517. - Samfylkingin þarf að fara að sýna tennurnar. Það vinnst ekkert á því að vera bara viðhengi Sjálfstæðisflokksins

Já ég kaus Samfylkinguna í síðustu kosningum og fannst óvitlaust hjá Ingibjörgu að þiggja stjórnarþátttöku með Íhaldinu. Það er ekki fyrr en núna í bankakreppunni sem ég er farinn að verða verulega óánægður með stjórnarþátttöku Samfylkingarinnar. 

Það er ekki hægt að lafa endalaust í kjólfaldi Geirs. Það þarf að gera eitthvað. Það þarf að tala við fólk og útskýra hvað er að gerast. Ekki bara með fáeinum orðum á misheppnuðum blaðamannafundum eða nokkrum setningum í Silfri Egils. Heldur með samtölum við venjulegt fólk. Fundum út um allt. Fjölmörgum. Ef einhvern tíma var ástæða til að reka pólitískan áróður þá er það núna. Eigum við að horfa uppá að allt sem boðið er uppá séu afsagnir fáeinna framsóknarmanna og bollaleggingar um það hvort Þorgerður Katrín þori hugsanlega í formannsslag við Geir góða?

Þegar einhver af forystumönnum Samfylkingarinnar sýnir örlítið sjálfstæði gagnvart yfirgangi Sjálfstæðisflokksins skal ég viðurkenna að það er ef til vill ekki þeirra æðsti draumur að hanga á ráherrastólunum eins og hundar á roði. Fyrr mun ég ekki gera það.

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að Samfylkingarforkólfar ætli sér að sitja út núverandi kjörtímabil í óbreyttu stjórnarsamstarfi eins og ástandið í þjóðmálum er. Með því tryggja þeir að Samfylkingin verður aldrei annað en lítill flokkur hræddra sérvitringa og valdastreitumanna.

Af hverju aðhafðist Samfylkingin ekki neitt þó ráðherrum í ríkisstjórninni hafi verið það mæta vel ljóst lengi að í óefni stefndi? Af hverju eru ráðherrar Samfylkingarinnar allir í felum og þora ekki að segja neitt? Ingibjörg segist vera á móti veru Davíðs í Seðlabankanum en lætur þar við sitja. Eru forystumenn flokksins tóm dusilmenni og hengilmænur?

Sá áðan í sjónvarpinu Guðbjörgu Hildi bloggvinkonu mína. Hún var þar að ræða um blogg og annaðhvort kom það fram í hennar máli eða þáttarstjórnanda að þeir sem ég hef viljað kalla forsíðubloggara hjá Moggablogginu séu 200. Margt annað athyglsvert kom þarna fram og ég er alls ekki frá því að talan 200 sem þær nefndu sé mjög nærri lagi. Þegar ég var að byrja að blogga minnir mig að ekki hafi þurft nema svona 250 gesti á viku til að komast á vinsældalistann yfir þá 400 bestu. Nú virðist þurfa hartnær 600 gesti til að ná því sama. Samkvæmt þessu eru vinsældir Moggabloggsins mikið að aukast. Mig minnir að það kæmi einnig fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti að Moggabloggarar líti niður á aðra slíka. Það væri þá athyglisverður viðsnúningur því upphaflega var litið mjög niður á Moggabloggararæflana.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

algerlega sammála þér Sæmi.  góður pistill hjá þér. 

Þetta er einhver aumasta ríkisstjórn frá stofnun lýðveldisins.  

Óskar Þorkelsson, 19.11.2008 kl. 00:11

2 identicon

Það voru mistök hjá þér að kjósa Samtrygginguna, afsakið Samfylkinguna, Sæmundur.  Þessi flokkur er handónýtur, búinn til úr afgögnum.

Samfylkingin hafði bara eitt á stefnuskrá sinni fyrir síðusta kosningar, og það var að vera í ríkisstjórn.

Núna hefur þessi hentistefnuflokkur það á stefnuskrá sinni ESB, Evra og Davíð Oddsson.

Adam Freyr Ólafsson 19.11.2008 kl. 08:55

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Mér hefur alltaf fundins Samfylkingin ótrúverður flokkur,kannski allt í lagi meðan allt lék í lindi, en ef að þarf að fara taka erfiðar og óvinsælar aðgerðir þá veit ég að hann hleypur í burt með skottið milli lappana.

Ragnar Gunnlaugsson, 19.11.2008 kl. 09:50

4 identicon

Nú þegar búið er að skerpa á því sem þegar var vitað fyrir, þ.e. að ríkisstjórnin, bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, vissu af yfirvofandi neyðarástandi, þá reynir Samfylkingin allt til þess að varpa ábyrgð frá sjálfri sér. Ekkert getur breytt þeirri staðreynd að Samfylkingin brást ekki við og sat í stjórn þegar hrunið dundi yfir.

Og hvaða lausnir býður Samfylkingin upp á? ESB og evru, jafnvel þótt vitað sé að evran verði í fyrsta lagi komin til skjalanna eftir að kreppan verður liðin hjá. Svar Samfylkingarinnar er það að henda sjálfstæði landsins í ruslið og ganga í ríkjasamband þar sem áhrif okkar verða engin og ein helsta auðlind landsins verður afhent skriffinnum í Brussel.

Eins og venjulega verður lýðskrums leiðin fyrir valinu hjá Samfylkingunni. Þetta lið heldur því fram að evran ein geti bjargað þjóðinni og það þrátt fyrir að nú sé viðskiptajöfnuður orðinn jákvæður, sem hjálpar okkur í kreppunni, þökk sé krónunni. En lýðskruminu er vel tekið í þjóðfélaginu að mestu leyti vegna þess að að stór hópur fólks tók áhættusöm gjaldeyrislán og getur nú ekki með nokkru móti viðurkennt mistök sín. Þetta fólk er að hugsa um eigin hagsmuni þegar það óskar eftir evru, ekki hagsmuni landsins og ALLRAR þjóðarinnar.

Ef við hefðum haft evru nú þegar kreppan reið yfir hefði aðlögunin og neyslubremsunin gengið miklu hægar yfir. Það þýðir einfaldlega það að fólk hefði haldið áfram að eyða um efni fram langt fram eftir öllu og staða grunnatvinnuvega hefði ekki skánað.

Þorgeir Ragnarsson 19.11.2008 kl. 10:54

5 identicon

Ja bragd er ad ta barnid finnur !

Eg segi nu ekki annad.

Og nu er tad ad koma i ljos ad Sedlabankastjorarnir attu 6 krisufundi med Geir Haarde, Arna Matt og INGIBJORGU SOLRUNU GISLADOTTUR, tar sem varad var vid erfidri stodu bankanna.

Samt sagdi hun ekki Bjorgvini G. ne odrum samradherrum sinum i Samfylkingunni fra tessum fundum eda hvad tar hefdi komid fram.

Hvar eru "samraedustjornmalin" nu !

Hvar er Borgarnesraedan nu !

Hvurslags eiginlega er tetta. Tarf tessi manneskja ekki ad taka abyrgd a tessu pukri sinu og upplysingaleysi i jafn alvarlegu mali og hrun efnahagskerfisins er.

Ef tessi manneskja segir ekki af ser, ta verdur Bjorgvin G. ad gera tad til tess ad motmaela svona medferd og virdingarleysi gagnvart ser og embaetti sinu.

Eg vorkenni nu Bjorgvini G. og skil ad abyrgd hans var miklu minni en eg adur helt.

En stada og abyrgd Ingibjargar Solrunar er svo sannarlega alvarleg svo ekki se meira sagt.

Svo er eg innilega sammala tvi sem Adam Freyr segir her. Samfylkingin hefur nefnilega engar lausnir a vandamalunum og eg treysti teim alls ekki til tess ad leida tjodina okkar utur tessum hremmingum.

Teir hafa engar lausnir ne stefnu nema koma okkur i ESB med godu eda illu og svo ad pua a David Oddsson en gera svo ekkert i tvi.

Tetta er tvilikur lydskrumara flokkur VALDA OG PUKURS og hefur nu lika synt sig i ad vera LANDRADAHYSKI sem er alls ekki treystandi fyrir tjodarhagsmunum   

Gunnlaugur Ingvarsson 19.11.2008 kl. 12:42

6 identicon

Mikið asskoti hittiði vel á naglann, engu líkara en þið hafið verið með hamarinn, en ekki á milli hauss og höfuðs, eins og þessi glæpsamlegi almenningur sem var svo vitlaus að taka sér lán í erlendri mynt og jarmar nú á evru. Það er svo gaman að ykkur þessum dollaraköllum. Ég held að flestir sem "vilja evru" geri sér grein fyrir því að til þess að eitthvert vit verði fyrir fólk að búa á Íslandi, nema til þess að vinna,éta og sofa, þá verðum við að ganga í ES. Ef við töpum einhverju af sjálfstæðinu við það, þá verður bara að hafa það. Mér hrís hugur við því að búa við það "sjálfstæði" sem við búum við núna og höfðum búið við s.l. áratug. Og ég er alveg sáttur við að "afhenda sjálfstæðið einhverjum skriffinnum í Brussel" ákvörðunarrétt um hvað á að gera í bankakrísum, eins og þeirri sem nú ríður yfir. Get allavega ekki séð að sjálfstæðið hjálpi einum eða neinum að hanga á horriminni hér á landi. Svo röfla þeir sem eru á móti ES-aðild um að við missum yfirráð yfir auðlindunum og þá er átt við fiskikvótann, en mig langar að biðja menn að spyrja sjálfa sig einnar spurningar: Á ég mikinn kvóta og ræð ég einhverju um það hverjir veiða kvótann, ef ég á einhvern? Það er engu líkara en allt hrynji til andskotans ef þessir hefðbundnu útgerðarsjálfstæðismenn þurfa að taka þátt í íslensku þjóðlífi, t.d. með sköttum og slíku. Og dettur einhverjum í hug að fiskveiðar leggist niður við landið ef við göngum í ES?

Kristján Elíasson 19.11.2008 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband