1612 - Æ, þegiðu

Untitled Scanned 66Gamla myndin.
Hjólað á skólatúninu. Gamli barnaskólinn vinstra megin á myndinni og hornið á þeim nýja til hægri. Auk þess Garðyrkjustöðin á Reykjum, Laugaskarð og fjósið á Reykjum.

„Hér er því rangur hattur settur á ráðuneytið, líkt og þegar Jón Hreggviðsson setti upp hatt böðulsins í Galtarholti forðum.“

Þessi orð Össurar Skarphéðinssonar á alþingi hafa orðið tilefni nokkurra orðahnippinga. Siv Friðleifsdóttir þóttist vera að taka upp hanskann fyrir flokkssystur sína og gerði þessi ummæli að umtalsefni á alþingi og Illugi Jökulsson skrifar um málið á Eyjubloggi sínu. Mér finnst að fólk eigi að láta svonalagað eiga sig. Ef menn vilja strá í kringum sig tilvitnunum þá mega þeir það mín vegna. Séu þær vitlausar eða óviðeigandi hljóta þær að hitta ræðumann sjálfan fyrir. Annars eru þær bara eins og þær eru.

Nú er ég búinn að skrifa á fésbókarvegginn minn bæði um Snorra í Betel og Bjarna Benediksson og þar með búinn að eyðilegga mögulega umfjöllun um þá hér á blogginu blessaða. Þá verð ég bara að reyna að finna eitthvað annað. Já, ég hélt semsagt framhjá blogginu mínu í gær og setti það sem mér fannst vera talsverð gullkorn á fésbókina. Þar skrunar það niður í glatkistuna á no time eða það finnst mér. Get ekki að .því gert að mér finnst bloggskrif vera varanlegri en fésbókarskrifelsið. Sjálfhverfan og sjálfsánægjan er meira að segja svo mikil að ég er að hugsa um að setja þessi tímamótaveggskrif (gæsalappalaus) hér í bloggið:

Bjarni Benediktsson gerði augljós mistök í viðtalinu við Helga Seljan áðan þegar hann reyndi að gera lítið úr upphæðinni sem deilt er um í Vafningsmálinu. Sömuleiðis er það misskilningur hjá honum að gamlar fréttir tapi gildi sínu bara við það að vera gamlar. Ástæða þess að aðrir fjölmiðlar en DV fengu áhuga á málinu einmitt núna er sú að Bjarni hefur hingað til ekki viðurkennt að hafa vitað um hagræðingu dagsetninga í málinu.

Kannski hefur Barnaskóli Íslands á Akureyri sérstakar reglur um það hvaða skoðanir kennarar þar mega hafa. Þannig getur vel verið að brottvikning Snorra í Betel sé réttmæt. Hinsvegar finnst mér að skólanefndinni komi lítið við hvað skrifað er um á bloggi sem ekki tengist skólastarfinu á neinn hátt. Stangist það á við lög eða stjórnarskrá er samt sjálfsagt að kæra málið.

Og lofa að gera þetta helst ekki aftur. Ef ég linka svo í þessi bloggskrif á fésbókina eins og ég geri stundum er ég þá ekki búinn að ná mér svolítið niðri á fésbókarræflinum?

IMG 7891Útidyr og snjór.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Stangist það á við lög eða stjórnarskrá er samt sjálfsagt að kæra málið."
Hlustaði á Séra Baldur Kristjánsson á Rás2 og fannst hann nálgast málið á réttu tónunum.
DV hefur jú fjallað oft um dagsetningarnar en Mogginn aldrei.  Segir alla söguna.
Var að hlusta á endurtekna lofræðu BB á síðasta landsfundi.  Þar verður honum oft orða vant þegar hann fer út fyrir hinn skrifaða texta. Dálitið hallærislegt af formanni Flokksins. 
Vafningsmálið og fleira gerðist í febrúar 2008 og lífeyrissjóðirnir mínir keyptu í 15 milljarða útboði GLITNIS, í mars. Þetta var einn blekkingarleikur hjá GLITNI.  Ekki get ég sakað stjórnarmenn sjáðanna.
Hvað hefði ég gert ef..........ég hefði verið í stjórn?  Það er margir vitrir eftir á, þessa daganna.

Ólafur Sveinsson 15.2.2012 kl. 14:07

2 identicon

Mér finnst þú vera á nokkrum villigötum í skrifum þínum um Snorra í Betel. Í eldra bloggi hélstu því t.d. fram að Snorri ætti að kenna áfram ef krakkarnir væru ánægðir með hann. Hver veit hvort þeir eru það? Á að gera skoðanakönnun? Hvað sem líður sérstökum reglum þessa tiltekna barnaskóla liggur fyrir að Snorri hefur brotið siðareglur kennara og ekki í fyrsta sinn. Fram hefur komið að hann hafði hlotið áminningu af svipuðu tilefni. Að auki er afar líklegt að hann hafi brotið landslög. Það er ekki einkamál manna í ákveðnum stöðum hvað þeir gera í frítíma sínum, hvað þá ef þeir brjóta lög. Er það einkamál lögreglumanna ef þeir brjótast inn í frítíma sínum? Einkamál presta ef þeir reka hóruhús í frítíma sínum? Höldum okkur við kennarana. Er í lagi að kynþáttahatarar kenni börnum ef þeir básúna ekki skoðanir sínar í skólanum og krakkarnir eru ánægðir með þá? Hvað með barnaníðinga?

Þetta snýst ekki um forræðishyggju eða pólitíska rétthugsun. Ef menn átta sig ekki á því legg ég til að þeir lesi þessa frétt sem ég vísa hér í. Mér finnst hún í rauninni gera frekari umræður um þetta mál óþarfar. Mér finnst menn mega hafa hvaða skoðanir sem þeir vilja á samkynhneigð en á ákveðnum stöðum eiga þær ekki heima.

http://mbl.is/frettir/innlent/2012/02/15/reyna_mun_oftar_sjalfsvig/

 

Jón H. Brynjólfsson 16.2.2012 kl. 01:52

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Mér finnst þú búa þér til strámann og ráðast á hann af mikilli heift. Ég hef ekkert talað um að lögreglumenn eigi að reka hóruhús eða neitt í þá átt.

Seint í athugasemd þinni segir þú: "Þetta snýst ekki um forræðishyggju eða pólitíska rétthugsun." Þarna held ég að þú hafi hitt naglanna á höfuðið, en að vísu með alveg öfugum formerkjum. Ég held einmitt að þetta snúist um það.

Ef allt sem þú segir um áminningar og þ.h. er 100% rétt kemur auðvitað til greina að reka Snorra úr starfi sem kennara. Mér finnst samt ekki rétt að loka blogginu hans þó hann sé óhæfur kennari. Auðvitað hafa Morgunblaðsmenn samt rétt til þess, annars væru þeir varla að því.

Sæmundur Bjarnason, 16.2.2012 kl. 08:30

4 identicon

Ósköp ertu viðkvæmur. Ræðst ég á þig af mikilli heift? Ég veit ekki hvað þú átt við enda gerirðu enga tilraun til að útskýra það eða svara yfirleitt með nokkrum rökum. Ég er bara að reyna að sýna fram á hvað það er öfugsnúið að maður sem predikar opinberlega þessar skoðanir sé barnakennari. Það er dauðans alvara og þess vegna finnst mér menn á köflum ræða þetta af nokkurri léttúð. Snorri hefur sjálfur lýst því yfir að ef samkynhneigður nemandi leitaði til hans myndi hann að sjálfsögðu ræða málið við hann. Ekki vildi ég eiga barn sem liði illa af þessum sökum og fengi Snorra Óskarsson sem ráðgjafa!

Jón H. Brynjólfsson 16.2.2012 kl. 12:39

5 identicon

Ég er hins vegar sammála þér um það að mér finnst það vafasamt hjá Morgunblaðsmönnum að loka blogginu. Mér finnst Snorri hafa fullan rétt á þessum skoðunum sínum og mega tala fyrir þeim hvar sem er - mér finnst hann bara ekki eiga að kenna ungum og viðkvæmum sálum um leið.

Jón H. Brynjólfsson 16.2.2012 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband