2052 - Hommastríð

Mér er sama hvað öðrum finnst, mér finnst það lélegt hjá dr. Gunna að láta peninga sem alls ekki eru í hendi hafa þau áhrif á sig að sparka í Gylfa Ægisson á þann hátt sem hann gerir með því að fá annan til að syngja lag sem hann ætlaði að láta Gylfa syngja og var búinn að láta taka upp. Ég er samt alls ekki sammála Gylfa um nærri allt sem hann hefur látið frá sér fara um Gleðigönguna svokölluðu. Ég hef aldrei farið í hana og veit ekkert hvernig hún er. Málfrelsi trompar samt allt finnst mér. Þöggun er þetta a.m.k.

Einnig er það nokkuð gott hjá „Vantrú“ og snertir málfrelsi líka, að gefa út Spegilseintakið sem bannað var vegna guðlasts og setja á vefinn hjá sér. Las það eintak á sínum tíma og var sammála flestu sem þar var að finna.

Já, ég er fremur duglegur að blogga. Að fésbókast og láta ljós mitt skína þar er ég ekki nærri eins duglegur við. Þó ég sé farinn að gamlast nokkuð á það ágætlega við mig að setja hugrenningar mína á blað og breyta því svo í blogg. Persónuleg eru þau yfirleitt ekki. Ég hef samt gaman af því að sýnast miklu gáfaðri en ég er. Og ég lýg því ekki að grunnurinn að blogginu mínu er löng æfing í því að tala við sjálfan mig. Hvort aðrir hafa heyrt það veit ég ekkert um. Þar að auki er ég sæmilega góður í stafsetningu og þá er ekki að sökum að spyrja. Þessir hæfileikar (ef hæfileika skyldi kalla) henta ágætlega í bloggvesen. Þessvegna er ég að þessu. Svo er ekki mikið annað sem ég get orðið gert.

Lækin á fésbókinni hjá mér fara eftir ýmsu. Það fer t.d. eftir því hver hefur sent síðurnar upp eða til mín. Einnig eftir efni þeirra. Hvernig skapi ég er í við lesturinn og sömuleiðis og ekki síst eru það algjörar tilviljanir sem því ráða. Yfirleitt er ég fremur spar á lækin. Greinilega eru menn samt missparir á þau. Í heild held ég að lækin skipti engu sérstöku máli. Heldur ekki upplýsingarnar sem stundum má sjá (held að það sé aðallega í hópum) um hve margir hafi séð viðkomandi síðu. Það getur sem best verið vegna algjörrar tilviljunar sem menn lenda á síðunni. Líka hvort þeir lesa það sem þar stendur.

En skipta þá heimsókirnar á bloggið einhverju máli? Eiginlega ekki. Það er vel hægt að hafa áhrif á þær með ýmsum ráðum . Það eru eiginlega bara þau blogg sem þú heimsækir reglulega þar sem heimsóknir þínar skipta einhverju máli. Svo geta ástæðurnar fyrir því að þú heimsækir bloggið oft verið af ýmsu tagi. Þú getur verið ákaflega sammála því sem þar er sagt eða ósammála. Kannski er það bara svona vel skrifað. Ástæðurnar geta semsagt verið fjölmargar.

Kannski skiptir bara  máli hvað þú skrifar. Mér leiðast málalengingar, en kannski er ég meistari í slíku sjálfur. Stundum finnst mér það sem ég skrifa vera einskis virði, en stundum vera afskaplega vel sagt. Fyrirfram get ég ómögulega fundið út hvort er líklegra.

Nú er ég aftur að fá áhuga á skáldsögum. Sú sem ég er að lesa þessa dagana heitir: „The pillars of the earth“ og er eftir Ken Follett. Þetta er gömul metsölubók að ég held og gerist að mestu á Englandi á 12. öld. Auk þess að láta ýmislegt gerast í þessari bók er höfundurinn m.a. að fræða lesendur um þennan tíma og þetta svæði. Aðallega fjallar bókin um dómkirkjusmíði og þ.h. Sennilega finnst mér þetta efni svona áhugavert vegna þess að ég las á unga aldri myndskreytta bók um „Ívar hlújárn“ eftir Walter Scott sem gerist á svipuðum stað og tíma. Þessa bók (Pillars of the earth) fann ég í kyndlinum mínum og hef enga hugmynd um hvernig hún komst þangað.

Inngang að bloggi sem er á slóðinni forréttindafeminismi.com las ég áðan og er sammála sumu sem þar er sagt. Ákaflega andsnúinn ýmsu öðru sem þar stendur. Feminisminn er mér ekkert sérstakt áhugamál og varðandi þau mál er ég oft mjög sammála Evu Hauksdóttur. Setti þessa slóð samt í bookmark hjá mér og e.t.v. les ég meira eftir Sigurð þennan seinna meir. Mér finnst hann samt full-langdreginn. Sá um daginn þáttinn um barnsránsmálið sem ástralska sjónvarpið gerði og vissulega var hann áhrifamikill og vel gerður en sem innlegg í kynjaumræðuna held ég að hann sé ekki mikils virði.

IMG 4117Sveppafjölskylda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjólfur Þorvarðsson

Sæmundur, ég sé að ég verð að fara að lesa bloggin þín! "Pillars of the Earth" hef ég ekki lesið, en séð þáttaröðina, hún var ágæt. Ívar Hlújárn var hins vegar frábær!

Dr. Gunni og Gylfi: Ég er algjörlega sammála þér, málfrelsi er mikilvægara en flest annað. Gylfi má alveg hafa sínar skoðanir, sjálfur er ég samkynhneigður en tel það ekkert kappsmál að troða samkynhneigði í andlitið á öðru fólki. Það má vel vera að Gylfi hafi eitthvað til síns máls, en Dr. Gunni ræður auðvitað sjálfur hvað hann gerir.

Fésbókarlík finnst mér betra nýyrði en feisbúkklæk. Manni líkar kannski við eitthvað og gefur því lík. En daginn eftir er það allt dautt.

Brynjólfur Þorvarðsson, 7.10.2013 kl. 20:33

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Brynjólfur. Ég hef lesið (að hluta a.m.k.)tvær bækur eftir Richard Dawkins og þær höfðu mikil áhrif á mig. Önnur heitir "The selfish gene" og hin "The god delusion".

Ég kaus píratana í síðustu kosningum mest vegna áherslu þeirra á málfrelsi og mannréttindi. Finnst Birgitta Jónsdóttir vera einhver besti þingmaðurinn og þekkti vel mömmu hennar.

Sæmundur Bjarnason, 7.10.2013 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband