984 - Vegaframkvæmdir

Á sínum tíma var ég mjög á móti því að Óseyrarbrúin yrði byggð. Það var dýr framkvæmd á þeirrar tíðar mælikvarða. Er enn á þeirri skoðun að hún hafi verið óþörf á þeim tíma. Borgarfjarðarbrúnni var ég hinsvegar meðmæltur mjög enda stytti hún verulega leið margra. Um Hvalfjarðargöngin þarf ekki að tala enda eru þau svotil nýkomin. 

Nú er rætt um tvöföldun vegarins austur að Selfossi. Margt bendir til að 2+1 mundi nægja og verða mun ódýrari framkvæmd. Efast samt ekki um að fljótlega verður hitt talið bera vott um framsýni mikla. En það er fjármögnum verksins sem vefst fyrir mönnum. Rætt er um vegtoll og hvernig hann verði innheimtur. Þarna verður að fara varlega og þó ekki sé þarna um landsbyggðarskatt að ræða eins og sumir vilja halda fram getur innheimta af þessu tagi skapað úlfúð og ósamkomulag.

Gísli Sigurbjörnsson sem eitt sinn var forstjóri Elliheimilisins Grundar lagði til að komið yrði upp mjólkurleiðslu yfir Hellisheiði og fékk fyrir vikið mynd af sér í Speglinum. Af þeirri framkvæmd varð ekki enda fáránleg mjög. 

Hvað er unnið með því að blogga svona oft og mikið eins og ég geri? Svosem ekki neitt. Mér finnst bara gaman að skrifa. Ef svo eru einhverjir sem vilja lesa þetta þá er það náttúrulega ágætt. Er samt ekki frá því að ég leggi alltof mikla vinnu í þetta og sé of háður því. Þetta er ekki átakalaust þó ég reyni að láta líta svo út. Er eiginlega vakinn og sofinn í því að velta fyrir mér hvað ég eigi að skrifa um. Skrifin sjálf eru ekki mikið vandamál. Lesa bara sæmilega yfir. Velja og hafna, snurfusa og lagfæra svolítið og annað ekki.

Eins og Stefán Snævarr bendir réttilega á voru flestir útrásarvíkinganna um tvítugt þegar verðbólgan stöðvaðist hér á landi. Siðferðismat þeirra er því verðbólgið (eða bara bólgið og úr lagi fært) Allt í einu var farið að verðlauna stíft áhættuhegðun og fjárhættuspil hverskonar en siðferðinu hrakaði. Það er stutt í villidýrið í manninum eins og sálfræðitilraunin fræga um fangana og fangaverðina sannaði á sínum tíma.

Dreymdi síðustu nótt heilmikla vitleysu um það að við Benni, ég og Áslaug vorum úti að labba í Kaupmannahöfn og Benni nappaði sér einhverju að drekka í brúðkaupsveislu þar. Svo urðum við viðskila og ég lenti í ýmsum hremmingum. Meðal annars á alveg myrkum og ljóslausum stað við endann á einhverju húsasundi. Vaknaði svo áður en ég fann þau hin eða komst heim á hótelið aftur.

Og nokkrar myndir:

IMG 1438Undir Hafnarfjarðarveginum forna.

IMG 1446Keilir og Trölladyngja.

IMG 1492Hugsi yfir öllum sviðasögunum.

IMG 1511Árbæjarsafn.

IMG 1563Grýlukerti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á Suðurlandi fátt býr fólk,
en fjandi mikil er þar mjólk,
leiða vildi í heljar hólk,
og hella ofan í gamalt fólk.

Þorsteinn Briem, 8.4.2010 kl. 00:57

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Eins og ég sagði í kommenti hjá Bjarna frænda þínum, þá er ég mjög hlynntur notendasköttum eins og vegtolli. Bæði er það sanngjarnasti skatturinn og ætti að tryggja að ekki sé farið út í óarðbærar framkvæmdir eins og Héðinsfjarðargöng, á kostnað allra skattgreiðenda!  Ég bjó á Ísafirði þegar rifrildið um Óseyrarbrúna stóð sem hæst og því kom mér sú framkvæmd ekki mikið við, þótt ég væri fluttur suður þegar brúin var vígð. Ekki held ég að neitt af fortölum andófssinna hafi ræst. Ósinn hefur ekkert breyzt og veiðin er enn hin sama. Og einhverjir flutningar eru nú á milli Þorlákshafnar og Stokkseyrarbakka og Selfosss. Og ekki sakar nú öryggið að hafa þessa hjáleið þegar leiðin um Hellisheiði lokast og öfugt.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 8.4.2010 kl. 01:19

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Brynja Þorgeirs fór í fjós
yfir bóndann hrósi jós
í Írak jafnt sem austur í Kjós
dramatíkin leidd í ljós



Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 8.4.2010 kl. 02:18

4 identicon

Vegtollar á allar þjóðleiðir eru kostnaðarsöm, óréttlát og heimskuleg aðferð til að ná inn tekjum í ríkissjóð.

Eðlilegast er að fjármagna framkvæmdir í vegakerfi af skattfé. Þá leggjast byrðarnar á fólk og fyrirtæki eftir getu. Það kemur best út fyrir smælingjana í þjóðfélaginu sem minnstar tekjur hafa.

Flokkar sem kenna sig við jafnaðarmennsku ættu að hafa það í huga.

Sverrir 8.4.2010 kl. 05:14

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Brynja fögur baugalín,
býsna mögur appelsín,
drakk og sögur sagði fín,
en súr sá lögur ástin mín.

Þorsteinn Briem, 8.4.2010 kl. 09:39

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sverrir, hér eru menn stundum svolítið alvörulausir. Auðvitað er það hápólitískt mál hvernig vegaframkvæmdir eru fjármagnaðar og hægt að skrifa margt um það. Láttu ekki trufla þig þó hér séu menn uppteknir við að yrkja um Brynju og bolana.

Sæmundur Bjarnason, 8.4.2010 kl. 10:13

7 Smámynd: Kama Sutra

Kama Sutra, 8.4.2010 kl. 10:18

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Allir aflakvótar verða "innkallaðir", seldir árlega á uppboði og ríkið notar peningana til að leggja hér vegi og halda þeim við.

Slíkt kemur öllum til góða, útgerðinni, landsbyggðinni, ferðaþjónustunni og landsmönnum öllum.

Rafbílar taka hér við af hefðbundnum bensínbílum en nú kostar 70 krónur að aka rafbíl á milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Ríkið verður því að fjármagna vegagerð og viðhald vega með öðrum tekjum en bensíngjaldi.

Þorsteinn Briem, 8.4.2010 kl. 10:25

9 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Blessaður hættu nú að afsaka bloggið þitt og bloggaðu bara sem óðast um það sem þér þykir áhugavert og/eða gaman.

Bíleigendur borga nú þegar meira en nóg í allskonar vegagjöldum og sköttum. Hefði allur sá peningur sem þeir hafa borgað farið í það sem þeir voru eyrnamerktir til væri kominn 2+2 bæði austur að Ölfusá og upp í Borgarnes og guð má vita hvert. Þegar annar orkugjafi verður almennur í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti nú verður áreiðanlega fundin leið til að skattleggja það líka -- það er ljótt að komast ferða sinna ódýrt!

Sigurður Hreiðar, 8.4.2010 kl. 12:50

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nei, Sigurður. Það er ekki víst að bíleigendur séu skattlagðir nóg. Kannski eru bílarnir líka of ódýrir. Þeir sem halda því fram að einkabílar séu of margir og almenningssamgöngur of lélegar hér hafa dálítið til síns máls. Annars er ég sammála þér um það að nýjir orkugjafar fyrir bíla verða örugglega skattlagðir. Óþarfi að hafa áhyggjur af því.

Sæmundur Bjarnason, 8.4.2010 kl. 13:49

11 Smámynd: Sigurður Ingólfsson

Heyrði í samgönguráðherra í morgun á Bylgjunni. Hann var á því að tvöfalda veginn til Selfoss.En það voru nú engir til peningarnir. Þess vegna þyrfti að taka lán frá lífeyrisjóðunum og greiða til baka með vegatollum. Einn hængur var þó á að rafmagns- metan- og etanknúðir bílar slyppu við að borga skatta í gegnum bensín notkun. Þess vegna þyrfti að setja í alla bíla kubb og fylgjast með þeim frá gervihnetti eins og þeir gera og  munu gera á meginlandi Evrópu. Þannig greiði bílar eftir notkun ! Eitthvað kostar það nú. Er það ekki brandari að þessir bílar sleppi við að borga samsvarandi bensínsköttum? Það væri ekki dýrt að aka um á bensínbíl ef engir væru skattarnir og álagningin í hófi. ( ef olíufélögin væri rekin af hagsýni ).Hvað yrði vegtollurinn í Héðinsfjarðargöngunum ef hann ætti að greiða upp kostnaðinn við þau. Spaugstofan tók þetta ágætlega fyrir á sínum tíma eins og svo margt annað 2007-8. Þá hlógum við að öllu saman.

Sigurður Ingólfsson, 8.4.2010 kl. 18:46

12 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Sigurður. Endurtek bara að fjármögnun vegaframkvæmda er stórpólitískt mál og snertir margt annað. T.d. skipulag og ýmislegt fleira. Þetta með nýja orkugjafa og GPS kubba í bíla er á leiðinni. Ekki er víst að þetta verði ákaflega dýrt. Mín skoðun er að taka skuli á móti tækninni sem vini en ekki óvini. Íhaldssemi er ágæt en hóf þarf að vera á henni.

Sæmundur Bjarnason, 8.4.2010 kl. 20:23

13 Smámynd: Theódór Norðkvist

Vegtollar eru í sjálfu sér ágætis hugmynd, en hér eru svik í tafli. Lífeyrissjóðir voru rændir innan frá eins og bankarnir þegar ofurlaunaðir forstjórar voru dregnir á asnaeyrunum í laxveiðiferðum til að ausa peningum í svikamyllur útrásardólganna.

Þeir hafa tapað mörg hundrað milljörðum og auðvitað dettur þeim (ásamt yfirvöldum) það sama og venjulega í hug. Að láta almenning borga fyrir ábyrgðarleysi þeirra sjálfra.

Þess vegna komu þeir með þessa hugmynd. Láta ríkið fá þessar fáu krónur (eða evrur?) sem þeir eiga eftir og rukka síðan eigendur lífeyrissjóðanna, fólkið í landinu, um lánið með vöxtum í formi vegtolla.

Eins og venjulega virðist fólkið ætla að láta svína á sér eina ferðina enn.

Theódór Norðkvist, 9.4.2010 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband