954 - Pizza var það heillin

Sumar þjóðsögur og aðrar fornar sagnir þurfa greinilega á umskrift að halda. Nefna má fáeinar þjóðsögur sem vert væri að endurskrifa:

Pabbi átti fína lóð.

Seint fyllist taskan prestanna.

Þá hló maðurinn úr sjónum.

Pabbi átján krakka í Heimunum

Ætli togararnir mínir séu í túr núna?

Mamma í rollugirðingunni, rollugirðingunni.

Margir sem úttalað sig hafa um þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa vart haldið vatni yfir því hve mikilvægt það hafi verið að komast í heimspressuna. Mér finnst fátt ómerkilegra en pappír, prentsverta og talandi höfuð í sjónvarpi. Auðvitað hefur þetta samt áhrif, en eru þau áhrif ekki heldur lítils virði? Snýst Icesave í huga fólks fyrst og fremst um auglýsingar? Það finnst mér þunnur þrettándi. Heldur fólk í raun og veru að allt þetta húllumhæ hafi aðallega verið í auglýsingaskyni? Ekki skeiðaði ég á kjörstað til þess. Mér finnst að Steingrímur og Jóhanna hefðu bæði átt að kjósa. Gátu svosem gefið allan fjárann í skyn fyrirfram ef þau kærðu sig um en kjósa áttu þau.

Nú er í undirbúningi skilst mér að leggja fram frumvarp á Alþingi um að draga umsóknina um aðild að ESB til baka. Höfuðröksemdin finnst mér vera að allt þetta ferli sé of dýrt. Það finnst mér ótæk ástæða. Alþingi er búið að samþykkja þessa umsókn og ber að standa við hana. Vel getur þó verið að aðildin verði felld þegar til kastanna kemur.

Mér finnst raunar líklegt að umsóknin verði felld ef atkvæðagreiðslan fer fram fljótlega. Andstaðan við aðild er talsverð og stafar ekki eingöngu af Icesave. Mér finnst menn í alvöru búast við að þróunin verði einkum í átt til stórveldis í líkingu við Bandaríkin. Það tel ég vera afar ólíklegt að sé rétt. Auðvitað er það svo að ESB þróast og enginn sér fyrir nákvæmlega hvert. En það eru aðildarríkin sem ráða því.

Og í lokin fáeinar myndir.

IMG 0492Útilistaverk

IMG 0528Styttan sem ekki var stytta

IMG 0713Grasagarður

IMG 0746Úr orkideuhúsinu í Palmitas

IMG 0781Úr fiðrildahúsinu í Palmitas


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Verulega Valgerðar,
vingjarnlegar dætur,
af Guði þær vel gerðar,
gott er að vera ætur.

Þorsteinn Briem, 9.3.2010 kl. 07:12

2 identicon

Rímorðabókin gagnast Steina takmarkað. Það þarf smá hæfileika til að njóta sín með aðsto hennar. Annars er hún ágæt og aðgengileg á netinu.

http://elias.rhi.hi.is/rimord/

Guðmundur Bjarnason 9.3.2010 kl. 08:07

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ætíð hann er aðgengilegur,
undarlega samt þó tregur,
Bjarnasonar vinsæll vegur,
nú virka Gumma kúlulegur.

Þorsteinn Briem, 9.3.2010 kl. 08:58

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Hugmyndin um evrópskt sambandsríki er sterk á meginlandinu og þrýstihópar sem hafa það að markmiði hafa verið starfandi síðan rétt eftir seinna stríð.  Ég hef lengi verið að spá í að skrifa grein um evrópska sambandssinna, en það verður að bíða í nokkrar vikur enn vegna anna.

Axel Þór Kolbeinsson, 9.3.2010 kl. 14:28

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Axel, auðvitað er það rétt að framtíðarþróun ESB er það sem mestu máli skiptir. Samt skipta einstök málefni miklu núna en hitt mun skipta mestu í framtíðinni. Var búinn að yrkja einskonar vísnasvar áðan en það hefur farið eitthvert út í eterinn. Reyni kannski aftur.

Sæmundur Bjarnason, 9.3.2010 kl. 14:37

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Vísnaruglið vil ég hér
veit að það er mikið.
Bullið þó að blöskri mér
byrgir það samt strikið.

Ósköp er þetta annars lélegt.

Sæmundur Bjarnason, 9.3.2010 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband