465. - Er Jens Guð dv-bloggari?

Mér finnst endilega að það hafi staðið í frétt hjá vísi.is um þrætur hans við Helga Helgason að hann væri dv-bloggari en ekki Moggabloggari eins og ég hef alltaf haldið. Ég las þetta í frétt á visi.is í morgun en nú finn ég hana ekki. Hefur mig kannski dreymt þetta?

Annars eru innanflokksátök eins og nefnd eru í þessari frétt (að mig minnir) ekki minn tebolli og ég hef eiginlega enga skoðun á þeim. Það er samt mikið rifist í frjálslynda flokknum eða eigum við að segja mislynda flokknum.

Komst að því um daginn að allir sem þykjast vera eitthvað þurfa að eiga jeppa. Hinsvegar þykjast ekki allir sem eiga jeppa vera eitthvað. Á þessu er talsverður munur sem fólk kýs stundum að horfa framhjá.

Flest þekkjum við áreiðanlega einhverja jeppaeigendur sem allsekki eru að flækjast um á jeppum vegna þess að þeir þykist vera eitthvað. Hafa bara fengið sér jeppa af því að það er ágætt í mörgum tilvikum að eiga jeppa. Þeir eyða reyndar nokkuð miklu svo rétt er að nota þá ekki of mikið.

Hinsvegar er varla þorandi fyrir þá sem eitthvað verulegt eiga undir sér að vera jeppalausir. Hinir og þessir gætu fundið uppá því að líta niður á þá. Þannig að það er vandasamt að eiga ekki jeppa ekki síður en að eiga jeppa.

Þannig finnst mér þessi jeppamál vera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég á stórann jeppa & nægjusama konu...

Hvernig var þetta aftur, "einn í skinn & annar inn" ?

Steingrímur Helgason, 1.10.2008 kl. 00:48

2 Smámynd: S. Lúther Gestsson

DV bauð Jens að koma yfir og blogga hjá þeim, einhvernveginn var því komið fyrir að þegar Jens bloggar hér á MBL þá birtist færslan coperuð á Bloggi DV.

Gríðarlega töff! og auðvitað sega DV menn hann sinn mann.

Enn við Moggabloggarar vitum nú sem er að við eigum hann alveg skuldlausann, bestu bitarnir eru ekkert til sölu:)

S. Lúther Gestsson, 1.10.2008 kl. 01:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband