563. - Jú, það ber ekki á öðru. Ég er orðinn ósýnilegur eins og fleiri. Líka svolítið um kryddsíldaruppþotið við Hótel Borg.

Nánar tiltekið þá hafa Moggabloggsguðirnir tekið mig af einhverjum listum og nú birtist upphafið á bloggum mínum ekki á forsíðunni og ekki í upplýsingum um nýjustu bloggin. Ég get víst heldur ekki linkað í fréttir á mbl.is en það hef ég hvort eð er ekki gert svo það er bættur skaðinn. Þetta hefur eitthvað með samkeyrslu þeirra Moggamanna á sínum eigin kennitölulistum og þjóðskránni að gera.

Eitt er gott við þetta og það er að nú ættu þær tölulegu upplýsingar um heimsóknir sem ég fæ að vera raunverulegri. Eflaust hefur stundum verið tilviljanakennt áður hverjir hafa rekist hingað inn. Kannski hefur þetta einhver áhrif á hve oft ég skrifa og hvernig. Sjáum til.

Stuðningur við eða andúð á ákveðnum atburðum fer mest eftir þeim upplýsingum sem maður fær. Uppþotið við Hótel Borg á gamlársdag ber langhæst í allri fréttaumfjöllum. Sjálfum finnst mér frásögn Eyþórs Árnasonar sviðsstjóra hjá Stöð 2 og bloggvini mínum bera af. Auðvitað varð hann ekki sjónarvottur að öllu sem gerðist þarna. Hann lætur líka vera að dæma um það sem hann sá ekki.

„Eru þeir kallaðir stúdentar af því að þeir eru alltaf að stúta rúðum?" spurði sonur minn sem var nýfarinn að tala þegar sem mest gekk á í óeirðum víða um heim fyrir margt löngu. Til dæmis í París en þó ekki að ráði á Íslandi. Nú eru alvöru óeirðir ef til vill að skella á okkur Íslendingum.

Mér virðist sem aðalágreiningurinn milli mótmælendahópa sé hvort hylja skuli andlitið eður ei. Engir vilja meiða aðra. Ekki heldur lögreglan. Andlitsleysi fylgja oft óeirðir sem leiða jafnvel til atburða sem engir vilja sjá. Nafnlaus fjöldi sem fyllir göturnar er aftur á móti það sem stjórnvöld óttast allra mest. Ég styð Hörð Torfason í því sem hann er að gera.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þegar bloggarar eru gerðir ósýnilegir á þennan hátt og Morgunblaðið er nú að gera þá hrynur líka lesturinn á þeim. Mér finnst miklu hreinlegra að það sé alveg lokað á þá bloggara sem Mogginn útilokar og það eru ekki allt nafnleysingjar - samanber mig og þig - heldur en vera með svona mismunun sem ekki er hægt að kalla annað en andlegt ofbeldi. Mogginn hlustar heldur ekki á neinar skýringar. Hann valtar bara yfir okkur. Mér finnst líka ömurlegt að þeir bloggarar sem ekki lenda í neinum vandræðum  skuli ekki lyfta upp litla fingri þeim til varnar sem verða fyrir útilokun.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.1.2009 kl. 16:38

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, ég er búinn að skrifa þeim á Moggablogginu tvisvar en þeir ansa mér ekki. Lesturinn hrynur en gerir það eitthvað til? Það er allt í lagi að blogga fyrir svolítið færri en áður. Þeir Moggamenn vilja frekar Ástþór en okkur og mér er svosem sama. Þeir vilja hafa allar reglur auðveldar og þægilegar fyrir sig. Sama um aðra. Mig minnir að Sigurður Hreiðar sé í sömu stöðu og við. Fyrrverandi forsíðubloggari en nú kominn útaf sakramentinu.

Sæmundur Bjarnason, 6.1.2009 kl. 23:43

3 identicon

Svona, svona kallar - veriði ekki með þetta svartagallsraus!  Þið haldið bara áfram að blogga fyrir okkur skemmtilega fólkið!   Hvað er svosem unnið við það að skrifa endilega fyrir allan fjöldann?  Það eru gæði okkar lesendanna sem skipta máli en ekki fjöldinn.   Verið áhyggjulausir - við erum allmörg hérna úti sem kunnum að meta skrifin ykkar!

Ég skal lofa því að halda áfram að lesa ykkur alltaf.  Jafnvel margoft á dag þessvegna - ef ykkur líður betur við það.

Promise!

Malína 7.1.2009 kl. 04:25

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Sæmi. geturðu ekki fengið moggamenn til að eyða gamla blogginu? þessu sem misfórst að stofna. þessu sem er á þinni kennitölu.

eyði þeir því geturðu stofnað nýtt, á þinni kennitölu.

Brjánn Guðjónsson, 7.1.2009 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband