825 - Davíð vs. bloggarar

Sagt er að bloggheimar logi einn ganginn enn. Ekki finn ég fyrir þessum bruna frekar en fyrri daginn. Davíð er víst að hallmæla bloggurum. Sama er mér. Les ekki Moggann. 

Einhverjir blogga um þetta mál en lítið er að marka það. Mér finnst flest annað merkilegra. Les Fréttablaðið afar sjaldan því það berst aldrei til mín og mér finnst það yfirleitt ekki nógu merkilegt til að gera reka að því að nálgast það.

Mér er sama hverjum augum ritstjóri Moggans lítur bloggara. Margir þeirra eru þó miklu persónulegri og orðljótari en mér þykir við hæfi. Moggabloggsteljarinn er það fyrirbrigði sem ég tek mest mark á. Varla mundi ég nenna að blogga ef teljarinn sá segði mér ekki að einhverjir lesi eða skoði að minnsta kosti bloggið mitt. Margt fleira get ég gert hér á blogginu og í heildina er ég ekkert óánægður með dvölina hér.

Að ég sé ekkert óánægður með dvölina gerir mig auðvitað að hægri bloggara í augum margra. Skoðanir hef ég á ýmsu og vissulega læt ég einhverskonar hægri og vinstri sjónarmið ráða í málum sem ég skil illa. Sjálfum finnst mér ég vera meira til vinstri en hægri í slíkum málum en auðvitað er lítið mark takandi á því.

Ráðherrar tilkynna að vandi heimilanna sé leystur. Ég sé ekki betur en boðaðar aðgerðir séu bara afbrigði af því að velta vandanum á undan sér. Einhverjum og jafnvel mörgum getur það samt bjargað frá gjaldþroti. Útgjöldin eru líka þeirrar náttúru að þau eru ósýnileg lengi vel. Auðvitað eru skuldareigendur ekki hrifnir af því að afskifa afganga en þá verður komin ný stjórn og önnur vandamál.

Icesave verður að hverfa. Það vofir yfir okkur eins og Damoklesar sverð. Ég er í engum vafa um að þetta verðum við að borga þó ósanngjarnt sé. Útlendingar standa okkur einfaldlega ekkert að baki og eiga alveg jafnan rétt og við á að geta tekið út sinn sparnað. Það er skítt að vera til og ennþá meira skítt að þurfa að láta útrásarræningja og vanhæf stjórnvöld ráðskast með líf sitt, en við því er lítið að gera svona eftirá.

Skorað er á fólk að sniðganga bæði Morgunblaðið og kók. Þarna er ég í vanda. Nota nefnilega hvorugt. Viðurkenni samt að ég styð Moggann óbeint með því blogga hér. Auk þess versla ég oft í Bónus og á erfitt með að venja mig af því.

Menn keppast nú við að spá því að stjórnin falli. Ég hef ekki trú á að svo verði. Nægilega margir úr óánægða liðinu hjá vinstri grænum munu á endanum samþykkja Icesave og þar með er stjórninni borgið. Líkurnar á öðru stjórnarmynstri eru einfaldlega hverfandi og kosningar eru fjarlægur möguleiki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég er nú bara ánægður með að Davíð skuli vera að lesa okkur.  Það er í raun forsenda þess að hann geti fellt dóma. Það er því ákveðin tvöfeldni í skilaboðum hans.

Aldrei meiri ástæða en að blogga eins og maður eigi lífið að leysa, ef sjálfur kóngurinn er að lesa.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.10.2009 kl. 01:03

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Les Davíð blogg? Ég efast um það. Kannski eitt og eitt og þá sennilega vegna þess að einhver prentar það út og sýnir honum. Annars eru blogg-greinar stundum notaðar til uppfyllingar í Morgunblaðið og sennilega hafa þeir leyfi til þess, eða hvað?

Sæmundur Bjarnason, 6.10.2009 kl. 03:29

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta með að Morgunblaðið prentar úr bloggum er umhugsunarvert. Þeir gera það án leyfis og spurning hvort þeir brjóti þá ekki höfundarrétt. Þó menn bloggi á bloggmiðli þeirra á netinu veitir það þeim ekki sjálfkrafa rétt til að birta bloggefni í prentaða blaðinu. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.10.2009 kl. 10:16

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þeir hafa að minnsta kosti birt nokkrum sinnum efni eftir mig sem ég hef ekki gefið þeim leyfi fyrir nema þá með aðgeraðarleysi eða þessháttar. Annars hlýtur Lára Hanna að vita þetta og hún er auk þess komin á þann stall að þeir þora varla annað en svara henni. Mér finnst þetta líka umhugsunarvert. Skilst að verið sé að finna að því hvað birtist í tónspilaranum hér. Sjá Jens Guð.

Sæmundur Bjarnason, 6.10.2009 kl. 13:35

5 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Kaupi Moggann og drekk kók. Ætla að halda hvoru tveggja áfram enn um sinn. Er þó ekki í klappliði Davíðs og finnst miður að Óskar Magnússon & Co skuli hafa tekið hann fram yfir hæga og reynda fagmenn í blaðamennsku.

Sigurður Hreiðar, 6.10.2009 kl. 14:59

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég er ekki áskrifandi að Mogganum, les hann þó stundum. Finnst hann (eða fannst) jafnvel betri en Fréttablaðiið. Drekk stundum pepsi, sem ekki er gott. Fylgist svolítið með pólitík og blogga sem allra mest. Ætla að halda áfram að blogga hér og jafnvel að drekka eitthvað pepsí.

Sæmundur Bjarnason, 6.10.2009 kl. 16:09

7 identicon

Drekk yfirleitt ekki kók og sjaldan eða nær aldrei gosdrykki yfirleitt. Fæ mér stöku sinnum bjór á sumrin. Sjaldan að vetrinum. Kaupi samt moggann enn, ákvað að gefa honum séns fram til áramóta. Annars er það svolítið viðkvæmt mál á heimilinu út af minningargreinunum. Nú, það hendir að ég versli í Bónusi, en það er afar sjaldan. Kannski fjórum, fimm sinnum á ári, í mesta lagi. Á hægara með að versla í annarri og miklu betri verslun. Hvað bloggara varðar, þá hef ég dálæti á ykkur Sigurði Þór umfram aðra bloggara, sem eru jú misjafnir eins og gengur.

Ellismellur 7.10.2009 kl. 04:26

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Ellismellur. Já, það er þetta með minningargreinarnar. Stundum sé ég minningargreinar í Mogganum sem ég vildi gjarnan lesa. Kannski er bara best að lesa aldrei minningargreinar því þær minna mann á eigin forgengileika.

Sæmundur Bjarnason, 7.10.2009 kl. 05:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband