1130 - Að hætta við umsókn

Því skyldi ég ekki fimbulfamba fjandann ráðalausan á blogginu mínu úr því einhverjir vilja lesa það. Ekki hef ég margt merkilegt fram að færa í stjórnmálunum eða fréttatengdu efni. Eða réttara sagt þá er ekki víst að öðrum finnist það. Mér finnst það náttúrulega mjög gáfulegt.  

Af hverju er ég að þessum ósköpum? Af því sem ég blogga um að staðaldri finnst mér ESB-aðildin hvað merkilegust. Meira að segja hrunið er tekið að fjarlægjast talsvert. Skil ekki af hverju menn eru fyrirfram svona á móti þessari aðild. Aðrar þjóðir hafa alveg getað þetta án tjóns og rétta tækifærið til mótmæla er þegar hugsanlegur aðildarsamningur kemur til þjóðaratkvæðis. Verði hætt við það núna sem Alþingismenn hafa áður samþykkt getur það með engu móti orðið okkur Íslendingum til góðs eða álitsauka.

Við Íslendingar erum ekkert merkilegri en aðrar þjóðir. Skoðanakannanir, séu þær rétt gerðar og vísindalegar, geta gefið ágæta mynd af því hvað þjóðin (þýðið) hugsar akkúrat á því augnabliki sem spurt er. Og það fer ekkert á milli mála að meirihluti meðal þjóðarinnar er nú sem stendur á móti samningum við ESB. Án þess þó að vita mikið um þá hugsanlegu samninga.

Það eru stjórnmálaflokkarnir sem ráða miklu um skoðanir fólks að þessu leyti. Einkennilegt er með arftaka kommúnista sem nú eru að sögn á móti þessu. Þeir eiga í raun réttri að vera alþjóðasinnaðri en íhaldsmenn en eru það allsekki.

Þingsályktunartillaga mun verða (eða hefur verið) lögð fram á Alþingi um að hætta viðræðum við ESB. Vandséð er að tillaga þessi sé annað en dulbúin vantrauststillaga á ríkisstjórnina og úrslitanna mun eflaust verða beðið með nokkurri eftirvæntingu.

Flutningsmenn skilst mér að séu Unnur Brá Konráðsdóttir (S), Ásmundur Einar Daðason (VG), Gunnar Bragi Sveinsson (B) og Birgitta Jónsdóttir (H). Ekki veit ég hvenær þessi tillaga kemur til atkvæða og ekki er ótrúlegt að ríkisstjórnarkapallinn sem lagður var um daginn eigi meðal annars að tryggja líf ríkisstjórnarinnar í þeim átökum. Talningameistarar eru án efa að störfum.

Nú er stóra þvagleggsmálið á Selfossi komið enn einu sinni í fréttirnar. Ég fer ekki ofan af því að konan var beitt óforsvaranlegu ofbeldi við þetta. Alveg sama hvernig hún hefur látið áður en þetta skeði og hvernig menn reyna að réttlæta þennan glæp. Sá sem ábyrgð ber á þessu á svo sannarlega að missa embætti sitt.

Ekki er vafi á því að Björn Bjarnason og Davíð Oddsson eru helteknir af kaldastríðshugsunarhætti og Jón Baldvin Hannibalsson er á leiðinni þangað líka. Jóhanna Sigurðardóttir endar þar sömuleiðis. Hún (eða forystufólk Samfylkingarinnar yfirleitt) þarf því að vinda bráðan bug að því að finna arftaka.

IMG 0416Ekki veit ég hvort prentsvansar eru jafnhættulegir og aðrir svansar. Vissara fyrir kvenfólk samt að vara sig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvita á að hætta við þessa umsókn, þar sem hún er ekki í umboði þjóðarinnar heldur tilkomin vegna ómerkilegheita  Steingríms J. Sigfússonar.

Hrólfur Þ Hraundal, 5.9.2010 kl. 09:28

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hrólfur. Umsóknin er að því leyti í umboði þjóðarinnar að Alþingi samþykkti hana með talsverðum mun. Hafi einhverjir þingmenn gert það óvart eða í andstöðu við sannfæringu sína ættu þeir bara að skýra frá því. Einn veit ég um sem hefur haldið því fram að sér hafi verið hótað ef hann gerði það ekki. Síðan snarþagnaði hann.

Sæmundur Bjarnason, 5.9.2010 kl. 11:47

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ef alþingi ákveður að draga umsóknina til baka þá er það í sama umboði og var fyrir ári síðan.  Eini munurinn er hvaða hópar útí í þjóðfélaginu verða ánægðir og óánægðir.

Fólk getur líka verið búið að mynda sér afstöðu á ESB-aðild með því að kynna sér lög og reglur sambandsins, því þannig getur fólk vitað um 90% - 99% hvað aðildin felur í sér.  Mismunandi er samt á hvaða forsendum fólk tekur afstöðu, en hugmyndafræði tel ég að hafi þar mikil áhrif.

Axel Þór Kolbeinsson, 5.9.2010 kl. 14:40

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Alveg rétt, Axel. Einhverjir þingmenn þurfa þá væntanlega að skipta þá um skoðun og þeir geta auðvitað haft ástæður til þess.

Það er samt fyllilega lögmæt skoðun að skynsamlegra sé að fella hugsanlegan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þar að kemur úr því að viðræður eru hafnar.

Mér finnst ekki næg ástæða til að hætta viðræðum að einmitt nú séu fleiri á móti honum en verið hefur og hugsanlega fleiri en verða.

Sæmundur Bjarnason, 5.9.2010 kl. 15:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband