1040 - Nokkur spakmæli

Frestaðu því aldrei til morguns sem þú getur alveg eins gert hinndaginn.

Ekkert er svo einfalt að ekki sé hægt að klúðra því.

A feature is a bug with seniority.

Þegar þú ert byrjaður að skilja hvernig tölvan þín vinnur þá er hún orðin úrelt.

Sælir eru unglingarnir því þeir munu skuldirnar erfa.

Sá sem brosir í erfiðleikum er búinn að finna einhvern til að kenna um.

Láttu mig vita ef þú hefur ekki fengið þetta bréf.

Númerið sem þú hringir úr hefur verið aftengt.

Framtíðin er eins og nútíðin nema lengri.

Nú þegar ég hef gefið upp alla von líður mér miklu betur.

Enginn sleppur lifandi frá lífinu.

Það er lífshættulegt að verða gamall.

Hreint skrifborð er merki um troðfullar skrifborðsskúffur.

A clean desk is sign of a sick mind.

Bannið ruslpóst og bjargið trjánum.

Sannleikurinn er bara enn einn misskilningurinn.

Mánudagar eru rót alls ills.

Stöðugar breytingar eru komnar til að vera.

Skerðu pizzuna i 6 sneiðar ég get ekki borðað 8.

Ég er ekkert búinn að tapa vitinu. Það er backup hérna einhvers staðar.

Ef verkið heppnast ekki í fyrstu tilraun skaltu eyða öllum ummerkjum um að þú hafir reynt.

Ef þér mistekst allt í fyrstu tilraun er fallhlíffarstökk ekki fyrir þig.

Ef ég bjarga hvölunum, hvar á ég þá að láta þá?

Farðu að mínum ráðum. Ég þarf ekki á þeim að halda.

Munnlegur samningur er ekki virði pappírsins sem hann er skrifaður á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikil vinna er ekki hættuleg en af hverju að taka áhættuna?

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 5.6.2010 kl. 07:35

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Enginn er verri þó hann sökkvi.

Hrannar Baldursson, 5.6.2010 kl. 17:43

3 Smámynd: Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Sæll, Sæmundur. Skemmtileg spakmæli. Samdir þú þau sjálfur eða þýddir þú þau? (Ég hefði gaman af að nota eitt eða tvö þeirra.)

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, 5.6.2010 kl. 17:58

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hannes, þú mátt nota eins og þú vilt af þessu. Ég fann þetta á blaði hjá mér um daginn. Sumt er áreiðanlega þýtt. Sumu hef ég kannski fundið uppá eða breytt, ég man það ekki. Á sínum tíma safnaði ég svona saman (og ýmsu fleiru) og birti í "Rafritinu" sem er ásamt ýmsu öðru á vef Netútgáfunnar. (snerpa.is/net)

Hrannar. Já, það er oft skemmtilegt að snúa útúr eða breyta aðeins alþekktum málsháttum. Svo gaman að ég segi stundum alveg óvart eitthvað þannig. (Það er ekki hundur í hættunni. Svo lengist lífið sem lærið o.s.frv.)

Sæmundur Bjarnason, 5.6.2010 kl. 18:35

5 identicon

Farðu að mínum ráðum. ég þar ekkert á þeim að halda. Skerðu bara pizzuna i 6 sneiðar, þú getur hvort sem ekki borðað 8.

Ólafur Sveinsson 6.6.2010 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband