993 - Aukin reiði

Nú eftir útkomu hrunskýrslunnar skynja ég aukna reiði fólks í garð útrásardólganna. Ekki kæla eldgosin hugi fólks. Skoðanakannanir munu ef til vill sýna þessa reiði. Veit samt ekki hvernig hún muni brjótast út á endanum. Vonandi með sem mildustum hætti. 

Mín skoðun er að hvorki Björgvin G. Sigurðsson né Illugi Gunnarsson eigi afturkvæmt í íslensk stjórnmál. Breytingar eru einnig vel hugsanlegar í forystuliði Sjálfstæðisflokksins og þinglið hans og fleiri flokka má sannarlega hugsa sinn gang. Ég er ekki spámaður og veit auðvitað ekkert hvernig þessi mál fara öllsömul en augljóst er að almenningur mun ekki lengur sætta sig við að verða féflettur á sama hátt og verið hefur undanfarin ár og áratugi.

Meðlimir rannsóknarnefndarinnar og helstu aðstoðarmenn eru hetjur dagsins. Krafa fólks um að hendur verði látnar standa fram úr ermum við rannsókn á afbrotum útrásarvíkinganna og stuðningsmanna þeirra meðal stjórnvalda er orðin svo hávær að engin eldgos, undirbúningur sveitarstjórnarkosninga eða hræðsla þeirra sem eiga að sjá um rannsóknina, draga úr henni. Ef ekki verður hreyfing í átt til aðgerða mjög fljótlega má búast við að einhverjir taki til sinna ráða.

Og nokkrar myndir:

IMG 1619Rótarhnyðja, eða hvað?

IMG 1584Borgarspítali og Kringlumýrarbraut.

IMG 1586Súludans utanhúss.

IMG 1613Mannvirki á Reykjavíkurflugvelli.

IMG 1617Vinnuskólinn í Reykjavík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er orðinn alveg öskureiður. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.4.2010 kl. 01:36

2 Smámynd: Kama Sutra

Ég er orðinn miklu vonbetri um framtíð þjóðarinnar eftir að Hrunskýrslan var opinberuð.  Þetta er á allan hátt vandaðra og aðgengilegra verk en ég lét mig nokkurn tíma dreyma um að sjá.  Hún kom þægilega á óvart.  Ég bjóst alltaf við að sjá hvítþvottaskýrslu.

Það fyllir mig bjartsýni að vita til þess að við eigum enn einhverja embættismenn sem skila af sér öðru en fúsk vinnubrögðum.

Vonandi ber okkur gæfa til að spila vel úr þessum niðurstöðum.

Já, ég er nokkuð bjartsýn á framtíðina - og alls ekkert reið lengur.  Maður vissi svosem allan tímann hverjir voru vondu kallarnir og var eiginlega búin að taka út reiðina, fyrstu mánuðina eftir hrunið.  En ég átti aldrei von á að kafað yrði svona djúpt og vondu gæjarnir afhjúpaðir svona algerlega og skýrt eins og gert var í skýrslunni.

Ef ég hefði hins vegar séð fúsk skýrslu þá hefði ég virkilega orðið alvarlega reið - barasta sprungið.

Þessi athugasemd er að verða svo löng að líklega hendir Sæmi mér öfugri út núna fyrir að sníkjublogga.

Ég þori varla hingað inn aftur...

Kama Sutra, 17.4.2010 kl. 02:18

3 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Hvernig sem allt veltur og fer munu allir þeir sem viðriðnir voru óheilindi og fjársvik lenda utan þings. Forystumenn þó ungir séu einsog Bjarni Ben hafa lokið sínum ferli með þessari skýrslu. Það er bara tímaspursmál.

Gísli Ingvarsson, 17.4.2010 kl. 10:01

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll.

Sammála Gísla um að afsögnum á mjög eftir að fjölga. Sennilega er að bresta á flótti í liðinu.

Sæmundur Bjarnason, 17.4.2010 kl. 20:25

5 identicon

 Laugardagsfréttir:

Reiðin eykst.

Ólafur Sveinsson 17.4.2010 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband