597. - Hvernig á að koma vitinu fyrir þá? Og svolítið um hana Rönku rausnarkerlingu

Sjálfstæðismenn eru með böggum hildar eftir að þeir voru hraktir úr stjórn. Skiljanlegt er að þingmenn þeirra séu sárir. Imba plataði Geir með eftirminnilegum hætti.

Pétur Blöndal tafsar svo mikið að hann sleppir miðjunni úr flestum orðum og virðist mismjólka sig í hverri setningu. Sigurður Kári minnir á upptrekktan simpansa úr gömlu apaspili. Það er samt langfyrirkvíðanlegast ef Davíð ætlar að halda áfram að hunsa forsætisráðherrann. Það gæti endað illa.

Á morgun (mánudag) hlýtur að sverfa til stáls í stóra Davíðsmálinu.

Betra er stutt blogg og leiðinlegt en langt og skemmtilegt. Svo löng geta blogg orðið að eftirsjá sé að tímanum sem fer í að lesa þau.

Hún Ranka var rausnarkerling
sem rak eitt hænsnabú.
Og hænurnar urpu eggjum
sem átu ég og þú.

Svo var það einhverju sinni 
með svolítið öðrum brag, 
og Rönku er það ríkt í minni 
hve reiddist hún þennan dag. 
 
Í hænsnakofa hennar
var haldið þann dag ball, 
því haninn hann var ungur 
og hneigður fyrir rall. 

Þetta er upphafið að löngu kvæði sem ég kunni einu sinni að mestu leyti. Þetta er frásaga um verkfall í hænsnakofa ef ég man rétt. Ég held að haninn hafi bent hænunum á að ekki væri hann að hamast við verpa eggjum en hefði það þó ágætt. Hænurnar ætluðu síðan að gera eins en Ranka kom þeim í skilning um annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ófrjálsar hænur!

Helga Kristjánsdóttir, 8.2.2009 kl. 05:31

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kannski.

Annars sést víst á eggjunum hvort þær eru frjálsar eða ófrjálsar!!

Sæmundur Bjarnason, 8.2.2009 kl. 06:10

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Einhverja þeirra er ekki hægt að koma vitinu fyrir.  Spurning að taka af þeim kosningaréttinn ? 

Anna Einarsdóttir, 8.2.2009 kl. 13:00

4 Smámynd: Eygló

Láta alla í einn sal og leyfa þeim að spila Matador. Fróðlegt að vita hver þeirra endaði með alla peningana OG hvernig hinir hegðuðu sér eftir þá niðurstöðu. Kannski væru einhverjir búnir að fela peninga hér og þar.

Eygló, 8.2.2009 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband