1711 - Nýaldarfasismi

Untitled Scanned 22Gamla myndin.
Fjallkonan og fylgdarlið.

Nú finnst mér fyrst að það taki því að blogga fyrir forsetakosningunum Þær eru afstaðnar og fólk er líklega farið að hugsa um ýmislegt annað.

Fróðleg er sú túlkun á úrslitum forsetakosninganna að þau séu í rauninni vinstri öflunum til stuðnings og komi þeim á endanum til góða. Samkvæmt því hafi þeir sem kusu Ólaf verið að lýsa með því yfir stuðningi við Jóhönnu Sigurðardóttir. Svo held á að hafi alls ekki verið.

Sagði líka eitthvað á þá leið í bloggi um daginn að Ólafur mundi reyna að hindra atkvæðagreiðsluna sem fyrirhuguð er í haust. Átti kannski ekki von á að hann hæfist handa alveg svona fljótt. Kannski er þetta eina leiðin sem sjálfstæðismenn sjá til þess arna. Málþófið er að verða óvinsæl aðferð.

Að tefla skák er í rauninni bara að leiða þrætu til lykta. Minnir að það hafi verið Bronstein sem fyrstur benti á þetta. Þessvegna er það ósköp eðlilegt að skákmeistarar séu þrætugjarnir með afbrigðum. En hver er þrætan? Þegar tveir skákmenn setjast að tafli kemur þeim ekki saman um hvor sé betri. Skákin er til skera úr um það.

Já, kallið mig bara gamlan og ruglaðan fyrir að geta ekki skilið alla þessa nýaldarspeki. Árur og áruhreinsair, álfar, draugar, bílaheilun, smáskammtalækningar, handayfirlagningar, lækningar í svefni, segularmbönd og sjáendur allskonar. Sumt að þessu getur vel verið til staðar, en það virðist ekki mega fjalla um þessi fyrrbrigði nema á forsendum nýaldarfólksins.

Fjölmiðlarnir (einkum þó sjónvörpin) eru farin að segja frá þessu í löngum og ítarlegum fréttum. Oft þykist fólk þar vera með því að gera grín að samtökum af þessu tagi, en það finnst bara ekki öllum að þetta sé grín. Einfaldast væri að fjalla ekkert um það. Nóg er til af öðrum fréttum.

IMG 0716Spegilsléttur sjór.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já Sæmi minn, ég hef fundið fyrir þessu nýaldarkukli á eigin bloggi hér á mbl, bannaður fyrir vikið :)
Þetta nýaldarhúmbúk getur ekki verið neitt annað en geðsjúkdómur eða svindl.. eða sambland af þessu tvennu...

DoctorE 4.7.2012 kl. 11:14

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, en það virðist ekkert hægt að gera við þessu. Það er jafnvel hægt að halda að einhverjir trúi þessu bulli.

Sæmundur Bjarnason, 4.7.2012 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband