2466 - Jónas Kristjánsson og Ómar Ragnarsson

Að sumu leyti er ég að hasast upp á þessu sífellda bloggi. Ómar Ragnarsson bloggar eins og enginn sé morgundagurinn og Jónas er líka stórtækur þar. Þó þessir menn hafi ekki komist áfram á öllum sviðum hafa þeir þó gert það ansi víða. Og ekki get ég leynt því að ég tek þá að mörgu leyti mér til fyrirmyndar í blogginu. Ómar er landsþekktur skemmtikraftur, flugmaður, sjónvarpsstjarna, náttúruverndarmaður og umhverfissinni. Sama er að segja um Jónas hvað náttúruverndina og umhverfið varðar. Auk þess er hann þekktur fyrir margt annað. T.d. er hann fyrrverandi ritstjóri, mikill hestamaður, rithöfundur, kennari og margt annað. Báðir eru þeir besservisserar miklir og hafa sannarlega efni á því.

Báðir hafa þeir og reynt fyrir sér í pólitík en ekki náð miklum frama þar. Ómar gekk, að ég held, í Samfylkinguna fyrir allnokkru en hefur ekki fengið neinn sérstakan framgang þar. Hefur kannski ekki kært sig um hann, og kannski sett skilyrði sem einhverjir hafa verið ósáttir við. Var fulltrúi á stjórnlagaþinginu og hafði sennilega talsverð áhrif þar.

Jónas bauð sig fram til stjórnlagaþingsins en var ekki kosinn á það. Sennilega hafa það verið honum talsverð vonbrigði þó ekki hafi hann látið neitt uppi um það mér vitanlega.

Fyrir nokkru man eg eftir að einhver steinsmiðja auglýsti legsteina til sölu. Ekkert athugavert við það. En þeim þótti nauðsynlegt að auglýsa jafnframt að allt væri innifalið. Man að ég velti því fyrir mér, vegna þess að ég er svo skrítinn, hvað átt væri við með þessu „allt innifalið“ þ.e.a.s. hvort þeir legðu til líkið líka. Sennilega hafa þeir samt átt við flutninginn og áletrunina eða eitthvað þessháttar. Hvað veit ég? Ég kaupi nefnilega ekki legsteina reglulega. Nýlega eru samt útfararþjónustur farnar að auglýsa. Það tíðkaðist alls ekki áður fyrr. Læknar mega t.d. ekki auglýsa, enda þurfa þeir þess sennilega ekki.

Kannski er ég ekki alveg hefðbundinn bloggari. Blogga mest um allskyns hluti sem tengjast bloggi en er samt ekki mjög oft bloggað um. Reyni að forðast óþarfa stóryrði sem „virkir í athugasemdum“ hafa samt margir hverjir tamið sér. Nefni jafnvel nöfn þó flestir forðist það. Auðvitað eru stjórnmálalegir forystumenn ekki taldir þar með. Um þá má tala illa eða vel eftir atvikum. Bloggara má helst ekki tala um nema þá í aðfinnslutón miklum.

Málfarslegar aðfinnslur eru mikið í tísku hjá þeim sem aldraðir eru. Sumt af því er óttalegur sparðatíningur finnst mér. Nauðsynlegur er hann samt því meðferð málsins fer á margan hátt hnignandi. Þeir sem einbeita sér að slíku verða fljótt óhemju leiðinlegir og mest lesnir af þeim sem minnst þurfa á slíkum aðfinnslum að halda.

Öll mín bankaviðskipti, sem alls ekki eru mikil, hafa verið við Landsbankann og ég get ekki kvartað yfir þeirri þjónustu sem ég hef fengið þar. Samt sem áður get ég ekki annað en tekið undir með þeim sem vilja reka með skömm æðstu ráðamenn þar. Borgunarmálið hefur valdið bankanum þvílíku orðsporstapi að ekki er með neinu móti hægt að sætta sig við slík afglöp.

WP 20141103 10 45 24 ProEinhver mynd.


Bloggfærslur 16. maí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband