361. - Blogg um blogg um blogg um blogg

Alltaf fjölgar bloggurum og Moggabloggurum þó sérstaklega. Frændi konunnar minnar bloggaði nýlega um ísbjarnarmálið (iska.blog.is). Það er systursonur hennar Benedikt Henry Segura sem skrifar þar. Auðvitað gæti réttritun og annað þess háttar verið betra hjá honum, en Henry hefur svo sannarlega vit á þessu. Hann hefur starfað í mörg ár sem þyrluflugmaður í Kanada. Íslendingar í útlöndum fylgjast oft vel með okkur hér á klakanum enda er bloggið ágætur samskiptamiðill.

Arnþór Helgason er kominn í hóp forsíðubloggara og vel getur verið að það verði til þess að hann fari að blogga oftar en undanfarið. Sem er mjög gott. Hann vantar bara að setja mynd af sér á bloggsíðuna. Sem minnir mig á að mér veitti ekki af að finna skárri mynd af mér.

Sigurður Hreiðar ráðleggur mér að nota kommur sparlega og frekar punkt ef ég er í vafa. Þetta finnst mér góð ráðlegging og er að hugsa um að fara eftir henni.

Hildur Helga lætur móðann mása um eðli bloggs og fær helling af kommentum. Svanur Gísli Þorkelsson er harmi sleginn yfir að tilheyra ekki forsíðubloggurum. Hildigunnur Rúnarsdóttir játar á sig fordóma og opinberar svolítið þekkingarleysi. (Já, en þeir byrjuðu) Margir hafa miklar skoðanir á öðrum bloggum. Guðný Anna Arnþórsdóttir gerir ágæta úttekt á bloggum yfirleitt. Lára Hanna bendir á mjög góða færslu um blogg hjá Sigurði Þór Guðjónssyni og þannig mætti lengi telja.

Mér finnst þessi svarhali hjá Hildi Helgu orðinn svo langur að marklaust sé að bæta við hann. Annars hefði ég kannski gert það. Auk þess er betra að blogga bara um hlutina, en að sóa góðum hugmyndum í misgáfulega svarhala sem margir missa af.

Guðbjörg Hildur Kolbeins fjargviðrast yfir því í sínu bloggi að einhver (kannski hún) hafi kvartað yfir einhverju við Úrval-Útsýn fyrir sjö árum og ekki fengið svar ennþá. Jahérna, hefði ekki bara verið ástæða til að ítreka kvartið. Þetta tengist blogginu hjá Hildi Helgu að því leyti að Guðbjörg leyfir ekki neinar athugasemdir. Það er samt stundum þess virði að lesa bloggið hennar. Bloggið Sóleyjar les ég afar sjaldan og get ekki tekið þátt í skoðanaskipum um komment hjá henni.

Beturvitrungur bloggvinur minn (og jafnvel aðdáandi) skrifar í þennan svarhala og vitnar í einhvern sem sagði í sama hala að "eigandi síðunnar ber ábyrgð á því efni sem birtist á henni." Þetta held ég að sé mesta bull. Ef ég á að bera ábyrgð á því sem einhver skrifar á mína síðu þá hlýtur ritstjóri Morgunblaðsins að bera ábyrgð á mér. Ekki hef ég skrifað undir neitt annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Beturvitringur

Svo ég noti nú orðalag eins 6 ára: "Aul - eins gott" - þ.e. ef rétt er að ég megi vera ábyrgðarlaus (hnegg, hnegg)

Ég tek ábyrgð á mínu framlagi og fæ enga fróun af því að vera ókurteis, svo ég er bara kurteis.  Annað kann svo e-m öðrum að finnast, en ég tek ekki ábyrgð á því.

Gakk þú úr skugga saemi7 >>>  YLHYR Aðdáandi (*_*) 

Beturvitringur, 9.6.2008 kl. 02:12

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég er alveg viss um að ef einhver skrifar eitthvað meiðandi í athugasemd við  bloggið mitt þá er útilokað að gera mig ábyrgan fyrir því nema hægt sé að sanna að ég hafi vitað af því, vitað hvernig átti að losna við athugasemdina og/eða ekki viljað eyða henni þó ég væri beðinn. Hvernig í ósköpunum ætti líka að vera hægt að gera mann ábyrgan fyrir því sem maður veit ekkert um.

Sæmundur Bjarnason, 9.6.2008 kl. 02:47

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þetta eru þau helstu, ekki satt?

Mig langar líka að vera á forsíðu moggabloggsins, veitir ekki af því að hafa fólk á öllum aldri!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 00:09

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Mér sýnist Svanur Gísli vera kominn á forsíðuna. Prófaðu bara að biðja þá Moggabloggsmenn um pláss þar. Því fleiri því betra.

Sæmundur Bjarnason, 10.6.2008 kl. 00:16

5 Smámynd: Beturvitringur

Hvað gerir vefritara að "forsíðumanni"?

Beturvitringur, 10.6.2008 kl. 00:40

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Það held ég að sé bara eitthvað sem stjórnendur Moggabloggsins ákveða. Skrifi oft og reglulega, um fjölbreytt efni, ekki tóm innihaldslítil fréttablogg minnir mig. O.s.frv. Best að spyrja bara stjórnendur bloggsins.

Sæmundur Bjarnason, 10.6.2008 kl. 01:40

7 Smámynd: Beturvitringur

Ekki nægur áhugi, er ekki í sókn!

Beturvitringur, 10.6.2008 kl. 02:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband