438. - Öllu blandað saman eða blandað í svartan dauðann eins og Steinar Sigurjónsson hefði líklega sagt

Salvör segir í kommenti í gær að tjáningarfrelsinu fylgi að ribbaldalýður hafi líka tjáningarfrelsi. Þetta er alveg rétt hjá henni. Tjáningarfrelsið getur ekki virkað bara í aðra áttina. Punktur og pasta. Þeir sem blogga með hvítum stöfum á svartan grunn vilja annaðhvort ekki að neinir lesi það sem þeir skrifa eða hafa engan skilning á því hvað felst í því að lesa. Jóhannes Ragnarsson er mikill eðalbloggari og gerir endalaust sögur um allan þremilinn. Sjálfur er ég sennilega alltof alvarlegur yfirleitt. Ólympíuleikanna í Kína verður í framtíðinni varla minnst vegna úrslitanna í handboltakeppninni nema á Íslandi. Annarsstaðar verður þeirra einkum minnst fyrir afrek tveggja manna. Sundmannsins bandaríska Michael Phelps og hlauparans Usain Bolt frá Jamaíka. Báðir eru þeir ótrúlegir íþróttamenn. Hörður Haraldsson var góður kennari og frábær hlaupari. Stór og stæðilegur, snemma sköllóttur, góður teiknari og ótrúlega skapgóður. Eftir því sem ég les meira um Palin kemst ég meira og meira á þá skoðun að það hafi verið mikil mistök hjá McCain að velja hana. Þetta leit vel út í fyrstu en gæti átt eftir að kosta McCain sigurinn í forsetakosingunum. Einhvern tíma var Hörður á Kvennaskólanum að reyna að ná sér niðri á okkur krökkunum þegar við vorum að stríða honum á fyllibyttustandinu en fann ekki upp á neinu betra en að kalla mig Sæmund í kexinu. Esjukex var ferkantað en Frónkex kringlótt. Kremkex var í verslunum geymt í sérstökum skápum og selt í lausri vigt. Beinlínis fíflalegt hjá Steingrími Jóhanni að vera að kvarta yfir vínarbrauðsleysi. Er þessum aumingjum ekki sjálfrátt? Líklega gæti ég klifrað hærra á Moggabloggsvinsældalistanum ef ég linkaði meira og skrifaði oftar. Ef hægt væri að fara með blogg í rúmið í stað bóka mundi ég gera það. Bækur eru að verða úrelt þing. Ég hugsa að Ómar Ragnarsson ætli að bjóða sig fram til þings aftur í næstu kosningum. Það er stundum gaman að lesa bloggið hans en mér finnst hann vera að undirbúa jarðveginn fyrir hugsanlegt framboð. Dagblöð sé ég sjaldan og les næstum aldrei. Sjónvarpsfréttir horfi ég á og svo les ég blogg alveg undir drep. Kannski er þetta blogg einkum frábrugðið öðrum sem ég hef skrifað að því leyti að greinaskilum er sleppt. Æ ég held að þetta sé að verða nóg.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú hefur þurft um víðan völl til að finna allan þennan fróðleik.  Samsinni inntakinu.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 2.9.2008 kl. 00:36

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þessi kex-Sæmundur er að verða frægur þessa dagana, kannski eftir að „Sæmundur í sparifötum“ komst í spurningakeppnina. Sumir halda að hann hafi verið starfsmaður hjá Frón eða Esju en ég var að heyra að hann hafi rekið kexverksmiðjuna Esju áður en hún sameinaðist Frón. Þetta er allt fyrir mína tíð en faðir minn vill meina að gæluheitið „Sæmundur í sparifötum“ hafi komist komist á eftirá, þ.e. eftir að hætt var að framleiða umrætt kex … og nú fæ ég mér kex.

Emil Hannes Valgeirsson, 2.9.2008 kl. 00:45

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég kann nú alltaf betur við að hafa greinaskil... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.9.2008 kl. 00:46

4 Smámynd: Yngvi Högnason

Þetta var nú bara ágætis hrærigrautur, hrærigrautur sem á ekki að hafa greinaskil.

Yngvi Högnason, 2.9.2008 kl. 08:27

5 identicon

þetta er góður grautur.

alva 2.9.2008 kl. 09:04

6 identicon

Sæmundur þessi sem minnist er á í athugasemd, bjó á Sjafnargötu 2 og var oft kallaður Sæmundur í kexinu og stytt í Sæmi Kex. Sonur hans Ólafur, var líka stundum kallaður Óli Kex! - Þetta virtist stefna í ættarnafn! Þetta var nú bara græskulaust grín, og um öndvegisfólk að ræða. Mér er í minni að Sæmi var með fjárbúskap einhversstaðar á Reykjanesi og var stndum með kindur á jeppakerrunni sinni sem biðu jarmandi þarna í götunni meðan Sæmi skrapp inn í hádegismat. Eitthvað að flytja til féð. Hann átti jafnvel til að vera með jarmandi lömb (heimalninga) í garðinum hjá sér  á Sjafnargötunni. Ég sá aldrei Sæmund á sparifötunum, man hann einungis klæddan eins og bónda ofna úr sveit í vinnubuxum, lopapeysu og með húfuna! þótt forstjóri væri. - Það skyldi þó ekki vera skýringin á nafni kremkexsins?, sem var miklu dýrara og fágætara en "beinakexið"! - "Humoristum" þótt það sjaldgæf sjón að sjá "Sæmund á sparifötunum"!

Kjartan Jónsson 3.9.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband