1379 - NATO og Gaddafi

hansGamla myndin.
Hér er það Hans Gústafsson sem er að súpa á einhverju sér til hressingar. Myndin er úr sólbaðsseríunni sem tekin var uppá Reykjum í fyrndinni.

Nú er ég alveg orðinn fastur í því að setja eina gamla mynd og eina nýlega á bloggið mitt á hverjum degi og blogga svo smá líka. Einnig finnst mér kannski ástæða til að skrifa eitthvað um myndirnar. Flest sem ég skrifa finnst mér afar merkilegt. A.m.k. meðan ég er að skrifa það.

Þeir sem lifa og hrærast í pólitík og hafa hátt í opinberri umræðu, eru nú sem óðast að skipta yfir í tóbak og önnur eiturlyf. Nenna semsagt ekki lengur að tala bara um hrunið, og hvað hefði átt að gera ef eitthvað hefði verið svona og svona. Það er hvorki margt né merkilegt sem ég hef til málanna að leggja á eiturlyfjasviðinu. Finnst afstaða almennings til sumra eiturlyfja vera að mildast en afstaða lögreglu og opinberra aðila að harðna. Þessi mál ásamt innflytjendamálum munu taka við af hrunmálum smám saman sem mál málanna. Það eru fjölmiðlarnir og hugur þeirra sem þar starfa sem ræður talsverðu um það hvað hæst ber í umræðunni hverju sinni.

Eitthvað virðist óljóst með stefnu flokkanna hér á Íslandi í hinum ýmsu utanríkismálum. Kannski er stefnan bara að breytast og ég fylgist svona illa með. T.d. veit ég ekki með vissu hverjir styðja Gaddafi og hverjir uppreisnarmenn í Líbýu. Nú eða aðild að NATO ætti ég kannski frekar að segja. Sömuleiðis virðist afstaðan til ESB ekki öllum ljós. Nú er Ásmundur Einar genginn í Framsóknarflokkinn vegna þess að hann er víst forystuflokkurinn gegn aðild að ESB. Mig minnir að Bjarni Harðarson fyrrverandi framsóknarþingmaður hafi skorað á aðra að kjósa vinstri græna í síðustu kosningum því þar væri forystan við andstöðuna gegn ESB.

Enginn vill taka ábyrgð á bönkunum. Hvorki ráðherra né bankasýslan segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins (nýja). Skyldu bankastjórarnir kannski bera einhverja ábyrgð?

Hafi eitthvað verið rangt gert varðandi sölu bankanna til kröfuhafa er það allt fjármálaeftirlitinu að kenna og kemur ríkisstjórninni ekkert við, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Þetta fannst mér hann meina en kannski hefur það verið eitthvað allt annað. Já, hún er hálfleiðinleg pólitíkin og hvað rekur sig á annars horn.

Skýrt er frá því á mbl.is að 18 ára stúlka hafi kvartað undan því við Persónuvernd að móðir hennar hafi opnað bréf til hennar o.s.frv. Frá mbl.is er linkað í bréf frá Persónuvernd um málið. Mér þótti þetta athyglisvert og las bréfið frá Persónuvernd. Þar vakti það sérstaka athygli mína að í bréfinu er Facebook kölluð fésbók. Er þetta orð þar með búið að sigra?

IMG 5566Illa farið tré.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og illa farið land?

Ólafur Sveinsson 2.6.2011 kl. 00:37

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, þetta er í gryfjunum við Vífilfell. Mikið af allskyns rusli þar.

Sæmundur Bjarnason, 2.6.2011 kl. 00:53

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Fín mynd af Gaddafi! Hvað var hann að gera að Reykjum?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 2.6.2011 kl. 08:22

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Gá að Gissuri Þorvaldssyni að sjálfsögðu, en hann var bara nýfarinn.  Hæ Villi. Gaman að heyra í þér. Get ekki annað en hugsað til þín stöku sinnum. Þú ert enn við sama heygarðshornið. Ekki fallegt að vera að gera grín að Hansa Gústafs og kalla hann Gaddafi.  Broskallinn þýðir að svolítið meiri alvara fylgir. 

Sæmundur Bjarnason, 2.6.2011 kl. 09:42

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Meðal annarrra orða, Villi. Ég hef ekki séð þig á fésbókinni. Af hverju er það?

Sæmundur Bjarnason, 2.6.2011 kl. 09:48

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég er á rassbrókinni og læt það nægja

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.6.2011 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband