1416 - Saga Akraness

Untitled Scanned 30Gamla myndin.
Guðmundur Bjarnason, Örn Jóhannsson og Kristinn Antonsson. Engir smá töffarar.

Páll Baldvin Baldvinsson dæmir bókina Sögu Akraness hart. Mjög hart. Ég hef á tilfinningunni að hann hafi a.m.k. litið yfir það sem Harpa Hreinsdóttir hefur skrifað um bókina og tilurð hennar. Kannski treystir hann á alla þá rýnivinnu sem hún hefur framkvæmt. Fyrir mér er þetta alltsaman nokkuð dæmigert fyrir það að óhæf nefnd (í skjóli bæjarstjórnar) sér eftir þeim peningum sem búið er að henda í ákveðið verk og ákveður að henda meiri peningum í það í þeirri von að vanhæfi þeirra blasi ekki eins við. Bókin er misheppnuð mjög og dýr þar að auki.

Las dóm Páls Baldvins og fyrir utan öll stóryrðin tók ég eftir því að hann fullyrti að enginn ritstjóri hafi verið að verkinu. Það er kannski helsti gallinn. Úr kenningum Gunnlaugs og efni því sem hann virðist hafa haft undir höndum hefði verið hægt að gera eina snotra bók í skikkanlegu bandi. Stór hluti bókarinnar held ég að eigi ekkert erindi á prent. Sú ákvörðun að hafa bókina svona stóra og þunga og prentaða á svona vandaðan pappír er líklega til þess að geta afsakað betur allt það fé sem hent hefur verið í þessa hít.

Sko, á föstudaginn fór ég að vinna eftir hádegið og síðan beint til Akureyrar og hef verið í algjöru netfríi síðan þangað til núna rétt áðan. Þ.e.a.s. um klukkan 22 á þriðjudagskvöldi. Ýmislegt hefur á mína daga drifið á þeim tíma og ekki síður á daga bloggsins míns. Ég er víst búinn að tapa flestum bréfskákunum mínum á tíma en það gerir lítið til. Sé að ég hef verið byrjaður á bloggi á föstudaginn og það fer hér með á Moggabloggið, en ekki mikið annað.

Athugasemdirnar við mitt síðasta blogg, sem ég setti upp eftir miðnætti á fimmtudagskvöldið síðasta, eru nokkuð góðar og ég var að burðast við svara einhverjum þeirra áðan.

Af því fésbókin var ekki nærri nógu flókin er nú búið að finna upp eitthvað sem heitir Netlog. Ég er mestu hættur að botna nokkuð í fésbókinni svo ég reikna ekki með að fara þangað nema öðru hvoru framvegis og þá aðallega til að tékka ég bréfskákunum. Hinsvegar á ég von á að halda áfram að blogga á Moggablogginu, fái ég það.

IMG 6044Háskólinn í Reykjavík, einu sinni enn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ertu búinn að lesa bækurnar, Sæmundur?

Fáir hafa verið níddir sem Gunnlaugur að undanförnu. Sjálfur hef ég ekki lesið verkið, en þekki Gunnlaug að góðu einu, þetta er fjarri því að vera latur verkmaður, hann er þvert á móti með afkastamestu rithöfundum og hefur skilað frá sér glæsilegum verkum, m.a. MA-stúdentum í fjórum þykkum bindum, læknatalinu nýja (4 bindi) og Guðfræðingatali í tveimur bindum.

Þeir ættu að reyna að standa sig betur en hann, þeir sem ata hann auri.

Og vitaskuld fóru ekki 100 milljónir í hans vasa. Prentkostnaður er dýr og öflun og verkun mynda o.s.frv.

Jón Valur Jensson, 13.7.2011 kl. 02:14

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nei, Jón Valur ég er bara búinn að lesa seinna bindið og það ekki vandlega. Ég tel mig ekki þurfa að lesa allt verkið til að mynda mér skoðun á því. Ég er búinn að lesa talsvert UM málið, bæði lof og last. Man ekki eftir að ég hafi látið nein ummæli falla um fagmennsku Gunnlaugs né að milljónirnar (sem ég hélt reyndar að væru um 120 á núvirði) hefðu allar farið til hans. 

Sæmundur Bjarnason, 13.7.2011 kl. 07:38

3 identicon

Hér er tilvísun í blogg Hörpu hrreinsdóttur;"Kostnaður við Akranes. Frá landnámi til 1885 var, eins og sagði í síðustu færslu, rétt rúmlega 15 milljónir og 223 þúsund á núvirði, fyrir utan laun ritnefndar.1 Heildarkostnaður Akraneskaupstaðar við ritun Sögu Akraness frá 1987 til dagsins í dag er á núvirði 120.065.065 kr.  Fyrir þessa upphæð fáum við bæjarbúar tvöfalda útgáfu af sögu svæðisins frá landnámi til 1800, þ.e. útgáfu Jóns Böðvarssonar og útgáfu Gunnlaugs Haraldssonar. Virðist ævintýrinu hvergi nærri lokið því á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árin 2012 og 2013 er gert ráð fyrir 4,2 milljónum hvort ár í söguritunina endalausu"

Sem sagt; heildarkostnaður við ritun verksins er 124 milljónir á núvirði.

Hrafn Arnarson 13.7.2011 kl. 08:15

4 identicon

Ég leyfi mér að efast um að Mr. JVJ sé dómbær á bækur, hvað þá sannleiksgildi þeirra :)

doctore 13.7.2011 kl. 10:23

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér svarið, Sæmundur. Það er alveg ljóst, að til að leggja mat á kostnaðinn og verklaun Gunnlaugs þurfum við sundurliðaðar tölur, m.a. um pappírs- og prentkostnað. Hvergi hef ég mælt með neinu bruðli í slík verkefni, en dómstóll götunnar á Eyjunni og víðar hafði í raun enga forsendu til að dæma um þetta.

Jón Valur Jensson, 13.7.2011 kl. 11:11

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Mér finnst "dómstóll götunnar" á Akranesi skipta mestu máli í þessu sambandi. Þar hefur þetta mál verið lengi umtalað og til viðbótar við það sem áður er sagt hefur þetta verkefni tekið óhóflega langan tíma. Bæjarstjórnin þar mun áreiðanlega þurfa að svara fyrir þessar tölur (sundurliðaðar eftir þörfum) í næstu kosningum.

Sæmundur Bjarnason, 13.7.2011 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband