790 - Samtalsblogg

A: „Þó ég hafi ekki fundið það upp, hentar svona samtalsblogg mér ágætlega."

B: „Einmitt það, já."

A: „Já, þá get ég nefnilega til dæmis talað um melrakkann á Bessastöðum án þess að tala óviðurkvæmilega um forsetann."

B: „Nú?"

A: „Já, það er eiginlega persóna í leikriti sem segir þetta en ekki ég."

B: „Já, svoleiðis."

A: „Svo er þetta líka ágæt aðferð til að koma ýmsu að sem erfitt er að gera öðruvísi. Eins og til dæmis hrósi um sjálfan sig."

B: „Já, já."

A: „Svo get ég alltaf haft annan aðilann voða vitlausan."

B: „Huh. Ekki mig."

A: „Nei, bara einhvern."

B: „Sjálfan þig, kannski?"

A: „Ja. Jæja. Kannski ekki. En samt..."

B: „Æ, þú er svo vitlaus."

A: „Ég? Ekki aldeilis.

Þögn.

A: „Ég er ekkert skyldugur til að standa við allt sem ég segi á mínu bloggi."

B: „Nú, af hverju ekki?"

A: „Ég er nefnilega listamaður."

B: „Er það eitthvert alibi?"

A: „Já. Að sumu leyti að minnsta kosti."

B: „Það finnst mér ekki."

A: „Finnst þér þá að ég ætti að standa við allt sem ég segi?"

B: „Já, eiginlega."

A: „Það er nú dálítið vafasamt. Ég segi svo margt."

B: „Segðu þá bara minna."

A: „Það get ég ekki."

B: „Nú?"

A: „Já, ég verð að blogga um eitthvað sem fólk nennir að lesa."

B: „Sama hvaða vitleysa það er?"

A: „Já, svona næstum því. Ætti ég þá að muna eftir öllum skoðunum sem ég hef á öllu mögulegu?"

B: „Auðvitað. Gerirðu það ekki?"

A: „Ja. Jú, eiginlega."

B: „Hefurðu kannski eina skoðun í dag og aðra á morgun á því sama?"

A: „Nei, nei. Vitanlega ekki."

B: „Hvert er þá vandamálið eiginlega?"

A: „Ég man það ekki almennilega."

Öllu má ofgera. Ég held ég sé hættur þessu í bili. Bein ræða er ágæt þó annað geti hentað stundum. Nú bíðum við semsagt bara eftir að heyra frá forseta vorum og fósturjörð. Ja, kannksi ekki fósturjörð, en næstum því.

Mér finnst leiðinlegt hvernig oft er talað um forsetann. Mér finnst að ekki eigi að láta persónuna sem embættinu gegnir hverju sinni hafa áhrif á virðinguna fyrir embættinu. Þó margir hallmæli forsetanum er það bara í nösunum á þeim. Það er vel hægt að bera virðingu fyrir forsetaembættinu en fyrirlíta öll stjórnvöld í landinu á sama tíma. Óþarfi er að láta upphrópanirnar og reiðina bita á forsetanum.

Ólafur Ragnar getur kennt sjálfum sér að nokkru leyti um það hvernig um hann er talað. Það var fyrir hans tilstilli sem fjölmiðlar fóru að velta sér uppúr öllu sem á Bessastöðum gerist. Auðvitað kemur okkur það við en það er óþarfi að láta einsog einhver óbótamaður sitji þar í óþökk þjóðarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Ég held að það séu margir sammála um það að hann hafi hreykt embættinu uppí það að nálgast það að verða konunglegt og með viðeigandi hirð og fífl.

Að maður tali nú ekki um umgengni hans við féhirða ríkisins, sem hirtu svo féð.

Eygló, 1.9.2009 kl. 01:49

2 identicon

Kjósum ekki yfir okkur annan súperofuröryrkja... við höfum ekkert með forseta að gera.

DoctorE 1.9.2009 kl. 15:11

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

bara farinn að tala við sjálfan þig á blogginu

annars er kosturinn við að tala við sjálfan sig sá, að þá fær maður alltaf svo gáfuleg svör

Brjánn Guðjónsson, 1.9.2009 kl. 15:41

4 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Þér að segja leiðist mér samtalsblogg nema þar sé rakið raunverulegt samtal sem átti sér stað og helst að það hafi einhvern boðskap eða niðurstöðu.

Sigurður Hreiðar, 1.9.2009 kl. 16:33

5 identicon

Þetta eru ágætis umræður; hvert á að vera hlutverk forsetans?

Hvað vil þjóðin?

Engan forseta?

Á hann að leiða þjóðina?

Eða hvað?

Mr. Jón Scout Commander 1.9.2009 kl. 17:33

6 Smámynd: Kama Sutra

Þegar ég stend í svona einræðum við sjálfa mig er ég alltaf sammála síðasta ræðumanni.

Það myndast ósjálfrátt sterkur já-kór... 

Kama Sutra, 1.9.2009 kl. 21:53

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll. Sammála ykkur að mörgu leyti. Samtalsblogg hafa ekkert fram yfir önnur. Það er óþarfi að vera að blogga bara til að blogga. Sigurður, þetta með boðskapinn, niðurstöðuna og tilganginn þarf ekkert að vera lesandanum meðvitað og jafnvel ekki höfundinum að fullu heldur.

Rifrildið um forsetann á sér auðvitað margar hliðar og ég hef svosem skoðanir á því eins og mörgu öðru.

Sæmundur Bjarnason, 2.9.2009 kl. 07:25

8 identicon

Við erum 300 þúsund hræður, við höfum ekkert að gera með að velja einhvern íslending út og láta hann valsa um eins og snobbara, bullandi leiðinda ræður um hversu roslega góðir við erum...
Algert bull

DoctorE 2.9.2009 kl. 09:25

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

DoctorE, það eru nú svo margir sem valsa um eins og snobbarar og jafnvel margir sem bulla líka. Kannski er þetta með forseta eða ekki forseta á margan hátt trúaratriði og líka þetta með hvað við Íslendingar séum rosalega flottir.

Sæmundur Bjarnason, 2.9.2009 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband