björnsson eða einhverjir aðrir mundu skrifa grein um hvernig þetta altsaman var gert og um þetta tölvuforrit sem fann það út að með bestu spilamennsku er ekki hægt að vinna í dammi. Því hlýtur alltaf að ljúka með jafntefli, ef báðir aðilar leika ætíð besta leikinn.


79. blogg

Jæja, þá er Bjarni frændi minn Harðarson lentur í klónum á kjaftaskinum Össuri.

Ég sá viðtalið við Bjarna á Stöð 2 og datt strax í hug að vel mætti búast við athugasemdum við sumt af því sem hann sagði, en ég átti ekki von á þeirri dembu sem Össur sendir frá sér.

Mér finnst eins og Bjarna að svonalagað sæmi ekki ráðherra. Hann lætur eins og einhver andskotans bestía. En þetta er hans háttur. Auk þess að vera kjaftaskur þá er maðurinn ritfær í besta lagi.

Mér finnst Össur hafa breyst talsvert eftir að hann beið lægri hlut fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. Jafnvel að hann sé orðinn vandamál fyrir Samfylkinguna.

Ég er ekkert viss um að ágreiningur milli manna í þessu Valhallarmáli sé mikill. Þingvallanefnd er ekki hafin yfir gagnrýni og mörg vitleysan hefur þar verið gerð.

 

Starfsemi Netútgáfunnar sem ég stjórnaði ásamt Bjarna, Benna og Hafdísi hófst í janúar árið 1997. Ég man eftir því að á afmælisdag Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember árið áður var heilmikið húllumhæ og dagurinn kallaður "dagur íslenskrar tungu". Það munaði ekki miklu að okkur tækist að hefja starfsemina þá en það tókst þó ekki, svo það drógst fram í janúar 1997.

Það var Hafdís sem átti hugmyndina að Netútgáfunni og nafninu á henni. Upphaflega var hugmyndin sú að vinna að þessum málum í samvinnu við Ísmennt þar sem ég var félagi, en þá varð það fyrirtæki gjaldþrota og fékk því aðeins að halda áfram að eingöngu væri þar skólafólk. Björn Davíðsson sem þá stjórnaði Snerpu á Ísafirði leyfði mér að hafa skrár Netútgáfunnar á tölvu fyrirtækisins og þannig komst útgáfan á Netið.

Margs er að minnast frá þeim árum þegar starfsemi Netútgáfunnar stóð sem hæst. Lengi vel settum við alltaf eitthvert efni á vefsetur útgáfunnar í hverjum mánuði. Yfirleitt var það svo að Benni skannaði efni og ég las það yfir og leiðrétti, html-aði það síðan, sem við kölluðum, og setti svo með ftp-forriti á vefsetrið. Í þá daga þurfti að setja html merki handvirkt inn í textann og einnig þurfti ég í hverjum mánuði að breyta svo og svo mörgum menú-um sem voru í sérstökum skrám.

Það var síðan um haustið 2001, ef ég man rétt, sem starfsemi Netútgáfunnar lauk, ef svo má segja. Það hefur ekkert nýtt efni verið sett síðan þá, en að sjálfsögðu er efnið þarna ennþá og ég held að það sé eitthvað notað.

Margir kannast við Netútgáfuna og það er örugglega með því merkasta sem ég hef gert, að koma henni á laggirnar. Hún var þó auðvitað barn síns tíma og þó ég mundi gjarnan vilja taka þráðinn upp aftur, þá þyrfti mörgu að breyta þar.


78. blogg

Í sjónvarpsfréttum í kvöld var hvað eftir annað staglast á orðinu íturvaxinn og ég sá ekki betur en það orð væri notað um Hómer Simpson. Í mínum augum er sá karakter langt frá því að vera íturvaxinn. Hann er beinlínis feitur.

Ef það er raunverulega svo að orðið íturvaxinn er í huga fólks farið að tákna feitur eins og ég hef lúmskan grun um að sé, þá er þar um athyglisverðan viðsnúning.

Mér heyrðist líka vera minnst á kanínur í fréttum í kvöld og það minnir mig á að mér kom á óvart að Benni er greinilega fluttur nánast út fyrir bæinn (Norðlingaholt - Helluvað) því þar virðast vera kanínur á hverju strái. Eflaust lifa þær villtar í skóginum í kringum Elliðavatn og  koma sennilega inn í byggðina í forvitnisskyni.

Og svo eru það skák-krakkarnir. Þau stóðu sig reglulega vel og rétt er að minna á að Salaskóli er að sjálfsögðu í Kópavogi.

Ég hjó eftir því að í fréttum voru nöfn krakkanna lesin upp og nafn einu stelpunnar í hópnum var lesið síðast. Ég  hef samt trú á því að Jóhanna Björg hafi verið á fyrsta borði í sveitinni. Systir hennar sem er 8 ára gömul og heitir Hildur Berglind fer væntanlega á heimsmeistaramót í skák í haust.

Hvurslags er þetta? Eintómar tilvitnanir í fréttir, eða hvað? Nei, nú skulum við hætta.

 

Það er merkilegt hvað maður gat unað sér við lítið hér áður og fyrr. Í mínu ungdæmi var ekki sími á heimilinu, sjónvarpið var ekki komið, en hægt var að hlusta á útvarp og fyrir utan dagblöðin (þ.e.a.s. Moggann) var það eiginlega eina daglega tilbreytingin. Bíósýningar voru í hótelinu svona tvisvar í viku, en ég hafði ekki efni á að fara þangað nema stöku sinnum.

Vinsælt var að leika sér við hitt og þetta heimavið.

Ég man vel eftir einum leik sem mamma (eða amma) kenndi okkur, en hann var svona: Tveir þátttakendur setjast flötum beinum á gólf, spyrna saman iljum, takast í hendur, vagga sér fram og aftur og kyrja vísuna:

Við skulum róa á selabát

fyrst við erum fjórir.

Það eru bæði þú og ég

stýrimaður og stjóri.

 

Ég man að mér þótti vísan fyndin, einkum fjöldaósamræmið.

Að flá kött var líka vinsælt. Þá átti að halda sér uppi á bita með fótunum og fara úr einhverri flík meðan hangið var þannig, án þess að taka með höndum í bitann.

Eitt enn var að „rífa ræfil upp af svelli". Þá var einhver reistur upp sem lá á gólfi með því einu að taka um hnakka hans.


77. blogg

Arabar sumir hverjir eru sagðir kvíða þeim degi þegar jarðolía gengur til þurrðar eða svo dýrt verður að vinna hana að það borgar sig ekki.

 

Á sama hátt megum við Íslendingar kvíða þeim degi þegar allar veiðar úr sjó verða bannaðar eða verða hættar að borga sig. Þannig er með veiðar á landi, afurðir sem þær skapa eru fyrir löngu hættar að hafa efnahagslega þýðingu.

Það getur vel verið að þessi tími sé langt undan, en ég er sannfærður um að hann kemur. Ræktun og eldi allskyns sjávardýra og hvers kyns sjávargróðurs mun að sjálfsögðu koma í staðinn fyrir þær veiðar sem nú fara fram í hafinu og ekki er útilokað að Mörlandinn geti gert sig gildandi þar.

Auðvitað eru sjávarútvegsmálin mál málanna um þessar mundir og munu halda áfram að vera það a.m.k. öðru hvoru allt þar til bann við veiðum í sjó tekur gildi.

Það hvort kvótaveiðar svokallaðar séu skynsamlegur eða ekki og hvort brottkast sé mikið eða lítið kemur þess vegna til með að hafa því minni þýðingu sem tímar líða.

Hinsvegar hlýtur það að hafa mikil áhrif á afkomu fólks í sjávarbyggðum umhverfis landið hvernig veiðum er háttað og ekki er nein furða þó stuðningsmenn svokallaðra byggðarsjónarmiða hafi hátt um þessar mundir, þegar fiktað er við sjálfar undirstöður sumra byggðarlaga og það jafnvel með veikum rökum.

Mér finnst þó stundum skorta á skilning fólks sem ræðir þessi mál. Það er að sjálfsögðu lúxus að lifa úti á landi og ekkert óeðlilegt við að fólk greiði fyrir það beint eða óbeint. Þannig hefur það alltaf verið og þannig verður það áfram, hvað sem öllum mótvægisaðgerðum líður.


76. blogg

Stórfrétt dagsins: Hundurinn Lúkas er hugsanlega á lífi. Svei mér þá. Ótrúlegt. Yfirþyrmandi.

Annars var ég klukkaður um daginn, en eftir ítarlega umhugsun hef ég áhveðið að taka ekki mark á því og láta sem óklukkaður sé.

Á föstudaginn í síðustu viku fórum við Áslaug til Hveragerðis og þar heimsóttum við Ingibjörgu og Hörð og líka Lísu og Bjössa.

Ég veit svosem ekki hvers vegna ég er að þessu bloggi. Mest af því sem ég heyri frá öðrum um þetta er fremur neikvætt. Margir þykjast of fínir til að skrifa blogg, eða eiga kannski ekki gott með að tjá sig með þessum hætti. En mér er fjandans sama. Ég skrifa um það sem mér sýnist, ekki til þess að geðjast einhverjum öðrum.

Eiginlega hef ég bara oft á tíðum gaman af að tjá mig með orðum á blaði. Sjá hlutina svart á hvítu eins og sagt var hérna áður og fyrr. Sumir bloggarar hafa einmitt snúið þessu við og láta stafina vera hvíta á svörtum grunni. Fyrir utan hvað mér finnst slíkt ljótt, þá er líka miklu verra að lesa slíkt letur og yfirleitt læt ég það vera að lesa slík blogg og heimsæki þau ekki oftar en einu sinni, nema óvart sé.

Vignir kláraði að leggja parkett á íbúðina hjá Benna í gærkvöldi eftir að hafa unnið við það um helgina. Benni setti hendina í sög sem notuð var til að taka neðan af hurðakörmum svo koma mætti parkettinu undir. Hann meiddist illa á einum fingri og þurfti að fara á slysvarðstofuna. Líklega hefur þetta þó ekki alvarleg eftirköst.

Bjarni er búinn að koma bókahillu einni mikilli og slatta af bókum til okkar í Kópavoginum og nú ætti að vera nóg að lesa á næstunni. Slatta af skákbókum og skákblöðum gaf hann Taflfélaginu. Hann er nú sem óðast að búa sig undir flutninginn til Bahama.

Veðrið heldur áfram að vera einstaklega gott eins og verið hefur undanfarnar vikur. Sólskin og blíða uppá hvern einasta dag.

Sigurður Þór Guðjónsson er nú kominn aftur úr ítarlegu sumarfríi og farinn að blogga. Mest um veður og þ.h. sýnist mér, en vonandi eitthvað fleira með tíð og tíma.

Harpa Hreins er líka farin að sýna lífsmark eftir að ekkert hafði heyrst frá henni síðan í síðasta mánuði.

Það fór eins og mig grunaði að allt fór upp í loft á skákhorninu og Snorri fór í fýlu og hætti að mestu að skrifa um Luxemborgarmótið. Áreiðanlega meðal annars vegna þess að honum fór að ganga hálfilla. Torfi og Sævar reyndu líka að pirra hann eins og þeir gátu. Það er alveg óhætt fyrir mig að skrifa um þessa skákmenn hérna því þeir munu áreiðanlega ekki lesa þetta. Annars væru þeir vísir til að ráðast á mig með látum.

Ingibjörg lánaði mér bók frá Sögufélagi Árnessýslu þar sem meðal annars er frásögn af engjaheyskap í Ölfusforum um miðja síðustu öld. Það er Tommi frá Þóroddsstöðum sem lengi var í lögreglunni á Selfossi sem skrifar þessa frásögn, sem er áhugaverð og merkileg að mörgu leyti.


75. blogg

Dofri Hermannsson segir á sínu bloggi að hverasvæðið á Ölkelduhálsi sé  einstakt. Það er vissulega rétt hjá honum, en á margan hátt má segja það sama um Hengilssvæðið allt.

Gallinn við gufuaflsvirkjanir er ég hræddur um að sé sá, að þær hljóta alltaf að verða í námunda við falleg og sérkennileg svæði. Þess vegna er ég svolítið beggja blands um það hvort eðlilegt sé að Orkuveita Reykjavíkur nýti sér orkuna sem þarna er í iðrum jarðar.

Hverasvæðið á Ölkelduhálsi, ásamt hverunum og heita læknum niðri í Klambragili eru þó eflaust þeir staðir á þessum slóðum sem auðveldast er að laða ferðamenn að.

Að einhverju leyti er það nú þegar gert. Ég held að þeim fari sífellt fjölgandi sem leggja leið sína upp Reykjadal og inn í Klambragil til þess að baða sig í heita læknum sem þar liðast um grundir og á sinn þátt í því að Varmáin sem rennur í gegnum Hveragerði er eins heit og hún er.

Því miður hafa Eldhestar að ég held stundað það undanfarin ár að fara með ferðamenn á hestum um þessar slóðir og víða er land mjög troðið og útsparkað eftir þá.

Þegar ég var að alast upp í Hveragerði um miðja síðustu öld var mjög vinsælt að fara í útilegur upp í Klambragil. Þar átti skátafélag Hveragerðis skála við heita lækinn og þar lágum við oft við í eina eða tvær nætur og fórum í gönguferðir um nágrennið. Heimsóttum jafnvel skátana í Þrymheimum og Jötunheimum undir Skarðsmýrarfjalli, gengum á Hengilinn og fórum jafnvel niður undir Þingvallavatn framhjá Álftavatni, Kattartjörnum og Djáknapolli og gengum í leiðinni á Hrómundartind og Súlufell.

Þessi skáli held ég að hafi fokið seinna meir og það var ekki fyrr en löngu seinna sem Orkuveita Reykjavíkur lét reisa skála upp í hlíðinni skammt frá Klambragili við leiðina yfir í Grensdal (sem sumir kalla Grændal)

Í Grensdal er miklill jarðhiti og jarðmyndanir þar óvenju skrautlegar og margbrotnar.

Þegar Hengladalsá, Reykjadalsá, Grensdalsá og Sauðá koma saman verður Varmá til. Þegar Varmáin kemur síðan niður í Ölfus ekki langt frá Völlum og fer að nálgast Ölfusforirnar kallast hún Þorleifslækur. Þetta þótti mér alltaf dálítið merkilegt í gamla daga. Að svona margar ár þyrfti til þess að mynda einn læk.

Hverasvæðið á Ölkelduhálsinum fyrir ofan Klambragilið er á allan hátt miklu tilkomumeira en hverirnir sem þar mynda heita lækinn. Hverirnir á þessu svæði eru af öllum mögulegum gerðum og stærðum. Gríðarstórir hverir sem eru eins og lítil stöðuvötn, leirhverir, gufuhverir og eiginlega allskonar hverir.

Á sínum tíma stóð til að leggja háspennulínu til álvers sem rísa átti á Keilisnesi yfir hverasvæðið á Ölkelduhálsi. Eitt mastrið átti að ég held að standa rétt við glæsilegasta hverinn á svæðinu. Þessu mótmæltu fáir, enda voru þeir eflaust ekki margir á þeim tíma sem þekktu svæðið.

Reyndar eru vatnaskil þarna því frá hverasvæðinu á Ölkelduhálsi hallar landinu í átt að Nesjavöllum og lækir og ár á þessu svæði falla áreiðanlega til Þingvallavatns


74. blogg

Einhver var að blogga hér á Moggablogginu um Jónas Svafár fyrir stuttu. Það er svo merkilegt að á sínum tíma lærði ég eitt ljóð eftir Jónas.

Það er einhvern vegin svona:

Andi minn glímdi við Guð

og það var gasalegt puð.

En eftir dúk og disk

dró ég úr honum fisk.

 

Minnið hef ég misst,

mælti Drottinn sem var að pissa.

Hvernig höfum við hist?

Hvenær var það fyrst?

Mikið er ég hissa.

 

Ég tók hendinni um hnakkann

og hneppti frá mér frakkann.

Það var helvíti heitt,

og hjartað var farið úr skorðum.

Það hneig niður himinbrattann

og hikstaði framan í Skrattann

þessum þrettán orðum:

 

Þyrstur af trega ég teiga.

Tæmi flöskur og fleiga.

Friðlausa guðaveiga.

 

Líklega hefur þetta ljóð verið í ljóðabókinni Geislavirk tungl sem samkvæmt mínum Sputnikfræðum gæti vel hafa komið út árið 1957.

Atomskáldin svokölluðu voru oft hrútleiðinleg. En ekki Jónas Svafár (sem sagt var að hefði sofið í ár og þessvegna sé nafnið skrifað svona) og heldur ekki Dagur Sigurðarson. Fyrir margt löngu las ég bækur eftir þá báða og þótti skemmtilegar.

Einhverju sinni var ég staddur í fornbókaversluninni sem þá var á Laufásvegi 2 eða 3. Þangað kom maður sem vildi selja fáeinar bækur. Fornbókasalinn, sem ég get ómögulega munað hvað hét, keypti af honum bækurnar en hafði þó sýnilega ekki mikinn áhuga á þeim og sagði við mig þegar maðurinn var farinn: „Þetta var Jónas Svafár. Ósköp er hann orðinn illa farinn, greyið."

Þetta var að vísu allmörgum árum eftir að ég lærði ljóðið hér að ofan, en mér þótti þetta samt merkilegt.

Eitt sinn birtist að mig minnir í Lesbók Morgunblaðsins ljóð eftir Dag Sigurðarson sem hér: „Meðvituð breikkun á raskati" og mig minnir að það hafi fjallað um mann sem keypti sér breiðan amerískan bíldreka. Það var líka hann sem samdi ljóðið:

Raun vísinda

Stofnun Háskóla Íslands.

 

Vel gæti ég trúað að rétthugsandi bókmenntafræðingar mundu ekki telja mikið til þessara tveggja skálda koma, en fyrir mér eru þeir meðal merkustu ljóðskálda tuttugustu aldarinnar.

Langáhrifamesta sjálfsævisaga sem ég hef lesið er „Í verum" eftir Theodór Friðriksson og það tel ég að sé einhver merkasta ævisaga sem rituð hefur verið á íslensku. Eflaust eru þó margir mér ósammála um það.

Á sínum tíma las ég bækurnar „Sjálfstætt fólk" eftir Laxness og „Gróður jarðar" eftir Knud Hamsun á mjög svipuðum tíma og tók auðvitað eftir því hve þær sögur fjalla um líkt efni. Allt sem frá Laxness kom eftir að hann skrifaði Sjálfstætt fólk fannst mér stefna niður á við. Leikritið Dúfnaveislan fannst mér t.d. alltaf vera endemis bull.


73. blogg

Þetta sífellda rugl með greinaskil, fontastærð og feitletranir er ekki með ráðum gert.

Þetta hefur líklega eitthvað með stillingar á Word-inu að gera.

Ég man  þá tíð þegar 24 síðna Morgunblað var þykkt Morgunblað. Nú finnst mér að því þykkari sem dagblöðin eru því minna sé í þeim af raunverulegum fréttum og markverðri umfjöllun um mál.

Þegar við gáfum út Borgarblaðið í Borgarnesi sællar minningar, þá var hvert blað talsvert margar blaðsíður þó í A4 stærð væri (mig minnir 12) og gefið út í hverri viku. Þegar við vorum að byrja man ég að ég hugsaði með mér hvernig í ósköpunum við ættum að fara að því að fylla allar þessar blaðsíður í hverri viku. Fljótlega snerist dæmið þó á þann veg að við þurftum meira að hugsa um hvaða efni ætti að njóta þeirrar náðar að komast á síður blaðsins.

Í blogginu eru engar blaðsíðutakmarkanir en mér finnst samt að málalengingar séu oft til skaða og reyni að takmarka málæðið svolítið.

Samt finnst mér Netið að mestu hafa tekið yfir hlutverk prentaðra fjölmiðla (og í sumra augum eflaust annarra fjölmiðla einnig). Netfréttir og blogg úr ýmsum áttum eru fyrir mér miklu meiri uppspretta upplýsinga og hugmynda en dagblöðin, sem ég er að mestu hættur að lesa. (Tímaritin hef ég eiginlega aldrei tímt að kaupa) Það er eins og hafi orðið eins konar gengisfelling á því sem í blöðunum stendur þegar þau fóru að verða ókeypis.

Fyrir nokkrum árum sagði ég upp áskrift að Morgunblaðinu sem ég hafði verið með um margra ára skeið. Fréttablaðið og Blaðið eru ekki borin út til okkar nema endrum og eins. Ég veit að það mætti reyna að hringja og kvarta, en nenni því ekki.

 

Í Fljótavíkinni stóð til einn daginn eða réttara sagt eitt kvöldið að ganga á Kögrið. Þarna er ég ekki alveg viss um kynferðið, en fjallið heitir Kögur. (samanber þar sem segir í Áföngum Jóns Helgasonar "Kögur og Horn og Heljarvík" - þar sem hann hlýtur eiginlega að hafa átt við Hælavík)

Jæja, það stóð semsagt til að ganga á Kögrið og karlmennirnir á bænum ætluðu allir að taka þátt í þessari miðnæturgöngu. (gott ef sólin á ekki að dansa á haffletinum um Jónsmessuna þarna norður við heimskautsbaug)

Allir fimm fóru þeir af stað og allir komu þeir aftur. Ég sneri samt við þegar ég sá fram á að klettabeltin ofarlega í fjallinu mundu verða mér ofviða og í allra besta falli mundi ég tefja hina óhæfilega mikið. Það var eiginlega jafnvægisskynið frekar en annað sem varð þess valdandi að ég hætti við. Undir lokin var brattinn orðinn það mikill að ég var nánast farinn að skríða svo ég sá að best var að kyngja stoltinu og hætta þessu.

Hinir ofurhugarnir (Jói og Guðmundur pabbi hans ásamt Bjarna og Benna) komust allir fjórir á topp Kögursins og sáu miðnætursólina dansa. Þessu til sönnunar eru til myndir (ja, kannski ekki beinlínis af sólardansinum) en bæði eru þær myndir mér ekki tiltækar akkúrat núna og auk þess hef ég ekki ennþá prófað að setja myndir á bloggið, en geri það kannski einhverntíma seinna.

Fyrirhuguð ferð á Straumnesfjall féll niður. Hinsvegar hefði ferðin þangað upp orðið auðveldari því þangað liggur vegur síðan starfsemi mikil fór þar fram á vegum Bandaríkjahers.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband