749- Rökræður vs. kappræður

Fyrir atkvæðagreiðsluna um aðildarumsóknina að ESB fylgdist ég nokkuð með umræðum á Alþingi. Enginn vafi er að kappræðuhefðin er ríkjandi meðal okkar Íslendinga. Alið er á henni í skólum og kennt að líta á sigur á andstæðingnum sem mikilvægari en eðli málsins. Þetta var áberandi í umræðunum. Framkoma sumra þingmanna var beinlínis stráksleg. Þeir virtust halda að því hærra sem talað væri og meiri gífuryrði notuð því betra. 

Áríðandi er að ná góðri samstöðu um mikilvæg mál. Rökrétt niðurstaða eða sigur á andstæðingnum er miklu minna virði. Þannig náðist mjög góð samstaða um lýðveldisstofnunina á sínum tíma þó menn greindi í upphafi á um leiðir. Sama verður vonandi uppá teningnum þegar kemur að aðild Íslands að ESB. Andstæðingar aðildar fara þó mikinn og notast mjög við kappræðuhefðina.

Á blogginu blandast kappræðuhefðin oft fúkyrðaflaumi svo miklum að flestum ofbýður. Það slæma orð sem bloggið hefur á sér er einkum þeim að kenna sem stunda fúkyrðaflauminn sem ákafast. Vel er hægt að ræða viðkvæm mál án þess að temja sér þann æsing og persónulega skítkast sem oft ríkir í bloggheimum.

Aðalgallinn við Icesave-samninginn er að það er hvorki hægt að samþykkja hann eða fella. Alþingismenn eru í verulegum vanda í þessu máli. Eitthvað er hægt að styðjast við forystumennina en samt er það takmarkað. Langflestir Alþingismenn vilja greiða atkvæði í samræmi við samvisku sína. En hvernig á að komast að niðurstöðu um Icesave. Moldviðrið sem þyrlað er upp varðandi þetta mál er með ólíkindum. Málið er líka svo afdrifaríkt og flókið að lengra verður varla komist.

Davíð var sjósettur um daginn með pompi og pragt. Ekki hef ég lesið það sem efir honum var haft. Ingibjörg Sólrún var svo til jafnvægis dregin fram af Samfylkingunni. Gallinn er sá að hvorugt þeirra skiptir máli lengur. Þau eru bæði fulltrúar gærdagsins og úr sér genginnar hugmyndafræði. Ekki þar fyrir að ágætt væri að geta aftur horfið til þeirra áhyggjulausu daga þegar Geir og Solla litla komu út úr Þingvallabænum og hann kyssti hana á kinnina og hún setti töskuna á bakið og valhoppaði í burtu.

Og fjórar myndir:

IMG 3564Take me to your leader.

IMG 3566Þetta er geimfarið mitt - eða ekki.

IMG 3617Frá Borgarnesi.

IMG 3644Drullupyttur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

takk fyrir mig Sæmi, bloggið þitt er til mikillar fyrirmyndar og vonandi næ ég þinni visku þegar þar að kemur :)  myndirnar eru alltaf fínar líka.

Óskar Þorkelsson, 21.7.2009 kl. 01:07

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

algerlega rétt hjá þér, með íslenska umræðu, „að líta á sigur á andstæðingnum sem mikilvægari en eðli málsins.“

Brjánn Guðjónsson, 21.7.2009 kl. 01:09

3 Smámynd: Kama Sutra

Ég var einmitt að hafa orð á þessu á öðru bloggi.  Að það væri synd að það skuli hvergi vera friður til að ræða ESB af einhverju viti án þess að öfgaliðið og "fullveldissinnarnir" skuli óðara vera mættir á svæðið með sinn hatursfulla anti-ESB áróður - og reyna að kæfa allar vitrænar umræður.

Þeir eru alveg logandi hræddir um að samningsfólkið okkar nái svo góðum samningum við ESB að þjóðin komi til með að kjósa sig þangað inn.

Kama Sutra, 21.7.2009 kl. 01:38

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sæll Sæmundur.  Sigurður Þorsteinsson skrifaði samskonar færslu fyrir þrem dögum.  Þú ættir kannski að kíkja á hana.

Axel Þór Kolbeinsson, 21.7.2009 kl. 11:17

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Axel.
Skoðaði þessa færslu og athugasemdir við hana. Fullmikið kappræðursnið þar á málum finnst mér.

Sæmundur Bjarnason, 21.7.2009 kl. 13:06

6 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Skoðaðir þú færsluna sem er tengd við færslu Sigurðar sem var að koma fólki (þar á meðal mér) í uppnám?

Axel Þór Kolbeinsson, 21.7.2009 kl. 13:10

7 Smámynd: Gunnlaugur I.

Já ESB sinnar ættu ekki að vera hissa á þessari hörku í þessum umræðum um ESB.

Hér er nefnilega búið að sundra þjóðinni upp í fylkingar og við ESB andstæðingar erum þess vegna reiðir.

Líka vegna þess að heldur mátti ekki spyrja þjóðina hvort hún vildi yfirleitt halda upp í þessa ESB vegferð.

Þannig að ESB elítan hefur skarað eld að höfði sér og þetta ESB mál er sem fleinn í holdi þjóðarinnar að okkar áliti.

Það er ekki að ástæðulausu sem við mjög margir ESB andstæðingar köllum helstu rétttrúnaðarsinna ESB elítunnar ekkert annað en landráðahyski og gerum það kynroðalaust.

Það myndi ég aldrei segja um þig Sæmundur þó þú sért frekar inná ESB aðild og viljir í þessar viðræður, það er af því þú fjallar ævinlega um þessi mál af yfirvegun og meiri og víðari yfirsýn en flestir þinna skoðanabræðra. 

Gunnlaugur I., 21.7.2009 kl. 15:52

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gunnlaugur I er gráti nær,
geldur er hann síðan í gær,
og kallinn aldrei kjósa fær,
kolóður, vitlaus og alveg ær.

Þorsteinn Briem, 21.7.2009 kl. 18:19

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Til að forðast málaferli:

Gunnlaugur I er gráti nær,
galinn er hann síðan í gær,
kallinn aldrei kjósa fær,
kolóður, vitlaus, alveg ær.

Þorsteinn Briem, 21.7.2009 kl. 18:28

10 Smámynd: Arnar Guðmundsson

JA MER FINNST VERA FULLMIKIÐ TIL Í ÞESSUY

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 19:44

11 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Það er dálítið til í því hjá þér, þetta varðandi rökræður vs. kappræður. Ég hef lengi haft það á tilfinningunni að við séum frekar slök í rökræðum hér á Fróni. Þetta hef ég til að mynda séð á því hvernig fólk "rökræðir" stundum í Kastljósi og fleiri umræðuþáttum. Einnig fannst mér þetta sjást ágætlega í ESB umræðunni í sjónvarpinu um daginn, þar sem sumir þingmenn vildu heldur ræða atkvæði annarra en síður sitt eigið, og að mínu viti var heldur mikið af ómálefnalegri umræðu þar. Bloggið er svo sér kapítuli, þar sem maður fær oft á tilfinninguna að ekki fylgi mikil hugsun orðunum sem niður eru sett.

Ég bjó í Danmörku í nokkur ár og þar fannst mér oft meiri bragur á umræðum, þar sem fólk gagnrýndi hluti meira efnislega en við gerum hér. Það sést einmitt ágætlega í sjónvarpinu, en það hefur kannski eitthvað með þær áherslurnar sem þáttastjórnendur hafa fyrirfram. Hér finnst mér að þáttastjórnendur á stundum leyfi fullmikið af framíköllum í umræðunni.

Það sem ég tel að við þyrftum að læra betur, er að vera ósammála án þess að rífast eða kallast á... það myndi bæta gæði umræðunnar. Svo held ég að auki að við hefðum stundum gott af að heyra og sjá hina hlið málsins, þó svo við séum ekki sammála henni.

Takk fyrir góðan og málefnalegan pistil.

Sveinn Atli Gunnarsson, 21.7.2009 kl. 19:58

12 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll.
Finnst ESB-umræðan oft vera of mikið í upphrópanastíl.
Ástæða til að blogga meira um það.
Reyni það seinna. Of gott veður núna.

Sæmundur Bjarnason, 21.7.2009 kl. 20:40

13 Smámynd: Elle_

Vil bæta við það sem Axel Þór setti þarna inn úr því verið er að kalla andstæðinga "logandi hrædda" og"öfgalíð" þarna að ofan og víðar.  Þarna er umræða um ógnvekjandi öfgamann og ekki er hann andstæðingur: 
http://axelthor.blog.is/blog/axelthor/entry/916497/

Það sem ég vildi var lýðræði eins og Gunnlaugur lýsir að ofan.  Og ég hefði sætt mig við niðurstöðuna hefðum við fyrst verið spurð.   Fullt af fólki í landinu er reitt og sorgmætt vegna þess að vaðið var yfir lýðræðið.   Þeir sem eru hlynntir því að Jóhanna dragi landið þarna inn með yfirgangi virðast oft ekki skilja það.

Elle_, 21.7.2009 kl. 21:09

14 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Axel, ég sé að þú hefur beinlínis spurt mig hvort ég hafi lesið blogg Kjartans Jónssonar. Því er til að svara að það hef ég ekki gert. Aðallega er það vegna þess að ég hef fordóma gagnvart því sem skrifað er með hvítu og rauðu letri á svartan grunn. Les slík skrif helst ekki.
Stundum hef ég lesið greinar Jóns Frímanns um ESB en örugglega ekki allar. Ég hef svolitla fordóma líka gagnvart því sem hann skrifar. Hann er ekki alveg nógu sterkur í réttritun fyrir minn smekk.
Ef tala á um orðhengilshátt og fúkyrðaflaum þá finnst mér andstæðingar aðildar að ESB ekki standa ESB-sinnum neitt að baki þar. Fremur á hinn bóginn ef eitthvað er. Skiptir samt engu máli.

Sæmundur Bjarnason, 22.7.2009 kl. 00:01

15 Smámynd: Arnar Guðmundsson

RITSKODUN RITSKODUNN Á MOGGABLOGGINU 11.,,

Arnar Guðmundsson, 22.7.2009 kl. 00:28

16 identicon

Er Jón Frímann að tala um skítkast?  Kom úr óvanalegri átt frá manni sem kallar allt bull og rugl sem nokkur maður með skoðanir segir nánast.

Benjamín 22.7.2009 kl. 00:54

17 identicon

Já, Jón Frímann, hvaða "andstæðingur" hér er með skítkast?  Frá mínum sjónarhóli er það akkúrat öfugt sbr. "öfgalið". 

Benjamín 22.7.2009 kl. 00:57

18 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það er nefninlega svo Sæmundur að einstaklingar beggja megin eru orðnir frekar orðljótir.  Ég á auðveldara með að þola þá sem hafa sambærilega skoðun og ég, og held að það eigi við um flesta.

Sjálfur hef ég reynt mitt besta við að halda mér á málefnalegum nótum, en einstaka sinnum hef ég farið of langt í athugasemdakerfinu ef ég er að þræta við einhvern.

En það er öruggt að þetta á bara eftir að versna svo um munar.

Axel Þór Kolbeinsson, 22.7.2009 kl. 08:52

19 identicon

Já það er rétt sem Axel Þór segir hér að ofan "þetta á bara eftir að versna svo um munar"

Og það er vegna þess að það er sótt um ESB aðild án þess að spyrja þjóðina og sennilega líka í trássi við meirihluta þjóðarinnar, sem alls ekki vill ESB aðild. 

Fyrir stóran hluta okkar andstæðinga ESB aðildar snýst þetta ekki bara um hagsmuni heldur einnig tilfinningar.

Þess vegna er búið að setja eitraðan flein í hold þjóðarinnar og skipta henni uppí andstæðar fylkingar sem munu takast á.

Einmitt nú þegar helst hefði þurft að sameina þjóðina meðan við í sameiningu ynnum okkur útúr erfiðleikunum.

Ábyrgð þeirra 33ja íslendinga sem tóku þá ákvörðun að reka þennan eitraða ESB flein í hold þjóðarinnar er því mikil og enn meiri vegna þess að þeir höfnuðu því að þjóðin yrði fyrst spurð álits. 

Gunnlaugur Ingvarsson 22.7.2009 kl. 09:57

20 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Til Steina.

Grátandi er Gulli víst
galinn orðinn núna.
En Steini minn þú kýst og kýst
og kyssir síðan frúna.

Sæmundur Bjarnason, 22.7.2009 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband