514. - Krafan er: Davíð í burtu og helst einhverjir fleiri líka

Jafnvel æstustu stuðningsmenn Davíðs Oddssonar viðurkenna að hann hafi varla gert annað en tómar vitleysur að undanförnu. Mjálma samt eitthvað um að ekki megi persónugera núverandi vandræði. Þegar Davíð loks hætti í stjórnmálum fyrir nokkrum árum sætti fólk sig við að hann færi í seðlabankann því bankinn var og er álitinn nokkurskonar elliheimili fyrir afdankaða stjórnmálamenn. Fólk bjóst ekki við að hann mundi valda skaða þar. Annað hefur komið á daginn og það er engin furða þó fólk vilji fyrir hvern mun losna við hann úr bankanum.

„Við skulum bara átta okkur á því", segi ég í Reykásstíl, að við höfum aldrei fengið að vita hvað þetta icesave-mál snýst um í raun og veru. Ráðamenn hafa aldrei fengist til að segja um hvað er deilt. Hinir svosem ekki heldur enda hefur Geir eflaust beðið þá að þegja yfir því sem fram fer á fundum. Fyrir okkur er þetta lífsspursmál og almenningur þarf sannarlega að fá að segja sitt álit á þessum farsa öllum. Ekki bara mæna á Geir og Sollu á blaðamannafundum þar sem þau hafa ekkert að segja.

Mér fannst greiðsluvísitalan (það er greiðslan) ekkert flott hjá þeim skötuhjúunum þar sem þau stóðu framan við Drekkingarhylsmyndina á blaðamannafundinum. Geir verður alltaf illur og skömmóttur á þessum blaðamannafundum jafnvel þó hann sé spurður ofur varlega.

Geir hefur reynt að telja okkur trú um að Bretar og Hollendingar krefjist þess að við borgum svona 600 milljarða. Ég held ekki að það sé það sem krafist er. Þegar honum lokst tekst að semja um eitthvað miklu minna þá verður hann eflaust voða rogginn og þykist hafa gert vel. Drífur samkomulagið í gegnum þingið og þykist geta setið að völdum lengi enn útá afrekið.

Byrjaði að horfa á Kátu Maskínuna hans Þorsteins J frá því á fimmtudaginn en varð því miður að gefast upp. Ég er ekki sammála honum um að gamlar og lélegar vídeóupptökur eigi erindi til almennings bara vegna þess að þær eru gamlar og lélegar. Fleira þarf að koma til.

Það er misskilningur af versta tagi hjá Jóni Ásgeiri að hægt sé að höfða mál gegn manni fyrir það eitt að bera upp spurningu eða spurningar. Hins vegar verða bankastjórarnir að eiga það við sjálfa sig hvort þeir svara því sem þeir eru spurðir um eða ekki. Jafnvel kæmi til greina að reka þá með skömm ef þeir svara ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góður pistill Sæmi og þú segir það sem ég hef verið að velta fyrir mér lengi..  Um hvað er raunverulega verið að semja.. og ég held að þú hittir naglann á höfuðið með Geir og það að hann komi seinna með grobbnar yfirlýsingar um stórsigur í icesafe.. við þurftum ekki að borga 600 milljarða heldur bara 350...

Solla varð uppvís að hreinni lýgi í vikunni.. en það skrifaði ég um á mínu bloggi í fyrradag..  

Óskar Þorkelsson, 16.11.2008 kl. 00:24

2 identicon

Hvaða skaða hefur Davíð ollið? Var það þegar hann fór fram með fjölmiðlalögin á sínum tíma?  Var það þegar hann sagði nei  við Glitnis mafíuna um að fá peninga íslenskra skattgreiðenda til að greiða fyrir áframhaldandi sukki óreiðumanna?

Þið þurfið nú að fara að staldra aðeins við og horfa yfir veginn og hætta að' láta mata ykkur á skoðunum Baugsmiðlanna!

Elías 16.11.2008 kl. 03:29

3 identicon

Elías fylgist greinilega ekki mikið með eða hefur ekki kunnáttu til að greina atburðarrásina. Þú ættir að lesa erlendar greinar sérfræðinga um hagstjórnina í landinu eða bara greinar íslenskra sérfræðinga um sama hlut.

Davíð þarf að drulla sér úr bankanum þó ekki væri nema til þess að önnur ríki hætti að hlæja að okkur. Og til að hafa það á hreinu þá er ég engan veginn á móti Davíð að öðru leyti. Ég hafði mikið álit á honum sem stjórnmálamanni en hérna er hann gjörsamlega vanhæfur.

Sigurgeir 16.11.2008 kl. 07:24

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég tek undir með Sigurgeiri. vera Davíðs er eins og vera fíls í glervörubúð. hann hefði örugglega getað komið á fjölmiðlalögum, hefði hann haft til þess vit og þroska að gera það í sátt og samvinnu við þingið, en ekki í þessu bræðisofforsi sem hann gerði það.

einkenni Davíðs eru nefnilega bræði og offors.

Brjánn Guðjónsson, 16.11.2008 kl. 11:48

5 Smámynd: corvus corax

Ceaucescu Oddsson hefur ekki ollið neinum skaða en hann hefur valdið gríðarlegum skaða í frekju og ofsa dæmigerðs alkóhólista sem kennir öllum um nema sjálfum sér. Maðurinn er heilaskemmdur og ótrúlegt að flokksmenn hans hafi ekki fyrir löngu síðan áttað sig á því og ýtt honum burtu.

corvus corax, 16.11.2008 kl. 12:18

6 identicon

Að sjálfsögðu á að persónugera vandann, ef einhver brýst inn hjá þér og stelur öllu steini léttara þá að sjálfsögðu persónugerir þú þjófnaðinn. Að fara fram á að persónugera ekki ástandið er eins og að samþykkja þjófnaðinn.

Stefán Pétursson 16.11.2008 kl. 17:10

7 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég er að vanda sammála þér.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 16.11.2008 kl. 17:20

8 Smámynd: Máni Ragnar Svansson

Við fengum ekki bara Breta og Hollendinga, heldur allt ESB á móti okkur, vegna yfirlýsinga Davíðs í sjónvarpi og þvermóðsku Árna Matt í samningum um Ice-save.  Þetta tvennt stórskaðaði samningsstöðu okkar og leiddi til þess að þjóðin var sett í herkví ótta og óvissu.  Við höfðum enga samningsstöðu til að segja :  Við borgum ekki.  Það einungis leiddi til að hinir bankarnir féllu og með því að viðurkenna ekki EES-samninginn, sem við vorum aðilar að, gáfum við Bretum færi á að setja á okkur hryðjuverkalög, sem leiddi svo til að eignir bankanna rýrnuðu að verðmæti.  Svo spyr maður sig, var samræmd stefna um þessi mál í Ríkisstjórn á sínum tíma eða var þetta bara óðagot og misvísandi stefna, Davíð sagði þetta og Árni Matt þetta og ráðherrar Samfylkingar komust hreinlega ekki að, fyrr en eftir að Ingibjörg kom heim og svo lýsir Samfylking yfir að Seðlabankastjóri starfi ekki í hennar umboði og Geir bara ypptir öxlum og segir "So what"  Ef þetta er allt satt, eða þó ekki væri nema eitthvað af þessu, þá er ekki nóg að búa bara til gott áramótaskaup um þetta eftir á, heldur verðum við að læra af þessu og það er ekki hægt, nema einhver verði sóttur til saka um þessi mál.

Máni Ragnar Svansson, 16.11.2008 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband