920 - Kem bráðum aftur

Já, ég er búinn að vera í næstum mánuð í einskonar sumarfríi á Stóru Hundaeyju (Gran Canary). Sé að sífellt er að verða óvinsælla að blogga á Moggablogginu. Ætla samt að halda því eitthvað áfram. Það er svo auðvelt og þægilegt. Jafnvel til í dæminu að það sé lesið. Fæ ekki séð að með því sé ég eitthvað að þjóna Davíð Oddssyni eða Sjálfstæðisflokknum.

Les meira að segja stundum forystugreinar (eða eru það Staksteinar) Morgunblaðsins sem birtast á Moggablogginu. Kannski skrifar Davíð þær. Veit það auðvitað ekki. Nafnleysið hentar þeim sem ráða stundum og stundum ekki. Í þessum greinum er oft vitnað í Pál nokkurn Vilhjálmsson sem er bloggari hér og talsvert lesinn. Held hann sé (fyrrverandi) blaðamaður. Hvernig væri að láta hann bara skrifa beint og nafnlaust í Moggann?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Vonandi hefur farið vel um þig á Stóru Hundaeyju -- amk. finnst mér það góður staður að vera á. Endalausar gönguleiðir, fjölbreyttir útimarkaðir (hefurðu farið á sunnudagsmarkaðinn í Faro II?) og gaman að horfa á iðandi danskösina í Kasbah á kvöldin. Og er þá fátt nefnt.

Já. það er hryggilegt að sjá að hryggurinn er að verða úr Moggablogginu. Veit ekki hvað kemur í staðinn. Ég fæ ekki séð fremur en þú að við séum á nokkurn handa máta að hlaða undir Davíð eða Sjálfstæðisflokkinn með því að birta þankagang okkar hér. Blogg missir að verulegu leyti marks þegar menn (og konur eru líka menn, nota bene) eru farnir að blogga út um allar koppagrundir þar sem enginn veit um þá. 

En öfugt við þig finnst mér nafnleynd (nafnleysi?) ljóður á bloggi og skítkasts einna helst að vænta undan þeim felubörðum.

Sigurður Hreiðar, 1.2.2010 kl. 11:05

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sæll Sæmundur, gott að heyra frá þér. Öfugt við ykkur félagana þá tel ég það skipta máli hvar maður bloggar. Ef bloggið er athyglisvert þá skapar það umferð á viðlomandi svæði sem aftur skapar eigendum þess meiri auglýsingatekjur. Ekkert er ókeypis, munið það. Ef þú skráir bloggið þitt á blogggáttina þá muntu halda tengslum við aðra bloggara. Blogger.com virðist álitlegur kostur fyrir óháða bloggara. Ég hef nýlega skráð mig þar og þótt ég geri mest af að skrifa athugasemdir hjá öðrum þá mun ég nota það ef á þarf að halda. Bloggheimar virðast vera komnir með öflugri server eða meiri bandvídd, en þar blogga bara byltingarsinnar svo það hæfir ekki.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.2.2010 kl. 11:25

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jóhannes, var búinn að svara þér ítarlega en það hvarf bara. Sambandið er lélegt hérna.

Ósammála þér um hvar skuli blogga. Moggabloggið hefur reynst mér vel og mér finnst ekki að bloggarar eigi að dreifa sér sem mest.

Moggabloggið er með góða bandvídd og menn í þjónustu sinni. Þar má fá aðstoð ef þarf. Engin mannanna verk eru með öllu gallalaus.

Sæmundur Bjarnason, 1.2.2010 kl. 12:39

4 Smámynd:

Já það hafa mjög margir hætt hér. Ég ákvað að vera áfram ekki það að ég sé mikill penni en ég hef ákveðnar skoðanir og vil stundum geta bloggað um fréttir hér á mbl.. Já það hafa verið leiðinlega einsleitar skoðanir hér og mikið um skítkast ef maður gerir athugasemdir sem þeim ekki líkar en ég ætla ekki að gafast upp hér. Svo er ágætt að vera líka annarsstaðar það eru margir t.d á eyjan.is og víðar eru skemtilegar umræður. kveðja Áslaug

, 1.2.2010 kl. 12:41

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sæmundur, Ég er vanur að synda á móti straumnum eins og laxinn, svo það kemur ekki á óvart að þú sért ósammála   En ertu viss um að hádegismóri hafi ekki étið færsluna þína?  Sá armi þrjótur vill stjórna allri umræðu hér. Hamast núna helst á Engeyjarfurstunum Bjarna og Birni

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.2.2010 kl. 13:32

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk, Áslaug. Já, hér er ágætt að vera. Samt vildi ég nú gjarnan hafa fleiri.

Jóhannes, Mórar og Skottur eru ekki mitt uppáhald. Held ekki að Davíð sé svo valdamikill í eternum (eða á astralplaninu) að hann éti færslurar mínar.  Passa mig samt á að skrifa ekki mjög mikið án þess að eiga afrit af því.

Sæmundur Bjarnason, 1.2.2010 kl. 15:08

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er allt í lagi með umhverfið á Moggablogginu. En samt hrakar því sífellt. Það sést best á því hverjir eru mest lesnir þar viku eftir viku. Þeir eru flestir andlegir undirmálsmenn svo það sé sagt hreint út. Flestir sem hafa eitthvað að segja eru annað hvort hættir að blogga eða farnir annað. Ég veit ekki hvers vegna þetta hefur þróast svona. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2010 kl. 17:11

8 Smámynd: Kama Sutra

Mikið er ég sammála Sigurði Þór um andlegu undirmálsmennina.  Það er orðið ákaflega fátt um fína drætti hérna á Moggablogginu.  Þó rekst ég stöku sinnum á góða bloggara innan um - en þeir eru orðnir eins og nál í heystakki.

Kama Sutra, 1.2.2010 kl. 20:37

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þabbasona.

Segi ekki meir.

Sæmundur Bjarnason, 1.2.2010 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband