1517 - Occupy everything

Scan232Gamla myndin.
17. júní í Reykjavík.

Jónas Kristjánsson jónasast mikið yfir því að tjaldbúar á Austurvelli hafi tjaldað á vitlausum stað. Það finnst mér ekki vera. Að þeir noti enska orðið occupy finnst mér líka vera í góðu lagi. Hreyfingin sem á uppruna sinn í Occupy Wall Street getur vel orðið að alheimshreyfingu innan skamms. Stjórnmálalandslag á Vesturlöndum hefur breyst. Ekki er lengur hægt að níðast með sama hætti og áður á almenningi. Það 1 % sem hingað til hefur stjórnað heiminum er að hamast við að finna nýjar aðferðir. Ekki er víst að níutíu og níu prósentin þurfi að gera annað en að bíða. Kannski hrynur spilaborgin strax og blásið verður á hana.

Ekki er kyn þó mótmælendum gangi illa að finna lausnir. Þær eru margar. Allir, eða næstum allir, geta sameinast um að vera á móti eina prósentinu en þá er samstöðunni e.t.v lokið. Ef allir sameinast um að rífa niður þá þarf samt að byggja upp aftur. Þar langar útrásarvíkingana að koma sterkir inn. Forsetann líka. Hann hagræðir seglum eftir vindi og vonast til að finna besta byrinn.

Kannski er best til að gera menn afhuga fésbókinni að kalla allt sem þar fer fram lágmenningargutl. En hvað er lágmenningargutl? Er það ekki skárra en Menningarsnobbið sem öllu tröllríður og þykist allt vita best? Setti þjóðina á hausinn og er núna að reyna að klóra sig uppúr skítnum. Svona fimbulfamb og nafngiftir er það sem best á heima á blogginu. Sumir reyna að vísu að vera ögn lágstemmdari, en það heyrist bara ekkert í þeim.

Af hverju eru allir svona æstir? Jafnvel biskupinn talar um mannorðsmorð og annað þaðan af verra. Hvað er eiginlega hlaupið í umræðuna? Eru allir orðnir vitlausir?

Skelfing er fátt áhugavert á netinu – not.
Ég er að hugsa um að blogga á eftir – kannski.
Myrkið er svart – einmitt.
Svo ég fer líklega bara að sofa – bráðum.
Er þetta ljóð – Veit ekki.

IMG 6964Menntaskólinn í Reykjavík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allir löngu vitlausir mar, sérstaklega biskup :)

DoctorE 1.11.2011 kl. 09:09

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þetta er pottþétt ljóð Sæmi. - Annars er "occupy" sótt í amerískt hermannamál. Að hernema allt og alla er þeirra háttur. Róttækir aðgerðasinnar apa þetta eftir. - Sammála þér um að það dragi stutt að vera á móti, án þess að geta boðið fram einhverjar lausnir.- Margir halda, eina ferðina enn, að það þurfi bara að skipta um stjórn.  Að skipta ört um stjórnarherra, rétt eins og bleyjur á smábarni og af sömu ástæðu, getur ekki verið lausn til frambúðar.

Svanur Gísli Þorkelsson, 1.11.2011 kl. 20:58

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Svanur. Já, occupy er vandræðaorð. Meiningin er Íslendingum nokkuð framandi.

Allir geta sameinast auðveldlega um að vera á móti einhverju en þurfa samt þegar á reynir að sameinast um að vera MEÐ einhverju.

Sæmundur Bjarnason, 2.11.2011 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband