890 - Dísa

Í mínum augum er eftirminnilegasta Dísa Íslandssögunnar sú Þórdís Þorsteinsdóttir sem úti varð á Fjarðarheiði á Austurlandi í lok átjándu aldar og gjarnan er kennd við bróður sinn og kölluð Bjarna-Dísa. Man satt að segja ekki eftir öðrum sögufrægum Dísum nema þá helst þeirri í Dalakofanum sem sungið var oft um í gamla daga. Hef bloggað áður um Bjarna-Dísu og vísa bara í það. (blogg nr. 452 frá 16. September 2008 - ef linkurinn skyldi klikka) 

Tölvupóstar eru í tísku núna.

Þar má telja:
Tölvupósta Jónínu,
tölvupóst Bjarna Harðar
tölvupóst Möggu Tryggva
og tölvupósta Indriða. Hvar endar þetta eiginlega?

Hlustaði svolítið á umræður á Alþingi síðastliðna nótt (aðfaranótt þriðjudags). Þar var Pétur Blöndal að lesa úr gömlum þingræðum. Þannig er hægt að viðhalda málþófi út í það óendanlega án þess að þurfa að hugsa um samhengi eða ræðumennsku. Held samt að þátttakendum hafi verið farið að fækka þegar þarna var komið.

Moggabloggið er skrýtin skepna. Fyrir nokkru sá ég á heimsóknalista mínum  að IP-tölur voru sagðar 60 en gestir 59. Þetta hélt ég að ætti ekki að geta gerst. Einhverjar IP-tölur eru eftir þessu að lesa blogg upp á eigin spýtur. Varhugavert og jafnvel hættulegt. En mikið er Moggabloggið gáfað að geta greint þarna á milli.

Hvað verður um þá bloggara sem detta útaf 400-listanum? Ekki að ég sé hræddur um það eftir að ég komst í bland við stórhausana. Villi í Köben var einu sinni settur af sem stórhaus og brást illa við. Komst þangað aftur með harðfylgi. Kannski er óttinn við að verða settur útaf sakramentinu það sem heldur stórhausunum á mottunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kama Sutra

"Fyrir nokkru sá ég á heimsóknalista mínum  að IP-tölur voru sagðar 60 en gestir 59."

Nú er ég bara að giska.  Segjum t.d. að einn moggabloggari kíki inn á bloggið þitt tvisvar sama daginn, en kannski innskráður í tvær mismunandi tölvur - aðra heima hjá sér en hina í vinnunni.  Yrði hann þá ekki skráður sem einn gestur með tvær IP-tölur?

Kama Sutra, 9.12.2009 kl. 01:05

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

En Kama Sutra, af hverju yrði hann ekki skráður sem 2 gestir? Ég held nefnilega að þessi talningavísindi sem oft er talað um séu ekki eins fullkomin og af er látið og forritin sjái ekki í gegnum holt og hæðir.

Sæmundur Bjarnason, 9.12.2009 kl. 01:27

3 Smámynd: Kama Sutra

Ég veit þetta ekki.  Getur einn innskráður moggabloggari (á sama blogginu) orðið að tveimur eða fleiri gestum þótt hann skrái sig inn á sama bloggið á mörgum tölvum?

Kama Sutra, 9.12.2009 kl. 01:34

4 Smámynd: Kama Sutra

Ég held ég hafi orðað þetta eitthvað krumpað þarna  - en skilurðu hvað ég er að meina?

Kama Sutra, 9.12.2009 kl. 01:36

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jú, ég skil. Innskráður þýðir að Moggabloggsguðirnir hafa allar upplýsingar um hann. Enn þetta er samt mjög óvenjulegt.

Sæmundur Bjarnason, 9.12.2009 kl. 01:40

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er einhver sadismi í þjóðinni að búa til svona ljóta sögu um saklausa konu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.12.2009 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband