887 - Fischer og draugasögur

Ekkert um Icesave núna. Fleira er markvert en það sem gerist á Alþingi.

Það sem einkum vekur athygli mína í fréttum dagsins er draugasaga Þórs Magnússonar fyrrum þjóðminjavarðar og baráttan um arf Fischers.

Oft er gert útá það sem sagt er vera útbreidd hjátrú Íslendinga. Mér hugnast ekki hve mikil áhersla er oft lögð á það af hálfu ferðaþjónustuaðila að Íslendingar trúi upp til hópa á drauga, álfa og hvers kyns forynjur. Þvi stend ég með Þór Magnússyni í þessu máli og trúi því varla að úr þessu verði dómsmál.

Oft hefur verið fjölyrt um fyrrverandi heimsmeistara í skák Robert James Fischer. Hann var íslenskur ríkisborgari þegar hann lést og íslensk lög og íslenskir dómstólar eiga því að skera úr um málefni dánarbús hans. Stuðningur fjölmiðla við aðila þessa máls á ekki að hafa áhrif á úrslit þess. Samkvæmt sjónvarpsfréttum eru það einkum hin japanska eiginkona Fischers og dóttir hans frá Filippseyjum sem hagsmuna hafa að gæta í þessu máli. Svo er þó ekki. Bandarískir ættingjar Fischers vilja einnig fá sinn skerf af arfinum. Tvöhundruð og sjötíu milljónir króna minnir mig að um sé að ræða.

Horfði á spurningaþáttinn í ríkissjónvarpinu áðan. Hvað sem segja má um einstakar spurningar og frammistöðu keppenda er enginn vafi á því að formið á þættinum er vel heppnað og stjórnendurnir góðir.

„Svokallaðir bloggarar" eru af mörgu tagi. Margir þeirra taka oft meira uppí sig en þeir geta staðið undir. Eru líka oft ákaflega orðljótir. Sumir eru reyndar mjög vel að sér á afmörkuðum sviðum en reyna gjarnan að vera sem mestir „besservisserar" um alla mögulega hluti.

Jónas Kristjánson (jonas.is) er góður eins og venjulega og talar um erlenda eineltið. Minnist líka á Davíð Oddsson og endurkomuáhuga hans. De Gaulle er leiðarstjarnan í lífi Davíðs og hann dreymir um að þjóðin komi skríðandi á hjánum til sín og biðji um frelsun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þarna ferð þú um nokkuð víðan völl, Sæmundur

Hildur Helga Sigurðardóttir, 6.12.2009 kl. 01:05

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, það hentar mér betur en að fjölyrða mikið um fátt þó það geti verið ágætt líka.

Sæmundur Bjarnason, 6.12.2009 kl. 01:46

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Er Fischer draugur? mér fannst barnsmóðir hans tala um hann í nútíð í fréttum í gær. Ég skrifaði um Jinky litlu þremur stundum áður en hún kom í sjónvarpið http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/988976/.

Hvað segir þú, Sæmundur, þú ert kunnugur þarna sem meistarinn var greftraður.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.12.2009 kl. 05:52

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nei Villi, mér er ekki kunnugt um það. Sá hluta af þessu viðtali sem þú ert líklega að vitna í. Konan minnir mig að hafi átt í svolitlum vandræðum með enskuna en ég tók samt ekki eftir tíðum sagna sérstaklega. Hefur heldur ekki neina sérstaka draugalega merkingu. Arfskiptin finnst mér heldur ekki koma Fischer eða arfleifð hans í skákinni neitt sérstaklega við. 

Sæmundur Bjarnason, 6.12.2009 kl. 06:12

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sæmundur um víðan völl
vandar ekki kveðjurnar
þeim sem þóknast frammíköll
og þykjast besservisserar

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 6.12.2009 kl. 09:27

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hallgerður  Hallgrímsdóttir

is an expert on how to have sex with elves.

More.

Þorsteinn Briem, 6.12.2009 kl. 09:30

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Unaðsleg sú álfareið,
allt að klukkutíma skeið,
íslensk leið er ætíð greið,
og ekki á leiði Gerða leið.

Þorsteinn Briem, 6.12.2009 kl. 10:04

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þó að Steina standi oft
og stífni milli kálfanna.
Allt mun fara uppí loft
ef hann fer á álfana.

Sæmundur Bjarnason, 6.12.2009 kl. 13:54

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jóhannes, takk fyrir vísuna. Hún er mjög góð.

Steini hefur bara þannig áhrif á mig að ég get oft svarað honum samstundis.

Sæmundur Bjarnason, 6.12.2009 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband