2207 - Alterego

Í gamla daga áttu allir útvarp og voru áskrifendur að einhverjum dagblöðum eða höfðu aðgang að þeim. Mogganum að minnsta kosti ef ekki vildi betur. Hann kom alltaf með Steindóri um tíu-leytið. Hin blöðin komu reyndar líka með Steindóri, en það voru afar fáir áskrifendur að þeim. Það var einskonar pólitísk yfirlýsing ef menn voru það. Mogginn var alveg hlutlaus. Það fannst flestum að minnsta kosti. Kristján í Reykjafossi, var reyndar sagður vera kommúnisti, en samt dreifði hann Mogganum óhikað. Hann var ekki borinn út. (Þ.e.a.s Mogginn ekki Kristján.) Það þurfi að sækja hann.

Alterego eru ekki endilega grín. Þar er hægt að skrifa ýmislegt sem óþægilegt gæti verið að þurfa að standa við. Þetta segi ég mest útaf því að einhver Ívar (sem ég veit engin nánari deili á) heldur þessu fram í athugasemd við það sem ég sagði á blogginu mínu um svokallaðan Svarthöfða. Þá athugasemd sá ég fyrst fyrir stuttu síðan.

Ég læt mér í léttu rúmi liggja hvað öfgahægrimenn eins og Páll Vilhjálmsson og Jón Valur Jensson segja. Þeir þykjast vera súpergáfaðir en eru það alls ekki. Báðir eru samt mikið lesnir og við því er ekkert að segja. Jónas Kristjánsson með sína vinstrimennsku er líka mikið lesinn og Herðubreið lesa margir. Hinir hefðbundnu fjölmiðlar eiga mjög í vök að verjast enda þurfa þeir á miklu fjármagni að halda til að geta sinnt sínum aðdáendum. Þau ár sem liðin eru frá Hruninu Mikla hafa verið mikil stjórnmálaleg umbrotaár hér á landi. Heimsstjórnmál virðast hins vegar þróast stöðugt í áttina að kalda stríðinu. Flestir telja samt að því hafi lokið um það leyti sem Sovétríkin liðuðust í sundur. Ætli það hafi ekki verið svona um 1990. Eins og sjá má af þessu er ég ákaflega latur við að gúgla. Kann það heldur ekki nærri eins vel og sumir aðrir.

Líklega er það hvergi eins greinilegt og í skákinni að Rússar vilja gjarnan skapa aftur líkt ástand og var í heiminum í kalda stríðinu. Pútín er einvaldur þar, en slíkt einveldi er ekki til staðar í USA. Kannski má samt tala um ofurvald fjármagnsins þar. Svo má auðvitað deila um hvort er verra eða skárra. Á morgun mánudag verður kosinn forseti FIDE -  alþjóðaskáksambandsins. Kasparov, fyrrum heimsmeistari, etur þar kappi við Kirsan (Iljumsinov – stafsetning ath. ) sem verið hefur forseti þar alllengi og er sagður hallur undir Pútín. Þessi kosning er kannski heimssöguleg að því leyti að „kaldastríðslega séð“ er Kasparov fulltrúi USA þó alist hafi upp í Sovétríkjunum sálugu. Karpov hafði ekki erindi sem erfiði í viðureign við Kirsan.

„gylfig“ hefur læst Moggabloggi sínu. Samt get ég séð upphafið af öllum bloggum hans með því að fara á stjórnborðið mitt, því hann er bloggvinur minn. Þannig held ég að það sé með alla sem læsa blogginu sínu. Kannski á þetta að vera svona og kannski er þetta handvömm hjá Moggabloggsguðunum.

Tekur Hraðbraut virkilega til starfa nú í haust? E.t.v. á sama hátt og áður. Minnir endilega að minnst hafi verið á það fyrir nokkru síðan. Held að ríkisendurskoðun hafi haft ýmislegt við þann rekstur að athuga.

IMG 1332Skilti.

IMG 1337Framkvæmdir.


Bloggfærslur 10. ágúst 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband