1037 - Árásin á skipalestina

Árás Ísraelsmanna á skipalestina mun verða mál málanna næstu daga og auka veg Palestínumanna í deilunum við Ísraelsmenn. Ástandið í Miðausturlöndum er samt ekki fyrir venjulegt fólk að skilja almennilega. Það er samt Bandaríska ríkisstjórnin sem ræður mestu þarna. Ef Obama getur ekki gert eitthvað í þessu máli og ráðið við olíulekann á heimaslóðum verður hann máttlaus forseti og ekki minnisstæður.

Það getur vel verið að færri drepist úr sulti í fangabúðunum á Gaza en venjulega í stríðsfangabúðum eða gettóum. Margt er samt líkt með þeim. Íbúarnir á Gaza telja sig örugglega aðeins geta valið á milli Hamas og Ísraelsstjórnar þó alþjóðasamfélagið svonefnda undir forystu Bandaríkjanna vilji helst fara einhverja millileið.

Aðgerð Ísraelsmanna var það sem oft er kallað „Commando raid". Árásin á Entebbe tókst vel á sínum tíma og stundum hafa aðgerðir Ísraelsmanna tekist vel frá þeirra sjónarmiði að minnsta kosti. Aðgerð þeirra að þessu sinni mistókst hins vegar herfilega og getur orðið Ísraelsmönnum dýr.

Áreiðanlega mun Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson Moggabloggari í Kóngsins Köbenhavn rísa upp á afturlappirnar útaf þessari misheppnuðu árás enda lítur hann á sig sem sérlegan málsvara Ísraelsku ríkisstjórnarinnar. (Og les stundum bloggið mitt). Hann er þegar risinn sýnist mér og kennir Tyrkjum um þetta allt saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað ''mistókst'' í þessari árás? Voru ekki a.m.k. 9 drepnir? Svo eru fleiri skip á leiðinni. Þetta eru ekki herskip eða skæruliðar heldur almennir borgarar. Sumum þeirra er kannski illa við Ísrael en þetta eru samt óvopnuð skip almennra borgara. Það sem er svakalegast er það að herafla sé beitt alveg miskunnarlaust gegn almennum borgurum sem eru upp á sitt eindæmi en ekki á vegum ríkisstjórna sinna og svo eru frekari slíkar aðgerðir boðaðar hiklaust gegn öðrum skipum að því er ég las í blaði haft eftir ísraelskum herstjóra.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.6.2010 kl. 00:41

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

villi er nú þegar búinn að tjásig um þessa aðgerð ísraela gegn ofbeldisfullum hryðjuverkamönnum sem ógna hernaðarhagsmunum ísraela.

Varðandi athugasemd Sigurðar hér að ofan.. þá eru ísraelar búnir að segja að næst muni þeir láta þetta ganga harðar yfir.. með öðrum orðum þeir ætlaað drepa fleiri og eru ekkert að fela það.

Óskar Þorkelsson, 2.6.2010 kl. 03:47

3 identicon

Alla mína tíð hefur maður heyrt fréttir að þessu svæði og alltaf eru það stríðsfréttir með sárafáum undantekknigum og er ég vanur að skrúfa niður í útvarpinu þegar þær byrja, einhvernvegin fynnst manni að þetta sé allveg vonlaust við að eiga, en þeir náðu að semja t.d. á Norður Írlandi en það fannst manni eitthvað vonlaust, þannig að enn er von

kv

Polli

Polli 2.6.2010 kl. 04:16

4 identicon

Það er með Ísrael, þessa guðs útvöldu þjóð að trúarsannfæringin verður þegnunum mjög skaðleg og veldur mikilli siðspillingu. Sama má segja um öfgatrúarhópa í nágrannaríkjum og víðar enda greinar af sama meiði.

Trúarbrögð eru varasöm þar sem ekkert síður má beita þeim til ills en góðs. Kristnir menn hafa ekki farið varhluta af þeim ósköpum. Um það vitna krossferðir, galdrabrennur, rannsóknarréttur o.fl.

Bandaríkin, "Guðs eigið land" eru gott dæmi um hvernig hugmyndir um eigið ágæti og yfirburði hafa afsiðað þjóðina. Á alþjóðavettvangi virðist hún því víða frekar koma fram með grimmd og illsku. Kærleiksboðskapur Krists endurspeglast þar ekki, heldur virðast lögmál gyðinga eiga frekar upp á pallborðið þar.

Íslendingar mættu draga sinn lærdóm af þessu og losa tengsl ríkisins við þjóðkirkjuna. Sambland trúar og stjórnmála getur gjarnan orðið eitruð blanda þó það hafi ekki verið svo á Íslandi um nokkurt skeið. Frjálslynt ríkisvald getur síðan með löggjöf verndað mannréttindi borgarana gegn öfgahópum af hverju tagi.

Sverrir 2.6.2010 kl. 06:50

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk allir. Ég mun ekki taka mikinn þátt í umræðum hér þó þær verði kannski þónokkrar. Þessi mál eru afar viðkvæm.

Sigurður, kannski liggja mistökin í þessum 9 (eða 10) drepnu. Ég er bara þannig gerður að ég get ekki ætlað mönnum að myrða aðra með köldu blóði og að ástæðulausu.

Það sem Sverrir segir um sambland trúar og stjórnmála er einmitt mjög nálægt mínum hugsunum. Tyrkir eru á líkum bát og Ísraelar að því leyti. Það kann einmitt að vera þessvegna sem sambandið við Tyrki er Ísraelum svo dýrmætt.

Sá er einmitt helsti galli á stjórnmálum flestra islamskra ríkja að þar blandast þetta meira saman en okkur gott þykir.

Tek líka undir orð Polla um að það er von, þrátt fyrir allt.

Sæmundur Bjarnason, 2.6.2010 kl. 08:01

6 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Hvað er gert þar sem óðir hundar berjast?  þeim er stíað í sundur..Það er það sem þarf að gera þarna. Það þarf að reka ísraelsmenn til baka af hernumdu svæðunum og gera Jerúsalem að alþjóðlegu yfirráðasvæði. Rifrildið um Jerúsalem skapar mestu illindin

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.6.2010 kl. 11:09

7 identicon

Sko það sem þarf að gera er að taka af þeim trúarritin... trúarritin eru ástæðan fyrir öllu ruglinu.
Þessir trúarhópar byrja á að heilaþvo börn um leið og þau fæðast... guð vill að þú drepir þessa, guð gaf okkur þetta og hitt...

DoctorE 2.6.2010 kl. 11:20

8 identicon

Thad er enginn skortur á matarvörum í Gaza. Sídast í dag sagdi fréttaritari saenska sjónvarpsins ad allar verzlanir vaeru fullar af vörum. UNRVA hefur nýlega sagt thad sama. Vörurnar koma frá Ísrael og gegnum smygl frá Egyptalandi.

Thad var eingöngu pólitískur tilgangur med thessari "humanitarian aid" enda reiknudu farthegar skipalestarinnar med ad Ísraelar stödvudu hana.  Thess vegna átti ad veita mótspyrnu og sýna allt í beinni útsendingu. Ísraelar reiknudu örugglega med ad "fridarsinnarnir" vaeru óvopnadir en svo reyndist ekki.

Fréttamadur frá BBC hefur sýnt fram á hvers konar "fridarsinnar" voru á tyrkneska bátnum. Thó trúi ég thví ad fólk í ödrum bátum hafi verid óvopnad enda óskatt.

Henning Mankell sem taladi fagurlega um fridarsinna og hjálp til Gaza ádur en hann lagdi upp, ljóstradi upp um sjálfan sig  thegar hann í dag taladi um  "ad koma Ísrael á kné" Thad var málid og tilgangurinn.

 Svo má baeta thví vid ad Egyptar loka líka landamaerunum til Gaza.(thó their hafi opnad thau í dag fyrir hraesni og sýndarmennsku) Their eru ad byggja nedanjardarmúr til ad hindra smygl, daudhraeddir eins og their eru vid Hamas sem er angi av "Muslimska Brödraskapet" sem er bannad í Egyptalandi.

Nokkur mótmaeli? Ekki thad ég veit.

Thess er sjaldan getid í fréttum ad Egyptar skjóta oft fólk til bana vid egyptsku landamaerin. Og Hamas handtekur fólk og tekur af lífi án dóms og laga og rífur hús í Gaza.

Nokkur mótmaeli?

Og Ögmundur taladi í gaerkvöld um Gaza  sem hersetid í meir en 60 ár. Ad vísu rétt .. en ekki af Ísraelum fyrr en 1967.  Heilathvottur á fávísri thjód sem thjáist af mikilmennsku og thar sem hver og einn  telur sig sérfraeding.

S.H. 2.6.2010 kl. 17:26

9 identicon

S.H hinn nafnlausi opinberar sitt fasistiska hugarfar. Hafa menn kynnt sér breytingar á útjaðri Palestinu síðustu hundruð ár?

Ólafur Sveinsson 4.6.2010 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband