1293 - Ofurlaun og fleira

Ótrúlega margir eiga erfitt með að sjá bloggið í réttu ljósi. Flestir þykjast vera  betri en allir aðrir. Sjálfur er ég líka þannig. En ég er ekki eins orðljótur og sumir. Ekki eins mikið fyrir að þykjast vita allt um hrunið og ástæður þess. Ekki eins mikið fyrir að úthúða öllum ráðamönnum og ríkisstjórn. Ekki eins mikið á móti öllum sköpuðum hlutum. Þetta finnst mér allavega. En er það ekki bara einhver aumingjaskapur í mér? Langar mig ekki í rauninni til að vera eins og hinir? Og er ég ekki alltaf að agnúast útí fésbókina? Mest vegna þess að ég næ engum tökum á henni sjálfur. Þykist ég ekki vera yfir aðra bloggara hafinn? 

Páll Vilhjálmsson og Jónas Kristjánsson eru báður fyrrverandi blaðamenn og núna snjallir bloggarar. Jafnvel með þeim öflugustu. Hnitmiðaður og stuttaralegur stíll er aðalsmerki beggja. Svolítið takmarkaðir samt því þeir blogga nær eingöngu um pólitísk málefni. Svo eru þeir hreint ekki sammála og hrikalega neikvæðir báðir tveir. Áhrifamiklir held ég samt að þeir séu.

Frá sjónarmiði okkar bloggara finnst mér þeir verstir sem lesa bæði bloggið og fésbókina villt og galið en nota hvert tækifæri sem býðst til að skíta fyrirbærin út. Kunna bara ekki að skrifa sjálfir en telja sjálfum sér trú um að þeir viti allt.

Og áfram með smjörið.

Fulltrúi bankasýslu ríkisins í stjórn Aríon-banka samþykkti launahækkun bankastjórans. Hann er fulltrúi ríkisins í stjórn bankans og þar með hefur ríkið samþykkt þennan gerning. Það þýðir lítið fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að vera forviða á þessu ef ekkert er gert með það. Steingrímur J. Sigfússon er sterki maðurinn í ríkisstjórninni og ef hann sér ekki til þess að þetta sé lagfært þá er hann að herða snöruna að eigin hálsi.

Beiti ríkisstjórnin sér ekki í Icesave-málinu bendir það til að hún ætli að sitja áfram þó frumvarpið verði fellt. Margt bendir til að mjótt geti orðið á mununum varðandi úrslit málsins. Verði málið fellt hefst sama vitleysan enn á ný. Ekkert bendir samt til að sambærilegur árangur náist að þessu sinni jafnvel þó takist að fá viðsemjendurna að samningaborðinu aftur sem ekki er með öllu útilokað. Í fyrra minnir mig að aðstæður hafi verið þannig að útilokað var að greiða atkvæði með frumvarpinu en nú sýnist mér það vera hægt.

IMG 4771Trjágróður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allir vitum vér ástæðu hrunsins, henni er að kenna að Bandaríkjamenn eyddu 3 trilljónum dollara í stríð sem ekkert hefur haft upp úr sér.  Til að bjarga aðgangi að auðlindum sem eru í stöðugri niðurleið.  Þeir tóku þetta fé úr sjóði Elli lífeyrisþega í Bandaríkjunum, og öðrum vafasömum viðskiptum sem studd voru með lánum frá Evrópu.  Lánum, sem Íslendingar meðal annars voru handbendi við að "þvo".  Þetta er stórfelld einföldun málsins, það veit ég vel ... en þetta er engu að síður grundvöllur hrunsins.  Íslendingar voru bara heimskir, að "apa" eftir orð Georg Bush og gefa þar með högg á sér.  Ísland er ekki Bandaríki Norður-Ameríku með stærsta kjarnorkuvopnabúr veraldar.  Ísland er ekki eina landið sem getur leyft sér að hafa búðir sem pynta menn, og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að verða teknir fyrir alþjóðadómstól vegna brota gegn mankyninu.  Það er enginn, sem hefur kjark, eða bein í nefinu, til að draga þá fram fyrir dómstól.

Það sem verst er af öllu, vinurinn, er ekki þetta að ofan heldur það að Íslendingar eru að hengja lamb fyrir sauð.  Þeir eru að leita að einhverjum til að sekja að ósekju, til að kenna um málið ... eru að krossfesta menn.  Íslendingar vissu allir með tölu, að féð var illa fengið en supu á ölinu, á meðan á borðinu stóð.  Þegar ölið fór að þrjóta, fóru menn að kvarta ... ekki yfir að ölið var illa fengið, heldur yfir því að barþjónnin gat ekki staðið í skilaskiptum.  Þetta er það óhuggulega við málið í heild sinni.

Það er þetta framar en öllu öðru, sem mun verða Íslandi að falli.  Leyfðu mér að segja þér hvernig fer fyrir Íslandi í framtíðinni, úr því sem komið er málum.  Ísland mun verða fyrir stórfelldum fjárfestingum, sem verða til stöðugs aðflutnings erlendra aðila.  Bæði fjárhagsaðila, og atvinnu afls ... með tíð og tíma, verður erfiðara að fá vinnu fyrir ómenntað fólk. En þó svo þú hafir menntun, hefurðu ekki reynslu ... atvinna er ekki lengur trygg.  Hver sem er, getur ekki lengur farið og fengið sér vinnu.  Að 70 árum liðnum, er Ísland ekki lengur Íslendinga.  Að sjálfsögðu munu sumir eiga fé út úr þessu, en auðæfi Íslands verða aldrei aftur einkaeiga Íslendinga ....

Og það skopulega er, að það er engir sturlungar til að berjast gegn þessu ... og að svona er einmitt launinn, sem veitt eru fyrir svik af þessu tagi.

Bjarne Örn Hansen 9.3.2011 kl. 13:31

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Úps!! Ég bið forláts. JÁJ og Sigurður Einarsson eru semsagt lömb en ekki sauðir. Þetta hefði ég átt að sjá í hendi mér. Og allt er þetta bansettum útlendingunum að kenna.

Sæmundur Bjarnason, 9.3.2011 kl. 13:50

3 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Auvitað veit ég að maður á ekki að gera athugasemd við athugasemd hjá öðrum,

en mikill blessaður eftirávitringur er þessi Bjarne Örn: „Íslendingar vissu allir með tölu, að féð var illa fengið…“

Miklir menn erum vér, sæmundur minn (viljandi sæmundur með litlum staf, svo þú takir þetta ekki persónulega!)

Sigurður Hreiðar, 9.3.2011 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband