2747 - Enn um Trump

Slæmt er að vera með Trump ræfilinn svona á heilanum, þegar um nóg annað er að hugsa. Að sumu leyti er ekkert skrítið þó Bandaríkjamenn flykki sér um mann sem á svo áberandi hátt beitir sér gegn kerfinu eins og hann gerir. Allt vill hann samt gera flokkspólitískt og kennir að sjálfsögðu demókrötum um allt sem miður fer. Stundum mismælir hann sig reyndar og lýgur pínulítið. Ekki getur hann samt kennt þeim um það. Verst er að hann skuli koma frá hægri og vera svona ríkur og sérgóður. Auðvitað verður ekki á allt kosið, en vel finnst mér að megi hræra svolítið upp í njósna-, her- og öryggiskerfunum í bandaríkjunum. Verst hvað Trump er öfgafullur í flóttamannamálum. Svo má segja að fjölmiðlamálin séu sér kapítuli.

Sennilega er það Jón Baldvin Hannibalsson sem hefur komið því inn hjá mér að skandinavíska velferðarkerfið sé mun betra en ameríska kerfið á flestum sviðum, þó hefur það bandaríska hingað til verið með því besta í mannréttindamálum. Annars eru alþjóðleg stjórnmál talsvert fyrir utan og ofan við minn skilning. Hreyfiöfl þess eru mér alls ekki eins kunn og ég vil stundum vera láta.

Í gær (mánudag) vorum við viðstödd útför í Skálholtsdómkirkju. Þar var borinn til grafar Guðjón Gunnarsson, faðir Sollu hans Þórs. Komum aðeins við hjá Herði og Ingibjörgu og fórum með þeim í athöfnina. Þau voru að sjálfsögðu sveitungar Guðjóns um langa hríð. Á eftir borðuðum við á heisluhæli NLFÍ og þar hitti ég Guðmund Ólafsson en Hörður þekkti hann greinilega. Man vel eftir því að hann og Þór Eysteinsson voru ákaflega duglegir við að skrifa á Imbu í gamla daga. Hittum Bjarna Harðarson sem snöggvast á Selfossi í bakaleiðinni og eftir því sem hann sagði þá er blessuð rigningin besti vinur bóksalans.

Nú er sumarið greinilega komið. Sennilega stendur það stutt, en við eigum svosem ekki öðru að venjast. Undanfarin ár hafa að mörgu leyti verið undantekningin sem sannar regluna. Veit ekki hvort ég nenni að setja þetta upp á bloggið. Áreiðanlega nota menn þetta góðviðri til annars en lesturs. Svo er ég eiginlega ekki alveg búinn með kvótann.

Langminnugir muna kannski eftir því að Kári Stefánsson gaf fyrir hönd Íslenskrar Erfðagreiningar Landsspítalanum jáeinaskanna fyrir fáeinum árum. Samkvæmt Morgunblaðinu (ekki lýgur það) er stefnt að því að gefa út starfsleyfi fyrir hann á næstunni. Kannski kemst hann einhverntíma í notkun. Svona ganga hlutirnir bara fyrir sig hérna á Íslandi og ekkert við því að gera.

IMG 7947Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hjá Sæma allt er slétt og fellt,
svei mér ekki skrítið,
en Trumpinn hefur sig nú selt,
Satan fyrir lítið.

Þorsteinn Briem, 18.7.2018 kl. 16:10

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kölska sjálfum seldi sig
sagðist fara á lítið.
Áfram mun samt elta þig
ósköp það er skrýtið.

Sæmundur Bjarnason, 18.7.2018 kl. 17:38

3 identicon

Það þurfti fyrst að byggja utan um Jáskannan og svo höfðu þeir ekki hugsað út í að það þyrfti leyfi fyrir geislavikru efnunum sem eru notuð

Persónulega þá finnst mér Trump einsog ferskur andblær inn í jarmandi hjarðhegðun stjórnmálmanna sem aldrei þora að segja sína skoðun af hræðslu við að móðga þá sem sí og æ eru að tjá sig í nafni Þjóðarinnar

þó í raun séu þeir einungis að tala fyrir örfáa

Grímur 19.7.2018 kl. 18:31

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, já. Það eru ótal afsakanir til fyrir þessu með jáskannann. Samt er þetta búið að dragast óhóflega lengi.

Varðandi Trump er ég að sumu leyti sammála þér, en finnst samt að hann sjáist ekki alltaf fyrir. Aðstæður hafa líka verið honum afar hagstæðar. Mistökin geta verið ansi dýr þegar svona hátt er komið. Auðvitað er "pressan" honum andsnúin en það er ekki að ástæðulausu.

Sæmundur Bjarnason, 20.7.2018 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband