1147 - Gnarr í 100 daga

Í dag (22. sept) er sagt að hveitibrauðsdögum (100 talsins) Gnarrista við stjórn Reykjavíkurborgar sé lokið. Þá má semsagt gagnrýna helvítið og friðurinn ætti að vera úti. Ég man reyndar ekki eftir neinu gagnrýnisefni nema þá helst þessu með laun varafulltrúa í borgarstjórn. Kannski þarf bara að útskýra það betur. Ég bý líka í Kópavogi svo það er ekki að marka. Mér finnst Samfylkingin ekki hafa riðið feitum hesti frá þessu samstarfi. Það álit gæti þó breyst. Kannski er þeim mikilvægast að halda Sjálfstæðismönnum frá kjötkötlunum. 

Ásamt hefðbundnum svefnmeðölum er kaffi mitt helsta svefnmeðal. Skil ekki þá sem hafa talið sjálfum sér og öðrum trú um að kaffið sé óvinur svefnsins númer eitt. Nú er ég andvaka, nýbúinn að drekka fullan stóran kaffibolla, taka hálfa pínulitla svefntöflu og blessuð syfjan að koma.

Nú gengur maður undir manns hönd með að fullyrða að ekki megi sækja fólk til saka nema líkur á sakfellingu séu mjög miklar. Þetta kann að vera eitthvað sem sækjendur miða við og þá hljóta þeir að gera það miðað við eigið álit. Að heimfæra þetta á saksókn yfirleitt er mesta vitleysa. Flestum ákærum ætti þá að ljúka með sakfellingu en svo er ekki. Þetta mætti þó athuga.

Sumum finnst allt snúast um þennan árans landsdóm. Mér finnst hann einfaldlega litlu máli skipta. Sannleiksnefnd eftir Suður-Afrískri fyrirmynd væri miklu fremur það sem okkur Íslendinga vanhagar um. Við þurfum svo sannarlega að fara að gera eitthvað annað en að súrmúla sífellt útaf þessu hruni. Það er liðin tíð og lítið sem við getum endurheimt af þeim peningum sem frá okkur var stolið.

„Umskipti hjá Samfylkingunni" segir mbl.is kotroskið mjög í fyrirsögn. Það er engu líkara en það sé takmark Morgunblaðsritstjórans fræga að Samfylkingunni gangi sín barátta sem verst. Hélt að takmark hans væri velgengni Sjálfstæðisflokksins. En það er eitt aðaleinkenni stjórnmálabaráttu að þegar einum gengur vel gengur öðrum illa. Þannig verður niðurlæging andstæðingsins smám saman jafnmikilvæg eigin velgengni. Þetta er það sem mér gengur verst að sætta mig við í þeirri margfrægu baráttu sem senn hefur lokið við að gleypa hrunið. Best er að vera ekki ofurseldur þessari fúlu samkeppni allri saman og reyna að hafa áhuga á einhverju öðru.

Daglega og stundum oft á dag hljóma í kollinum á mér nokkrar ljóðlínur úr revíu sem ég hef einhverntíma heyrt. Þessar ljóðlínur eru alls ekki merkilegar og nú ætla ég að athuga hvort þær hverfa ef ég skrifa um þær hér á blogginu. Í þessari revíu var af einhverjum ástæðum verið að fjölyrða um konuskipti á Grænlandi og þau fjalla um það og eru svona:

Þeir segja að það verði vafalaust
að vera milligjafarlaust.
En umfram allt það verði bara tafarlaust.

Ágætis rím reyndar en ekki er hægt að segja að þessar ljóðlínur séu merkilegar fyrir neitt annað.

IMG 3220Arkitektúr með augu og nef.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Skrítið með þetta gullfiskaminni almennings þegar kemur að afglöpum pólitísku fulltrúanna. Ég er ekkert betri og hef stundum ætlað að halda svona "pólitískt bókhald" til að hjálpa mér að muna. Lára Hanna hélt svona bókhald og það er skaði ef hún byrjar ekki fljótlega að blogga aftur.

Varðandi ljóðlínurnar, þá er skrítið að ekki séu lengur settar upp revíur hér á landi. Það ætti ekki að skorta efnivið eða hvað? Og til hvers er Borgarleikhúsið að færa upp enska útgáfu af Enron hneykslinu þegar við eigum okkar eigið Enron svindl þar sem Kaupþing var...

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.9.2010 kl. 06:58

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ækæruleiðin er önnur leið að sannleikanum en opinberar yfirheyrslur. Það að ákæra sé mannréttindarbrot í sjálfu sér er algjörlega út í hött. Réttarvernd hefst ekki og er ekki nauðsynleg fyrr en  manneskjan hefur verið ákærð.

Það hvernig talað er um að hinir ákærðu hafi ekki getað afstýrt hruninu er svona svipað og að segja ekki ástæðu til að ákæra bílaþjóf sem stal ódýrum bíl frekar en nokkrum dýrari týpum.

Um kaffið: hef aldrei getað drukkið heilan kaffibolla. Held ég hafi ekki einu sinni smakkað kaffi. 

Hrannar Baldursson, 22.9.2010 kl. 08:41

3 identicon

Þetta lið stólar á gullfiskaminni sem og athyglisbrest almennings; Þeir puða þetta svona áfram þar til eitthvað annað kemur upp sem nær athygli og svæfir hitt; Þannig hefur það alltaf verið á Íslandi.. og verður áfram ef ekkert er að gert til að stöðva þessar mafíur.

Kaffi er uppáhalds drykkurinn minn, drekk marga bolla á dag sko :)

doctore 22.9.2010 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband