732 - Lára Hanna, blogg yfirleitt og fleira

Ég sakna þess að Lára Hanna Einarsdóttir skuli vera nánast hætt að blogga. Það er engin tilviljun að hún skuli vera svo vinsæl hér á Moggablogginu sem raun ber vitni. Auðvitað á hún skilið að fara í frí eins og aðrir. Vonandi kemur hún aftur fljótlega af endurnýjuðum krafti.

Þó ég sakni Láru Hönnu úr blogginu er sá söknuður ekki eins og margra annarra. Flokkspólitískt séð finnst mér hún einum of vinstrisinnuð. Upphaflega skrifaði hún einkum um umhverfismál en eftir að bankahrunið kom til sögunnar hefur hún orðið æ pólitískari.

Ég þekkti Láru Hönnu nokkuð áður en hún byrjaði að blogga og dáist mest að henni fyrir söfnunaráráttuna. Hún heldur saman allskyns upplýsingum um þau mál sem hún tjáir sig um og veitir öllum sem vilja aðgang að því efni. Hún setur líka saman ýmsar upplýsingar á þann hátt að eftir er tekið og er ekkert að skafa utanaf hlutunum í því sem hún skrifar.

Það sem stendur mörgum fyrir þrifum við skriftir er óttinn við endurtekningar. Hugsunin fer í eilífa hringi og ekkert er við því að gera. Bloggið losar mig að minnsta kosti við endurtekningaróttann. Ég endurtek mig ekki oft í hverju bloggi. Þegar ég hef lokið við mína blogg-grein og sent hana út í eterinn eftir að hafa lesið hana sæmilega yfir bæði með tilliti til réttritunar og endurtekninga verður ekki aftur snúið. Ekki fer ég að breyta gömlum bloggum. Man ekki eftir að hafa leiðrétt blogg nema nokkurra mínútna gamalt.

Síðan endurtek ég mig sjálfsagt í einhverju framtíðarbloggi en við því er lítið að gera. Ekki einu sinni víst að aðrir taki eftir því.

Athugasemdirnar eru sér kapítuli. Þær les ég varla yfir og breyti engu enda held ég að ég geti það ekki eftir að þær eru einu sinni farnar frá mér. Þarna er ég bæði að tala um athugasemdir á mínu eigin bloggi og öðrum.

Farsímar, blog, msn, facebook, twitter og hvað þetta allt heitir er í óða önn að breyta heiminum. Að minnsta kosti þeim heimi sem við þekkjum. Ég er samt orðinn svo gamall að ég treysti mér ekki til að fylgjast með þessu öllu. Bloggið hentar mér ágætlega. Þar get ég látið móðann mása og svo eru þónokkrir sem láta svo lítið að lesa þetta. Meira get ég ekki farið fram á.

Siggi Árna, sem eitt sinn var formaður Verklýðsfélagsins í Hveragerði og baðvörður á sínum tíma í frægum leirböðum sem voru á hverasvæðinu skammt þar frá sem draugasundið kom seinna, var sannfærður kommúnisti og mikill aðdáandi alls sem rússneskt var. Hann keypti sér rússajeppa þegar farið að flytja þá inn og allir sem efni höfðu á því gátu fengið sér bíl. Sagt er að Siggi hafi strax skrúfað öll dekkin undan bílnum og farið með þau inn í stofu. Hleypt þar loftinu úr þeim og sagt með sælusvip: „Júððnest loft, júððnest loft!!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

er ekki bara aðaltíminn hjá leiðsögumönnum núna ?  Lára Hanna er leiðsögumaður.

Óskar Þorkelsson, 3.7.2009 kl. 00:35

2 Smámynd: Eygló

Lára Hanna kann að hafa orðið pólitískari með tímanum.  En ég held að það sé nokkuð ljóst og jafnvel almennt viðurkennt að allflestir hafa orðið það eftir þessar holskeflur.  Fyrir ekki alltof löngum tíma hefði ég hengt mig uppá (næstum) það að ég ætti aldrei eftir að tjá mig um neitt sem tengdist stjórnmálum og allra síst hálfopinberleg.  Svo er ég hér og ríf kjaft :)

Eygló, 3.7.2009 kl. 00:44

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Óskar: Jú, eflaust.

Maí: Já, eiginlega er hægt að segja að ný veröld hafi orðið til með bankahruninu. Hugsunarháttur fólks hefur breyst stórlega.

Sæmundur Bjarnason, 3.7.2009 kl. 01:24

4 Smámynd: Himmalingur

Lára Hanna er að njóta forréttinda okkar íslendinga: Íslenska náttúru! Hennar er sárt saknað! ( Láru Hönnu )

Himmalingur, 3.7.2009 kl. 02:01

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Eflaust rétt athugað hjá þér, Skorrdal. Siggi Árna var svolítið smámæltur og menn höfðu yndi af að herma eftir honum. Rússajepparnir eru samt eftirminnilegir. Moskovitsinn líka og jafnvel Pobedurnar. Mynd af þremur saman á Ölfusárbrúnni sá ég eitt sinn.

Sæmundur Bjarnason, 3.7.2009 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband