641.- Margeir og meirafíflskenningin

Andleg hrörnun er sögð hefjast við tuttugogfimm ára aldurinn. En hvenær lýkur henni eiginlega? Aldrei eða hvað? Mér finnst ég vera jafngáfaður núna og fyrir fimmtíu árum.

Þegar ég var ungur stökk ég næstum fimm metra í langstökki og hundrað og fimmtíu sentimetra í hástökki. Ekki gæti ég það núna. En ég er viss um að ég hefði ekki bloggað af neinu viti þegar ég var tvítugur.

Skyldi Margeir Pétursson skákmaður verða eini fjáraflamaðurinn sem kemur standandi niður úr þeim hremmingum sem skekið hafa skerið að undanförnu. Varkárnina og seigluna hefur hann örugglega. Kannski SPRON verði eini einkabankinn sem blaktir hér á næstunni. Margeir heyrði ég fyrstan manna tala um „meirafíflskenninguna".

Nú verða víst ekki fleiri landsþing á næstunni og lítið drukkið af öli. Aðrar skemmtanir verða samt nægar og einhverjir munu kætast að loknum næstu kosningum. Varla þó sjálfstæðismenn. Bjarni Benediktsson líkist mun meira Þorsteini Pálssyni en Davíð Oddssyni. Þessvegna verður hann varla lengi formaður flokksins.

Síst af öllu eru íslensk stjórnmál upphaf og endir alls. Eiginlega mannskemmandi. Vorkenni þeim bloggurum sem ekki geta skrifað um annað. Samt verður maður víst að kjósa. Samkvæmt útilokunaraðferðinni eru einkum tveir möguleikar hæst skrifaðir hjá mér um þessar mundir.

Annars vegar að kjósa einfaldlega Samfylkinguna aftur. Þróunin í átt til tveggja flokka kerfis er góðra gjalda verð. Skil Ómar Ragnarsson vel að hafa gefist upp á þessu bardúsi. Hann er samt enginn vinstri maður. Hinn möguleikinn er að kjósa O-flokkinn. Þar er eitthvað af góðum mönnum en hætt er við að þeir fái engan mann kjörinn og þá er verr af stað farið en heima setið.

Ef mikilvægast af öllu var að tryggja áframhaldandi sérréttindastöðu Íslands í samfélagi þjóðanna, venjubundna starfsemi í landinu og inneignir fólks í bönkunum þegar þeir hrundu voru neyðarlögin kannski þörf og eðlileg. Að öllu öðru leyti voru þau hrikaleg mistök sem á endanum geta orðið dýr. Satt að segja alveg óskaplega dýr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

"Mér finnst ég vera jafngáfaður núna og fyrir fimmtíu árum."  Sæmundur ÞETTA er dæmi um hrörnun!

Ég á næstum fertugan afkomanda en tala og hegða mér..... allt niður í 5 ára. Skríð eftir gólfinu og leik krókódíl fyrir ömmubörnin, en þarf svo hjálp við að standa upp - gigtin.  Svo finnst mér ég vera ívið GÁFAÐRI en fyrir fimmtíu árum! Sæll, bróðir.

Eygló, 2.4.2009 kl. 01:17

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það getur vel verið að það SÉ MERKI um eitthvað slíkt, en við eigum aldrei að viðurkenna það. Í mesta lagi að við eigum vont með að hoppa eins hátt og áður og hugsum stundum aðeins hægar og séum lengur að átta okkur á hlutunum.

Sæmundur Bjarnason, 2.4.2009 kl. 08:25

3 identicon

Nei, óþarfi að viðurkenna það.  Næsta víst er að þú ert vitrari núna en fyrir 50 árum.  Það finnst mér nú líklegt.

EE elle 2.4.2009 kl. 08:39

4 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég er sem betur fer orðinn svo fattlaus að ég fatta ekki hvað ég er vitlaus.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 2.4.2009 kl. 08:51

5 identicon

happy smiley #88

EE elle 2.4.2009 kl. 09:37

6 identicon

Ég er nú meira fíflið - ég fatta ekki einu sinni hver "meirafíflskenningin" er.

Er ég þá mesta fíflið hérna?

Er mestafífl meira fífl heldur en meirafífl?...

Skák og mát!

Malína 2.4.2009 kl. 17:52

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Mig minnir að það hafi verið í silfri Egils sem ég heyrði Margeir tala um meirafíflskenninguna. Hún gekk að ég held út á að það væri í lagi að borga óheyrilegt verð fyrir hlutabréf og þess háttar ef hægt væri að ganga út frá að einhver fyndist sem væri meira fífl.

Kannski var bankahrunið því að kenna að meirafíflskenningin brást!!

Sæmundur Bjarnason, 2.4.2009 kl. 18:22

8 identicon

Nú fattaði ég það sem þau föttuðu ekki, yes.

EE elle 2.4.2009 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband