857 - Egill Helgason

Þetta blogg fjallar eingöngu um Egil Helgason. Ég þarf ekki að biðjast afsökunar á því. Egill er svo fyrirferðarmikill orðinn í íslensku menningarlífi að mörgum finnst nóg um. Sjálfum finnst honum það þó ekki og áreiðanlega ekki heldur æstustu aðdáendum hans.

Byrjum á blogginu hans. Það skoða ég allajafna en athugasemdirnar sjaldan. Skilst samt að þær séu oft margar og sumar þeirra vel þess virði að lesa. Google Readerinn minn býður þó ekki upp á það. Með því að klikka á fyrirsögnina og fara á bloggið sjálft gæti ég að sjálfsögðu skoðað kommentin. Finnst samt yfirleitt ekki taka því. Bloggið hans er eiginlega hvorki vont né gott. Yfirgripsmikið samt og mikið lesið og áhrifaríkt. Mest kannski vegna vinsælda hans á öðrum sviðum.

Augljóst er að margir hafa samband við hann og hann fær margt að vita sem öðrum er hulið. Aðrir sem hefðu sömu upplýsingarnar og samböndin hans gætu eflaust bloggað betur. Lára Hanna gerir það og tekur honum í raun og veru langt fram. Bæði eiga þau sér samt óvildarmenn.

Egill sóar hæfileikum sínum líka í annars flokks umræðuþátt um stjórnmál. Vinsældir þáttarins byggjast á því einu að hann hefur enga samkeppni. Mér finnst engin goðgá að segja að „Silfur Egils" sé annars flokks þáttur. Aðrir gætu sem best stjórnað slíkum þætti miklu betur en hann gerir. Oft hefur hann þó staðið sig ágætlega í vali viðmælenda. Stjórn hans á þáttunum er hins vegar afleit. Þar talar hver upp í annan og Egill spyr langra spurninga og misheppnaðra og veifar handleggjunum í allar áttir.

Kiljan er aftur á móti afbragðsvel gerður þáttur. Þar er Egill á heimavelli. Bókmenntir og saga eru það sem hann kann að fjalla um. Jafnvel Bragi er að verða klassískur. Þegar maður horfir á Kiljuna verður manni hugsað til þess hve sjónvarpið er búið að starfa lengi án þess að gera bókmenntum skil að ráði.

Trú mín er sú að þó Kiljuþátturinn mundi leggjast af mundi spretta upp annar bókmenntaþáttur. Slíkt hefur vantað lengi og vandséð er hvernig hægt væri að komast af án slíks þáttar. Varðandi bókmenntirnar hefur Egill gert það sem engum öðrum hefur tekist. Búið til vinsælan og öflugan framhaldsþátt í sjónvarpi um þær. Það er afrek sem munað verður.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verð að taka undir með þér - á öllum sviðum

ASE 7.11.2009 kl. 00:49

2 identicon

Alfarið ósammála með Silfrið, þetta er frábær þáttur, vinsæll og lífsseigur. Það sem þú finnur helst að hjá stjórnandanum lít ég á sem kosti. Hins vegar er ég oftast ósammála Agli en það er aukaatriði. Bloggið hans er ágætt. Kiljan er stórgóð.

Sigurður H. Magnússon 7.11.2009 kl. 01:19

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég held að vinsældir Silfursins liggi ekki síst í því hve alþýðlegur Egill er sem stjórnandi. vitanlega eru viðmælendurnir misjafnir. Agli tekst að vera laus við að setja sig í stellingar og gerast of formlegur eða uppskrúfaður. Meira svona eins og að hlusta á eldhússpjall yfir kaffibolla.

ég verð meira að segja að viðurkenna að ég hef gaman að Kiljunni hans. þó er bókmenntaáhugi minn við alkul. Spjall þeirra Braga á ekki sístan þátt í því.

Brjánn Guðjónsson, 7.11.2009 kl. 01:30

4 identicon

Einn og sami maðurinn stjórnar bæði vinsælasta og eina stjórnmálaumræðuþættinum í íslensku sjónvarpi og aðal menningar- og bókmenntaumræðuþættinum. Í rauninni þarf ekki að segja meira, en af því að hér er skrifað á íslensku fyrir Íslendinga þá þarf auðvitað að stafa þetta ofan í fólk lið fyrir lið. Egill er sérfræðingur á hvorugu sviðinu en hefur grautað í mörgu. Hann skortir með öllu fræðilega þekkingu á viðfangsefnum sínum og fyrir vikið verður öll umfjöllun afar yfirborðsleg. Í hvert einasta sinn sem færi gefst á að spyrja gagnrýninna spurninga og kafa aðeins dýpra finnur Egill alltaf almennu og klisjukenndu leiðina. Er það styrkur hans og veikleiki í senn, því ekki má bjóða móðursjúkum og taugaveikluðum almenningi upp á neitt bitastæðara en svo að hann geti unnið á því með fölsku tönnunum sínum. Egill má samt eiga það að hann er oft glúrinn við að fá til sín áhugaverða viðmælendur og þá einkum erlenda í Silfrið. Það gildir þó ekki um égheldogmérfinnst-þáttinn Klisjuna.

Uppsalagísli 7.11.2009 kl. 08:45

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hann er Egill Helgason,
hann er Íslands eina von,
oft sé hann í Eymundsson,
í imbakassa hann er Don.

Þorsteinn Briem, 7.11.2009 kl. 09:30

6 Smámynd: Birna Jensdóttir

Mér finnst Silfur Egils orðið þreytt og er alveg hætt að nenna að horfa á það.Kiljan er fínn þáttur og mætti athuga með hvort ekki fyndist einhver til að vera með samsvarani þátt um tónlist.

Birna Jensdóttir, 7.11.2009 kl. 12:30

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hátt flýgur Helgason
á himninum eina.
Íslands er eina von
að áliti Steina.

Sæmundur Bjarnason, 7.11.2009 kl. 15:04

8 Smámynd: Ragnheiður

Alveg sammála þessu, ég er hrifin af Kiljunni en horfi ekki á hinn þáttinn

Ragnheiður , 7.11.2009 kl. 19:47

9 Smámynd: Þorsteinn Jónas Skjóldal Haraldsson

Egill er rauðhærður og of þungur miðað við hæð.Það gerir hann óöruggan um sjálfan sig og árásagjarnan.En hann er fínn heili og ræðst aldrei á minni máttar. Fornbókarsnúðurinn hann  bragi er A+.Elíta fyrir oss dverghöfuð.

Þorsteinn Jónas Skjóldal Haraldsson, 7.11.2009 kl. 21:45

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll.
Átti svosem aldrei vona á að allir væru sammála mér.
Það er engin afsökun fyrir Egil þó hann sé rauðhærður og feitur.
Allir verða að læra að lifa með sína skavanka.

Sæmundur Bjarnason, 7.11.2009 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband