2650 - Enn og aftur sitthvað um Tromparann

Ekki lagast kosningasjá hins venjulega manns þessa dagana fremur venju. Flokkum fjölgar sem aldrei fyrr og þeir lofa svosem öllu fögru, ekki vantar það. Gott ef þeir sem ópólitískastir eru kjósi ekki bara Sjálfstæðisflokkinn eins og vanalega. Sennilega er stærð hans ásamt fornri frægð og bitlingum hans sterkustu vopn. Allir sem láta í sér heyra virðast a.m.k. vera á móti honum. Það finnst mér a.m.k. Engum finnst taka því að rísa upp á afturlappirnar og tilkynna að þeir séu hættir við að kjósa Humanistaflokkinn. Eiginlega leiðist mér allt þetta kosningastúss, en þó er það í aðra röndina svolítið spennandi. Vitanlega hafa úrslitin einhver áhrif á líf manns, en mér finnst þau áhrif vera stórlega ofmetin. Þetta fer allt einhvern vegin. Eins og maðurinn sagði.

Væntanlegar kosningar tröllríða öllu. Stundum dettur mér í hug að blaða og fréttamenn séu þeir einu sem virkilega njóta þess að hafa kosningar sem oftast. Fréttirnar skrifa sig nefnilega næstum því sjálfar og vel má endurnýta kosningaefni því það les þetta hvort eð er ekki nokkur maður. Annars er á það að líta að sjálfskipuðum blaðamönnum hefur fjölgað gríðarlega að undanförnu og bera félagslegu miðlarnir þess glöggt vitni að margir vilja tilheyra þeim flokki. Einkennilegt er að fáir skuli hafa veitt því athygli að með því að vera á móti sem flestu fást flest atkvæðin. Þessu hafa stærstu flokkarnir þó gert sér grein fyrir og vera má að hin neikvæðu loforðin verði ofan á að loknum þessum kosningum. Læt ég svo lokið þessu kosningaspjalli mínu.

Annars er það helst í erlendum fréttum þessa dagana að Kínverjar kunna að vera í þann veginn að snúast gegn Norður-Kóreumönnum. Líklega eru þeir orðnir hundleiðir á látunum í litla stráknum. Svo eru réttarhöld nýhafin í Malasíu útaf morði á hálfbróður einræðisherrans og meðal annars hefur hvað eftir annað þurft að fresta knattspyrnuleik í undankeppni heimsmeistaramótsins milli þessara þjóða því samband þeirra, sem var sæmilegt áður, hefur versnað mikið að undanförnu.

Man vel eftir réttarhöldunum yfir O.J Simpson á sínum tíma. Þau voru efst á baugi í fréttum í langan tíma. Þar var hann sýknaður, en lenti samt í fangelsi seinna meir og svo mikið leynist enn í honum af fornri frægð að nauðsynlegt þótti um daginn að láta hann lausan úr því fangelsi leynilega um nótt, eftir að fangelsisyfirvöld höfðu logið til um lausn hans.

Lítil sem engin hætta er á að Tromparinn reyni að hrófla við frú Clinton, nema þá í orðum. Alls ekki mun hann þora að ákæra hana eins og hann hafði hátt um í kosningabaráttunni. Á allan hátt er greinilegt að Donald þessi Trump sem sagt er að hafi sigrað í forsetakosningunum í Bandaríkjunum síðastliðið haust er langmestur í munninum. Stendur sjaldan við stóru orðin. Orðhákur er hann mikill eins og berlega kom fram í hinni langdregnu og leiðinlegu kosningabaráttu.

IMG 0928Einhver mynd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sæmundur

Flokkaruglið nær stöðugt nýjum lægðum í lágkúru. Persónuleg held ég að það haldi áfram, um skamma hríð, þangað til þeir loksins átta sig á því að þeir seldu kapitalistunum fulltrúalýðræðið, ala Potus Mr. Darn Mud Plot. Þá verður fyrst tilkynnt um andlát fulltrúalýðræðisins.

Þetta sem þú segir um fréttamennina er rétt, þeir eru dálítið eins og taumlaus börn á eftir næsta skúbbi.

Neikvæðu loforðin halda best þ.e. hræða fólk til aðgerða. Klassík.

Sigþór Hrafnsson 3.10.2017 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband