1019 - Uppstigningardagur eða Siggi var úti

Eftir því sem fleiri fréttir berast af eftirlýsingum, kyrrsetningum eigna, gæsluvarðhöldum og þess háttar hjá útrásarvíkingunum íslensku því auðveldara verður mér að þola þær kárínur sem efnahagsástandið síðustu misseri hefur valdið mér. Auðvitað á þetta ekki að vera svona. Ófarir annarra eiga ekki að hafa áhrif á sálarástand mitt. En svona er þetta og ég get ekkert að þessu gert.

Ég get ekki hætt að blogga. Vonandi gleðjast einhverjir yfir því. Sjálfum finnst mér það skaði því ég vildi svo gjarnan skrifa eitthvað markverðara. Er ég kannski sjálfur haldinn þeim fordómum gagnvart bloggi sem ég saka aðra stundum um? Veit það ekki en vildi svo gjarnan að bloggskrif væru ekki litin öðru eins hornauga og þau vissulega eru.

Hvers eigum við bloggarar að gjalda að vera álitnir svona óalandi og óferjandi? Erum við ekki alltaf að rembast við að vera gáfulegir og snjallir þó við fáum ekkert fyrir það nema skít og skófir og allt sem verst er í koppi kerlingar að hurðarbaki? Nú er ég víst farinn að endursegja þjóðsögur eða þess háttar.

Í stórum dráttum má segja að fimmtudagar falli niður á vorin sem kennsludagar og vinnudagar. Fyrsti maí er jafnvel stundum á fimmtudegi. Þetta er svolítið bagalegt en venst. Skyldi þetta vera svona annarsstaðar líka?

Sé alltaf dálítið eftir fyrsta desember. Einhver vorfimmtudagurinn eða jafnvel öskudagurinn hefðu mátt fjúka í staðinn. Fannst fyrsti desember alltaf svolítið hátíðlegur í gamla daga. Föstudagurinn langi hins vegar óskaplega langur og leiðinlegur. Helst átti manni að líða illa held ég.

Baggalútur segir að eftirfarandi vísa sé eftir Grím Thomsen. Því trúi ég varlega en útúrsnúningurinn er góður og í stíl við það sem allir hafa verið að hamast við í dag:

Siggi er úti og neglurnar nagar
það næst ekki í hann, með veggjum hann fer.
Logandi hræddur um Lundúnir kjagar
með lágfótu kroppandí hælaná sér.

Agga-gagg segir Eva á grjóti.
Agga-gagg hvæsir tófan á grjóti.

Alllanga tugthúsvist ætla ég hann hljóti,
- aumingja Siggi hann þorir ekki heim.

Og að síðustu fáeinar myndir:

IMG 1834Með húsið á bakinu. (Á svörtu malbiki, því miður)

IMG 1835Er tréð ekki fullstórt fyrir þetta hús?

IMG 1838Glæsilegur inngangur.

IMG 1843Sólstólar í úrvali.

IMG 1847Í sól og sumaryl.

IMG 1848Gamall staur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vissulega líta margir blogg og bloggara hornauga, enda bloggarar náttúrulega með óþolandi skoðanir á allt og öllu ;-)  Og vissulega eru inn á milli "rugludallar" og öfgasinnar á ýmsum sviðum en maður lærir fljótt að forðast þá. 

Fyrir mér gegna bloggarar gríðarlega mikilvægu hlutverki í þjóðmálaumræðunni.  Ég bara gæti ekki hugsað mér að vera án ykkar, get bara ímyndað mér hvernig maður hefði upplifað Hrunið ef maður hefði þurft að treysta bara á íslenska fjölmiðla sem flestir í eigu stórra hagsmunaaðila Hrunsins.  Skiljanlega þola margir ykkur ekki fyrir vikið, þeirra verk (að sannfæra okkur um sakleysi sitt) hefði verið svo miklu auðveldara án ykkar.  Svo endilega keep up the good work :-) 

ASE 13.5.2010 kl. 09:36

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk ASE. Ég hugsa að margir séu þér sammála um að viðbrögðin við Hruninu hefðu verið öðruvísi ef bloggið hefði ekki komið til.

Sæmundur Bjarnason, 13.5.2010 kl. 09:55

3 Smámynd: Brattur

... hef aldrei séð þetta orð "kárínur" áður... enda að norðan  hvað þýðir þetta nákvæmlega ?

Brattur, 13.5.2010 kl. 13:24

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kárína þýðir eiginlega refsing fyrir drýgða synd en er oftast notað í miklu víðtækari merkingu. Grikkur, hrekkur, áfall eða hvað sem er af neikvæða taginu.

Sæmundur Bjarnason, 13.5.2010 kl. 17:16

5 identicon

Ég held að bloggið sé afar góð viðbót við alla þjóðmálaumræðu. Jafnvel þótt deila megi um gæðin hjá hverjum og einum þá hefur bloggið opnað á marga vinkla sem annars gætu hafa farið framhjá fólki.

Hins vegar er agalegt þegar bloggið er notað til að níðast á fólki í stað þess að vera málefnalegt.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 14.5.2010 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband