896 - Baugur, Ingibjörg Sólrún og Davíð

Sumir reyna alltaf að búa til grýlur og átök. Vinsælt er að stilla Davíð upp gegn Baugsveldinu svokallaða, Ingibjörgu Sólrúnu eða Jóni Ásgeiri. Margt er skrýtið í þeim átökum en allar þær persónur sem nefndar voru fara líklega fljótlega úr opinberri umræðu. Vel fer á því þó sumir bloggspekingar hafi þá minna um að skrifa en áður. Satt að segja leiðast mér þau öll. Nóg annað er um að tala.

Það er stórkostlegt ábyrgðarleysi að borga skuldir sínar eins og Bjarni Ármannsson hefur réttilega bent á. Fæstir vilja þó viðurkenna það og auðvitað er betra en að sýna svona ábyrgðarleysi að loka sig bara inni í skel sinni og hrækja í allar áttir. Vondir útlendingar vilja hvort eð er bara ná af okkur auðlindunum og öðru þessháttar auk þess að klekkja á forréttindaklíkunum sem hafa reynst okkur Íslendingum svo vel.

Allir vita að íslenskt þjóðlíf er gegnsýrt af spillingu. Enginn vill samt ræða um það og yfirleitt er til dæmis bara rætt um þær kannanir sem koma sér vel fyrir okkur. Samkvæmt þeim er auðvitað engin spilling hér. Hún er samt bara öðruvísi en víðast annars staðar. Hér þekkja allir alla og klíkur af öllu tagi vaða uppi og stjórna landinu og því sem stjórna þarf. Við erum orðin svo samdauna þessu ástandi að okkur finnst það bara eðlilegt.

Íslensk þjóðareinkenni þurfa að batna. Annars er bankahrunið til einskis. Ef við lærum ekki að haga okkur betur er Íslendingum engin vorkunn að lenda undir stjórn annarra. Hannes Hólmsteinn sjálfur hefur sagt að hrunið hefði komið fyrr ef Seðlabankinn hefði hagað sér eins og maður - ja, eða bara eins og seðlabanki. Svo er fyrir að þakka að hrunið kom þó. Ef það hefði komið seinna hefði það orðið enn verra og ef það væri ókomið enn væri heimsendir í nánd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel mælt, Sæmundur greinagóði

Ólafur Sveinsson 15.12.2009 kl. 12:11

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk, Ólafur. Á samt dálítið erfitt með að átta mig á þér. Var svolítið foj yfir vísunni sem þú tilfærðir í síðasta bloggi. Var hún annars ekki frá þér? Ég tók hana nefnilega til mín. Tek hana samt ekki þannig að þú sért eitthvað að ljóða á mig, því mér sýnist að hún sé ekki eftir þig.

Sæmundur Bjarnason, 15.12.2009 kl. 18:54

3 identicon

Vísan var ekki ljóðuð til þín. Þar sem mér finnst þú með skemmtilegri bloggurum og mæli með þér við alla sem ég umgengst, máttu alls ekki verða foj, þá verð ég foj.   Vísan er í rauninni eftir Jón  Jónsson.

Ólafur Sveinsson 15.12.2009 kl. 21:07

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

ókey, Ólafur. Svo maður noti nú þetta ástkæra ylhýra. Fyrirgefðu lætin. Hver var annars þessi Jón Jónsson? Vísan er ágæt.

Sæmundur Bjarnason, 15.12.2009 kl. 21:35

5 identicon

Jón blindi Jónsson úr Breiðdal, ættaðan frá Minni Ökrum í Skagafirði. Hann gerði nokkra sveitarbragi um ábúendur í Breiðdal 1884.  Þessi gæti veriðum þig?

Dánumaður dugnað sinn

og dyggðir margsýnt hefur,

góðviljaður gestrisinn

greiðahraður velmetinn.

Ólafur Sveinsson 15.12.2009 kl. 22:23

6 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Víst er Sæmi greinagóður
og greindarlegt er bloggið hans
ekki skemmir andlegt fóður
á leið okkar til andskotans

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.12.2009 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband