989 - Ekki ég

Allir  eru að fjalla um skýrsluna. Að sjálfsögðu. Þó ekki ég. Tímdi ekki að kaupa hana. Skilst að hún hafi kostað sex þúsund spírur og mörgum þótt hún nokkuð góð. Viðbrögðin við henni skipta þó mestu. Sjáum til.

Ró er að færast yfir kommentakerfið mitt. Þar hefur gengið töluvert á að undanförnu. Líklega eru allir að kynna sér hrunskýrsluna miklu sem óðast núna og ekki ætla ég að bæta neinu þar við. Eitthvað fleira verða menn þó að hugsa um. Margir um vinnuna sína að minnsta kosti.

Villi Bjarna gerði svosem rétt í því að neita að taka við verðlaununum í Útsvarinu um daginn en það er hálfvonlaust verk að ætla sér að bojkotta alla vondu kallana. Stjórnvöld fara eins varlega í sakirnar við hefndaraðgerðir og hægt er. Það gæti komið þeim í koll í kosningum. Viðbrögðin við hrunskýrslunni koma þó til með að ráða miklu um framhaldið. Æ, ég ætlaði ekki að tala um hana.

Í vísum má segja allt. Og helst ekki er hægt að svara fyrir sig nema í bundnu máli. Áður fyrr var þó jafnvel hegnt extra fyrir ljót orð sem þannig komust á kreik. Í vísum má jafnvel tala illa um biskupinn eða forsetann að ástæðulausu. En á það sama að gilda um leikrit til dæmis. Mér finnst það ekki. Jú, jú. Ólafur og Dorrit hafa, að sagt er, oft hagað sér eins og kjánar. Samt finnst mér að sýna megi þeim virðingu eða að minnsta kosti embættinu. Og sama er að segja um biskupinn. Auðvitað má gagnrýna þeirra gerðir en það er ekki sama hvernig það er gert. Og persónulegir þurfa menn ekki að vera. Bandaríkjamenn gera óspart grín að sínum forsetum. Við þurfum ekkert að vera eins og þeir.

Vafasamt er að gagnrýna aðra bloggara á bloggi. Eðlilega verða þeir foj við og gætu átt það til að ráðast að manni sjálfum. Ekki er samt hægt að vera alltaf jákvæður og í pollýönnuleik. Gagnrýnina má ekki alveg vanta.

Milljarður hér og milljarður þar, milljarðar allsstaðar. Öll sú fjármálaleikfimi sem stunduð var á Íslandi í gróðærinu var einkum til að bæta hag örfárra. Bankaleyndin átti  að bjarga þeim. Almenningsálitinu flýja þeir þó ekki frá. Bíræfni úrásarvíkinganna var með ólíkindum. Sú stjórnmálastefna sem gat þessa víkinga af sér ætti að gjalda þess að minnsta kosti með því að ráðherrar og þingmenn sem sátu við kjötkatlana fyrir hrun hypji sig í burtu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hvers að kaupa eitthvað, sem þú færð frítt? ;)

http://rna.althingi.is/

Skorrdal 13.4.2010 kl. 08:42

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Satt segirðu. Heildarefnisyfirlit uppá 21 blaðsíðu er eiginlega alveg nóg fyrir mig í bili. Svo getur maður skoðað þetta allt ef maður nennir. Þar að auki er mun meira á Netinu en í prentuðu útgáfunni og á jafnvel eftir að bætast við. Dýrt væri auðvitað að prenta öll þessi ósköp út.

Sæmundur Bjarnason, 13.4.2010 kl. 09:45

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Bæta hag örfárra?

Eða gera örfáa svo viðbjóðslega ríka að þeir gætu ekki bara platað sig inn í fínustu samkvæmi heims, heldur haldið þau?

Hrannar Baldursson, 13.4.2010 kl. 20:32

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hrannar, mismunurinn hjá okkur er bara orðalag. Þegar útrásarvíkingarnir voru að "græða" sem mest hugsuðu þeir bara um sjálfa sig og bjuggust jafnvel við að sleppa. Vissu samt áreiðanlega að í rauninni voru þeir einfaldlega að stela.

Sæmundur Bjarnason, 13.4.2010 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband