951 - Bara að ég hefði nú heila

Já, sjálfsagt mæti ég á kjörstað og kýs, en hvað ég kýs að gera er ekki ákveðið. 

Annars er orðið of seint að gera nokkuð af viti í sambandi við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún er líka óttalegt ómark og eins og ég spáði er verið að reyna að fá fólk til að sitja heima. Hef samt ekki orðið var við mikið af beinum áskorunum um slíkt. Fólki þarf að finnast að það ákveði þetta sjálft, einkum ef það nennir eiginlega ekki að standa í þessari vitleysu.

„Bara að ég hefði nú heila", sagði fuglahræðan í Galdrakarlinum í Oz. Ætli ég geri ekki hennar orð að mínum núna.

Mér finnst ég ekki geta hunsað þessar kosningar. Aðeins einu sinni hef ég ekki mætt á kjörstað þegar mér bauðst það. Það var þegar Sigrún Þorsteinsdóttir bauð sig fram gegn Vigdísi árið 1988. Mér fannst þaulsetan hjá Vigdísi í embættinu óþörf og hún var búin að gefa það í skyn að hún yrði bara tvö kjörtímabil. Gat ekki hugsað mér að kjósa Sigrúnu. Hefði svosem getað mætt og kosið hvoruga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sagt er Þjóðaratkvæðagreiðslan er tilgangslaus því Icesavesamningur II er úreltur.

Hið rétta er: Það er þjóðaratkvæðagreiðslunni að þakka ef Icesavesamningur II er úreltur. Lögin taka gildi ef þau eru ekki kosin í burtu eða afturkölluð.

NEI við Icesave!

Theódór Norðkvist, 6.3.2010 kl. 01:16

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Spurningin er bara hvað tekur við og hvað er í gildi eftir að búið er að fella Icesave II.

Sæmundur Bjarnason, 6.3.2010 kl. 01:30

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Bóndinn Sæmi býr í Oz,
bryður kex og sýður tros,
brattur rekur búð þar Vos,
á bloggi hans þó mikið los.

Þorsteinn Briem, 6.3.2010 kl. 01:45

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Afhverju segja menn að kosningin sé ómark? Afhverju eru Jóhanna og Steingrímur að ljúga að þjóðinni aftur og aftur? Afhverju eru þau svona þýlynd? Ég er löngu hættur að skilja rök eða rakaleysi þessarar stjórnar. Svo lengi sem enginn nýr samningur hefur verið undirritaður þá gildir sá samningur sem síðast var undirritaður og Steingrímur gæti staðfest ríkisábyrgðina tæknilega með undirskrift sinni ef honum dytti í hug.

Þessvegna er nayðsynlegt að fella þessi lög úr gildi og eini löglegi aðilinn til að gera það er þjóðin með atkvæði sínu á morgun

Er þetta eitthvað flókið?  En auðvitað er alltaf snautlegt fyrir valdhafann þegar ráðin eru tekin af honum og hann gerður afturreka með þessum hætti.

Og frá og með morgundeginum mun þessi svipa vofa yfir stjórnmálamönnum og ráðherrum að sinna sínum embættisverkum svo meirihluta þjóðarinnar líki. Það er stóra málið

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 6.3.2010 kl. 01:47

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sæmi þú meinar Icesave 3. Þegar búið er að fella þessi lög út gildi þá væntanlega gildir fyrirvarasamningurinn frá í sumar sem við getum kallað icesave 2.  Ef þessi lög hefðu gilt áfram þá hefðu þau rutt fyrirvarsamningunum úr gildi þótt menn séu jafnvel að þræta um það líka. En allavega bindur enginn samningur þjóðina annar en sá sem Alþingi samþykkir og forsetinn skrifar undir. Það er nokkuð ljóst.

Mikilvægast er náttúrulega að fá það viðurkennt að ríkisábyrgð komi aldrei til greina. Þá verður væntanlega bankakerfið að tryggja það með eigin peningum að innistæðutryggingakerfið geti alltaf staðið undir skuldbindingum og þegar kerfishrun verður þá sé það alþjóðleg ábyrgð en ekki eins lands. Það er ekki nóg að viðurkenna alþjóðlegt flæði fjármagns ef ábyrgðin er ekki að sama skapi alþjóðleg. Það er heimskulegt að tala um að ríkisábyrgð sé hornsteinn bankakerfisins. Það er hreinn og klár pilsfaldakapítalismi sem löngu er tímabært að afnema. Við sáum þetta í bankakreppunni að stjórnendur eru enn að moka bónusum í eigin vasa meðan almenningur borgar tapið í gegnum ríkisaðstoð sem aldrei verður endurgreidd

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 6.3.2010 kl. 02:01

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það merkir að Bretar og Hollendingar geta samþykkt ágústsamninginn ef þeir vilja. Geri þeir það gildir hann og ekkert hægt að gera (annað en að gera byltingu.)

Við erum alltaf í betri stöðu með því að kjósa áramótasamninginn út í hafsauga, en erum samt ekki alveg laus við ríkisábyrgðina. Hún er í gildi í lögunum frá í águst.

Theódór Norðkvist, 6.3.2010 kl. 02:17

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ómar Ragnarsson vill að Kínverjar greiði IceSave-reikninginn vegna þess að þeir séu svo margir.

Sjötíu milljarðar króna deilt með 1,4 milljörðum manna gerir fimmtíu kall á mann og málið er dautt.

Þorsteinn Briem, 6.3.2010 kl. 08:42

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Steini ætíð stendur sig
stöðugt rími beitir.
Reynir æ að espa mig
eða hvað það heitir.

Sæmundur Bjarnason, 6.3.2010 kl. 09:50

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæmundur, ef ICESAVE 2 er fellt í gildi tekur ICESAVE 1 við, sem hefur ekki verið samþykkt af Bretum eða Hollendingum. Þar eru meðal annars fyrirvarar sem gera þeim ekki kleift að ganga að íslenskum náttúruauðlindum, að málið verður látið niður falla eftir ákveðinn árafjölda, og að skera þurfi úr um lagalegan ágreining áður en samið verður.

Ég kaus í gær, og lít á það sem móðgun við mig persónulega sem kjósanda og mann sem hefur starfað sem kennari og unnið að aukinni lýðræðisvitund nemenda minna að Jóhanna og Steingrímur ætla ekki að taka þátt í kosningunni og kalla hana marklausa til þess eins að draga úr þátttöku og bjarga eigin pólitíska skinni.

Hrannar Baldursson, 6.3.2010 kl. 09:53

10 identicon

 Þjóðremba verður sigurvegari atkvæðagreiðslunnar í dag. Hún er útrás þjóðar, sem horfir á geðbilaða bankastjóra afhenda útrásarvíkingum fyrirtækin sín aftur. Hún er útrás þjóðar, sem sætir þúsund milljarða tjóni af völdum Davíðs, Geirs og víkinganna. Því neitar hún að borga hundrað milljarða tjón af IceSave. "Við borgum ekki" segja fífl, sem samt borga þúsund milljarða. Í stað þess að rísa upp gegn ríkjandi peningavaldi fara fífl á kjörstað. Þau kjósa gegn evrópsku regluverki, erlendum ríkjum og guð má vita hverju. Með þjóðaratkvæðinu er þjóðrembd þjóð einhuga um að hengja bakara fyrir smið.

http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=13203
Þetta er líka sjónarmið?

Ólafur Sveinsson 6.3.2010 kl. 14:42

11 identicon

Ég fór og sagði nei, fannst ég verða að gera það.

DoctorE 6.3.2010 kl. 16:04

12 Smámynd: Kristinn Pétursson

Stattu með þinni þjóð - og segðu NEI - þá batnar samningsstaðan.

Samningsttaðan batnar enn - ef ráðherrar sem sitja nú heima - skv. opinberum yfirlýsingum - sem hneykslar erlenda balaðamenn - eiga að segj af sér - og vera bara heima hjá sér að hvíla sig næst mánuðina.

Þjóðstjórn eða utanþingsstjórn verður að taka við....

Kristinn Pétursson, 6.3.2010 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband